Úrskurðir og álit
-
-
-
-
28. apríl 2016 /Úrskurður vegna stjórnsýslukæru - ákvörðun tollstjóra um frestun tollafgreiðslu sendinga.
Kærð var til ráðuneytisins ákvörðun tollstjóra um frestun tollafgreiðslu tveggja sendinga.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
26. apríl 2016 /Mál nr. 27/2015. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 11. desember 2015 kærir SBK ehf. samningskaup Reykjanesbæjar nr. 14235 „Akstur almenningsvagna í Reykjanesbæ“. Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun Reykjanesbæjar (hér eftir vísað til sem „varnaraðila“) um að ganga til samninga við Hópferðir Sævars Baldurssonar ehf. og varnaraðila verði gert að greiða málskostnað.
-
-
-
-
-
-
-
20. apríl 2016 /Úrskurður vegna stjórnsýslukæru, dags. 22. janúar 2016 og athugasemda við starfshætti
Mál þetta snýst um greiðslu bóta til kæranda vegna tjóns sem varð á fasteign hans að [X] í Hveragerði í jarðskálftanum á Suðurlandi 29. maí 2008.
-
-
20. apríl 2016 /Mál nr. 16/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Skilyrði til að leita greiðsluaðlögunar ekki fyrir hendi skv. a-lið 1. mgr. 6. gr. lge. Fjárhagur ekki nægilega glöggur skv. b-lið 1. mgr. 6. gr. lge.
-
20. apríl 2016 /Mál nr. 6/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Ekki lagt fyrir á tímabili greiðsluskjóls skv. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. Rannsóknarregla.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
19. apríl 2016 /Úrskurður nr. 125/2017
Endurupptaka, alþjóðleg vernd, barnafjölskylda, ákvörðun ÚTL felld úr gildi
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
13. apríl 2016 /Úrskurður vegna stjórnsýslukæru - ákvörðun tollstjóra um leiðréttingu á uppgjöri opinberra gjalda að hluta.
Kærð var til ráðuneytisins ákvörðun tollstjóra um að synja beiðni um leiðréttingu á uppgjöri opinberra gjalda að hluta.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
13. apríl 2016 /Mál nr. 3/2016. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 25. febrúar 2016 kæra Úti og inni sf. og Landform ehf. útboð Hafnarfjarðarkaupstaðar (hér eftir vísað til sem „varnaraðila“) auðkennt „Hönnun og ráðgjöf fyrir hjúkrunarheimili Sólvangi“. Kærendur krefjast þess að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að leita samninga við STH teiknistofu ehf. og Landmótun sf. Þá krefjast kærendur einnig að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila, auk þess sem krafist er málskostnaðar. STH teiknistofa ehf. gerir þær kröfur að öllum kröfum kærenda verði hafnað.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
06. apríl 2016 /Mál nr. 3/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Ekki lagt fyrir á tímabili greiðsluskjóls skv. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.
-
06. apríl 2016 /Mál nr. 5/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara Ekki lagt fyrir á tímabili greiðsluskjóls skv. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.
-
-
-
-
-
-
05. apríl 2016 /Nr. 114/2016 Úrskurður
Synjun á dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar. Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
30. mars 2016 /Mál nr. 7/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Skuldari hefur af ráðnum hug eða með grófri vanrækslu veitt rangar eða villandi upplýsingar um aðstæður sem eru mikilsverðar í málinu skv. d-lið 1. mgr. 6. gr. lge.
