Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Stöðuskýrsla starfshóps um valkosti og greiningu á vindorku til kynningar í Samráðsgátt

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett stöðuskýrslu starfshóps um valkosti og greiningu á vindorku til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda. Í skýrslunni „Vindorka – valkostir og greining“ er farið yfir núverandi umhverfi vindorku hérlendis og dregin saman ýmis álitaefni og settir fram valkostir um hvaða leiðir séu færar. Ekki er um eiginlegar tillögur að ræða, heldur er í skýrslunni dregin saman ýmis álitaefni og settir fram valkostir um hvaða leiðir séu færar.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði síðastliðið sumar þriggja manna starfshóp sem fékk það hlutverk að skoða og gera tillögur til ráðherra um nýtingu vindorku, þ. á m. um lagaumhverfi hennar og hvernig verði tekið á ýmsum álitamálum. Starfshópurinn var skipaður þeim Hilmari Gunnlaugssyni, sem var formaður hópsins, Björtu Ólafsdóttur, fyrrv. ráðherra umhverfis- og auðlindamála og Kolbeini Óttarssyni Proppé, fyrrv. alþingismanni.

Í skýrslu starfshópsins eru rakin ýmis álitamál sem óskað er samráðs um. Á meðal helstu málefna má nefna:

  • Á vindorka áfram að heyra undir lög um Rammaáætlun eða standa utan þeirra?
  • Þarf að setja sérstök viðmið um staðsetningu vindorkuvera, fjölda þeirra og stærð?
  • Þarf að setja skýrari reglur og viðmið þegar kemur að áhrifum á umhverfi og náttúru, ekki síst þegar kemur að mikilvægum fuglasvæðum og farleiðum fugla, auk áhrifa á búsetu og atvinnugreinar eins og ferðaþjónustu?
  • Þarf að breyta þeim reglum sem gilda um skattlagningu orkuframleiðslu eins og vindorkunnar?
  • Þarf að setja reglur um forgangsröðun orkuöflunar í þágu loftslagsmarkmiða og loftslagsskuldbindinga?

Að loknu víðtæku samráði um efni skýrslunnar, bæði í samráðsgátt stjórnvalda og kynninga á fundum um landið, mun starfshópurinn á grundvelli niðurstaðna sinna og samráðs leggja fram tillögur um lagafrumvarp um málefnið.

Óskað er eftir umsögnum og ábendingum um efni skýrslunnar og skal umsögnum skilað í Samráðsgátt stjórnvalda og er frestur til þess til 18. maí  næstkomandi.

Valkostir og greining á vindorku. Skýrsla starfshóps

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum