Hoppa yfir valmynd

Úrskurðir og álit


Sýni 1-200 af 18901 niðurstöðum.

Áskriftir

  • 1162/2023. Úrskurður frá 16. nóvember 2023

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að samningum sem Happdrætti Háskóla Íslands hefði gert um rekstur á happdrættisvélum. Synjun Happdrættis Háskóla Íslands var byggð á 2. málsl. 9. gr. og 4. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin taldi að samningarnir teldust ekki varða mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni viðsemjenda Happdrættis Háskóla Íslands og að 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga stæði aðgangi kæranda þannig ekki í vegi. Þá taldi nefndin að jafnvel þótt gögnin vörðuðu að einhverju leyti samkeppnisrekstur Happdrættis Háskóla Íslands fælu þau ekki í sér upplýsingar sem væru til þess fallnar að valda Happdrætti Háskóla Íslands tjóni ef veittur yrði aðgangur að þeim. Var Happdrætti Háskóla Íslands því gert skylt að afhenda kæranda samningana.


  • 1161/2023. Úrskurður frá 16. nóvember 2023

    Málið varðaði beiðni til ríkislögreglustjóra um gögn sem vörðuðu brottvísun umbjóðanda beiðandans. Ríkislögreglustjóri taldi umboð beiðanda ekki vera gilt og leit því svo á að réttur hans færi samkvæmt 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, um upplýsingarétt almennings. Úrskurðarnefndin taldi að það umboð sem lægi fyrir í málinu skyldi teljast gilt og að ríkislögreglustjóra hefði borið að afgreiða beiðni beiðanda líkt og hún hefði komið frá umbjóðanda hans. Á hinn bóginn væri til þess að líta að ákvörðun um brottvísun teldist ákvörðun um rétt eða skyldu, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga giltu lögin ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum. Kærunni var því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál


  • 1160/2023. Úrskurður frá 16. nóvember 2023

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók að nýju upp mál nefndarinnar sem lyktaði með úrskurðum nr. 935/2020, 1009/2021 og 1020/2021. Í málunum komst nefndin að þeirri niðurstöðu að ríkisskattstjóra væri óheimilt að afhenda upplýsingar um hlutafjáreign úr gögnum sem tengjast skráningu raunverulegra eigenda, sbr. lög nr. 82/2019. Kærandi í framangreindum þremur málum vísaði til þess að upplýsingar um hlutafjáreign fólks væru ekki viðkvæmar og að hann teldi túlkun nefndarinnar á 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, vera ranga. Úrskurðarnefndin vísaði til þess að í nóvember 2022 hefði Evrópudómstóllinn komist að þeirri niðurstöðu að 30. gr. tilskipunar (ESB) 2015/849, með síðari breytingum, sem veitti almenningi aðgang að ákveðnum upplýsingum um raunverulega eigendur, fæli í sér brot á þeim grundvallarréttindum sem tryggð væru í 7. og 8. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Ákvæði réttindaskrárinnar ættu sér nokkra hliðstæðu í 71. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Við mat á því hvaða upplýsingar yrðu felldar undir 9. gr. upplýsingalaga teldi úrskurðarnefndin að hafa þyrfti hliðsjón af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu, en við túlkun dómstólsins á 8. gr. sáttmálans væri nú höfð hliðsjón af fyrrnefndum dómi Evrópudómstólsins. Ganga yrði út frá því við túlkun 9. gr. upplýsingalaga að löggjafinn hafi ekki ætlað að ganga í berhögg við alþjóðlegar skuldbindingar á sviði mannréttinda. Með hliðsjón til þessa taldi nefndin ekki forsendur til annars en að staðfesta þær efnislegu niðurstöður sem komist var að í úrskurðum nefndarinnar nr. 935/2020, 1009/2021 og 1020/2021.


  • 1159/2023. Úrskurður frá 8. nóvember 2023

    Deilt var um rétt kæranda, sem er blaðamaður, til aðgangs að upplýsingum um tollskrárnúmer farms og eðli farmsins um borð í tilteknu flugi flugfélagsins Ukraine Air Alliance, sem lenti á Keflavíkurflugvelli í lok júlí 2023. Synjun Skattsins byggðist á því að upplýsingarnar væru undirorpnar sérstakri þagnarskyldu, sbr. 188. gr. tollalaga, nr. 88/2005, og því væri Skattinum óheimilt að afhenda kæranda gögn sem innihaldi upplýsingarnar. Úrskurðarnefndin rakti að nefndin hefði slegið því föstu að ákvæðið væri sérstakt þagnarskylduákvæði að því er varðaði upplýsingar um viðskipti einstakra manna og fyrirtækja. Nefndin taldi að þau gögn sem óskað væri aðgangs að innihéldu slíkar upplýsingar. Því var ákvörðun Skattsins staðfest.


  • 1158/2023. Úrskurður frá 8. nóvember 2023

    Kærðar voru til úrskurðarnefndarinnar tafir á afgreiðslu landlæknis á beiðni um gögn, en beiðninni hafði verið vísað til embættisins til nýrrar meðferðar og afgreiðslu með úrskurði nefndarinnar nr. 1088/2022. Beiðnin hljóðaði á um aðgang að nánar tilgreindum og sundurliðuðum upplýsingum um spítalainnlagnir og legudaga vegna COVID-19-sjúkdómsins, inflúensu og aukaverkana bólusetninga á tilteknu tímabili. Landlæknir tók fram að ekki stæði til að synja beiðni kæranda heldur væri beðið eftir samþykki fyrir því að fá að samkeyra heilbrigðisskrár embættisins til að unnt væri að afgreiða beiðnina. Þar sem ekki lægi fyrir synjun beiðni um aðgang að gögnum var kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.


  • 1157/2023. Úrskurður frá 8. nóvember 2023

    Deilt var um rétt til aðgangs að tillögum að fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2023 og framkvæmdaáætlun fyrir árin 2023–2033 sem voru til umræðu á fundi bæjarstjórnar í nóvember 2022. Af hálfu Ísafjarðarbæjar var aðallega vísað til þess að gögnin teldust til vinnugagna í skilningi upplýsingalaga og því væri heimilt að undanþiggja þau upplýsingarétti almennings. Úrskurðarnefndin taldi að gögnin uppfylltu skilyrði þess að teljast vinnugögn í skilningi 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga, en að hluti þeirra innihéldi upplýsingar um atvik máls sem ekki væri að finna annars staðar, sbr. 3. tölul. 3. mgr. 8. gr. upplýsingalaga. Sveitarfélagið vísaði til þess að upplýsingarnar skyldu vera undanþegnar aðgangi kæranda samkvæmt bæði 9. gr. og 5. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi sveitarfélagið ekki hafa rökstutt þá afstöðu með fullnægjandi hætti og vísaði þeim hluta kæruefnisins til nýrrar meðferðar og afgreiðslu hjá Ísafjarðarbæ, en staðfesti að öðru leyti ákvörðun sveitarfélagsins.


  • 1156/2023. Úrskurður frá 8. nóvember 2023

    Sýn hf. óskaði eftir því að úrskurðarnefnd um upplýsingamál tæki upp að nýju mál sem lauk með úrskurði nefndarinnar nr