-
30. mars 2016 /Mál nr. 4/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Kærendur höfðu á ámælisverðan hátt látið undir höfuð leggjast að standa við skuldbindingar sínar eftir því sem þeim framast var unnt skv. f-lið 2. mgr. 6. gr.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
23. mars 2016 /Mál nr. 40/2015
Hrundið ákvörðun umsjónarmanns um að mæla gegn nauðasamningi til greiðsluaðlögunar og tímabundinnar greiðsluaðlögunar fasteignaveðkrafna samkvæmt lögum 50/2009, sbr. 2. mgr. 18. gr. lge.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
21. mars 2016 /Úrskurður í máli nr. IRR16030226
Sveitarstjórn Langanesbyggðar: Ágreiningur um ákvörðun meirihluta sveitarstjórnar um breytingu á fundartíma sveitarstjórnar. Frávísun
-
21. mars 2016 /Mál nr. 2/2016. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 17. febrúar 2016 kæra All Iceland Tours ehf., Andrés Eyberg Magnússon, Björn Angantýsson, Björn Úlfarsson og Haraldur Örn Arnarson ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar um að semja við leigubílastöð um tilfallandi akstur fyrir fatlað fólk og fötluð skólabörn. Kærendur krefjast þess að ákvörðunin verði felld verði úr gildi en hafi komist á samningur á grundvelli ákvörðunarinnar er þess krafist að hann verði lýstur óvirkur. Þá er þess krafist að kærunefnd útboðsmála „úrskurði um brot varnaraðila á samningskaupum um tilfallandi akstursþjónustu fatlaðs fólks og fatlaðra skólabarna“, að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kærendum og úrskurði kærendum málskostnað. Af hálfu varnaraðila Hafnarfjarðarbæjar er þess aðallega krafist að kærunni verði vísað frá nefndinni en til vara að öllum kröfum kærenda verði hafnað og kærendum gert að greiða málskostnað í ríkissjóð.
-
21. mars 2016 /Mál nr. 24/2015. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 11. nóvember 2015 kærði Enor ehf. örútboð Ríkiskaupa og Hafnarfjarðarbæjar (hér eftir vísað til sameiginlega sem varnaraðila) nr. 20148 samkvæmt rammasamningi nr. 15392 á endurskoðun ársreiknings fyrir Hafnarfjarðarbæ, Hafnarfjarðarhöfn og GN eignir ehf. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi þá ákvörðun varnaraðila að meta tilboð kæranda ógilt. Þá er þess krafist að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila auk þess sem krafist er málskostnaðar.
-
21. mars 2016 /Mál nr. 23/2015. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 6. nóvember 2015 kærði Icepharma hf. rammasamningsútboð varnaraðila Ríkiskaupa og Landspítala (hér eftir vísað til sameiginlega sem varnaraðila) nr. 15880 auðkennt „Framework agreement for Video Endoscopy Systems for gastrointestinal and respiratory applications“. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um val á tilboði í útboðinu, en til vara að nefndin beini því til þeirra að auglýsa útboðið á nýjan leik. Þá krefst kærandi þess að kærunefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila, auk þess sem krafist er málskostnaðar.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
16. mars 2016 /Mál nr. 3/2015B. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með erindi 30. nóvember 2015 krefjast Efsti Hóll ehf., All Iceland Tours ehf. og Aldey ehf. endurupptöku á máli kærunefndar útboðsmála nr. 3/2015 sem lauk með úrskurði 13. ágúst 2015. Sóknaraðilar krefjast þess að í enduruppteknu máli lýsi kærunefndin óvirkan samning milli varnaraðila Strætó bs. og Ný-Tækni ehf. um tilfallandi akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og fötluð skólabörn. Þá krefjast sóknaraðilar þess að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila Strætó bs., að varnaraðili Strætó bs. verði beittur stjórnvaldssekt og gert að greiða sóknaraðilum málskostnað.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
15. mars 2016 /Úrskurður nr. 97/2016
Alþjóðleg vernd, öruggt upprunaríki, ákvörðun ÚTL staðfest, barnafjölskylda
-
-
-
-
-
-
-
-
10. mars 2016 /Mál nr. IRR15110212
Samgöngustofa: Synjun um atvinnuleyfi til aksturs leigubifreiðar
-
-
-
-
-
07. mars 2016 /614/2016. Úrskurður frá 7. mars 2016
Kærð var synjun Seðlabanka Íslands um aðgang að gjaldeyrisskiptasamningi Seðlabanka Íslands við Seðlabanka Kína. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi upplýsingar í samningnum heyra undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 35. gr. laga nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands sem væri sérstök þagnarskylduregla. Þar sem trúnaðarupplýsingar kæmu mjög víða fram í samningnum væri ekki unnt að veita aðgang að þeim hlutum skjalsins sem sérstök þagnarskylda náði ekki til, sbr. 3. mgr. 5. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Var því ekki hjá því komist að vísa kærunni frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
-
-
07. mars 2016 /613/2016. Úrskurður frá 7. mars 2016
Kærð var synjun Neytendastofu um aðgang að gögnum er vörðuðu rafrænar skilríkjalausnir en gagnabeiði kæranda var sett fram í 4. töluliðum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi stofnunina ekki hafa sýnt fram á að efni skjalsins skjalinu „Svar Auðkennis ehf. vegna ábendingar um vísbendingar um öryggisgalla í rafrænum skilríkjalausnum Auðkennis ehf.“, sem beiðst var í 2. tölul. gagnabeiðni, væri þess eðlis að leynt ætti að fara og var kæranda því veittur aðgangur að skjalinu. Hins vegar taldi úrskurðarnefndin að tvö fylgiskjöl með skjalinu væru háð þagnarskyldu á grundvelli 4. mgr. 20. gr. laga nr. 28/2001 og var kæru vegna synjunar á aðgangi að þeim því vísað frá nefndinni. Þá taldi úrskurðarnefndin að rökstuðningur fyrir synjun Neytendastofu að gögnum samkvæmt 1, 3. og 4. í gagnabeiðni kæranda samræmdist ekki ákvæði 1. mgr. 19. gr. upplýsingalaga og 22. gr. stjórnsýslulaga. Var því ákvörðunin felld úr gildi hvað varðaði þá töluliði í gagnabeiðni og lagt fyrir stofnunina að taka málið til nýrrar meðferðar þar sem rökstudd afstaða væri tekin til hvers gagns fyrir sig.
-
07. mars 2016 /611/2016. Úrskurður frá 7. mars 2016
A óskaði eftir gögnum í vörslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Úrskurðarnefndin taldi gögnin bera það með sér að vera rannsóknargögn í sakamáli eins og lögreglan héldi fram að þau væru. Þar sem upplýsingalög gilda ekki um rannsókn sakamáls eða saksókn, sbr. 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga, var málinu vísað frá nefndinni.
-
07. mars 2016 /612/2016. Úrskurður frá 7. mars 2016
Kærandi kærði þá ákvörðun innanríkisráðuneytisins að birta ekki opinberlega úrskurði í kærumálum í umgengnismálum. Þar sem ekki var um að ræða synjun á afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. var kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
-
07. mars 2016 /615/2016. Úrskurður frá 7. mars 2016
Kærð var afgreiðsla embættis landlæknis á beiðni kæranda um upplýsingar varðandi stofnanir sem sinna fíkniefnameðferð. Hvað varðaði fyrirspurnir kæranda um upplýsingar um fjölda skráðra atvika og kvartana taldi úrskurðarnefnd um upplýsingamál ekki ástæðu til að draga í efa þá fullyrðingu embættis landslæknis að hinar umbeðnu upplýsinga væru ekki fyrirliggjandi. Lá því ekki fyrir synjun á afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Þá hafði fyrirspurn um upplýsingar um framkvæmd embættisins á gæðaeftirliti á fíknimeðferð verið svarað með því að vísa til fyrirliggjandi upplýsinga á heimasíðu embættisins, sbr. 2. mgr. 19. gr. upplýsingalaga. Var því kæru málsins vísað frá úrskurðarnefndinni í heild sinni.
-
03. mars 2016 /Úrskurður nr. 151/2016
Alþjóðleg vernd, synjað um efnismeðferð, Grikkland, ákvörðun felld úr gildi
-
-
-
-
-
-
-
-
23. febrúar 2016 /Úrskurður nr. 77/2016
Alþjóðleg vernd, barnafjölskylda, öruggt ríki, ákvarðanir ÚTL staðfestar
-
-
23. febrúar 2016 /Úrskurður nr. 76/2016
Alþjóðleg vernd, öruggt upprunaríki, barnafjölskylda, ákvörðun ÚTL staðfest
-
-
23. febrúar 2016 /Úrskurður nr. 19/2016
Frávísun, endurupptökubeiðni til meðferðar hjá ríkisskattstjóra, endurupptökubeiðni barst ríkisskattstjóra innan kærufrests
-
-
-
23. febrúar 2016 /Úrskurður nr. 20/2016
Frávísun, endurupptökubeiðni hafnað af ríkisskattstjóra, endurupptökubeiðni barst ríkisskattstjóra að loknum kærufresti
-
-
23. febrúar 2016 /Úrskurður nr. 13/2016
Lán til grundvallar útreikningi, lántaki ekki einstaklingur
-
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.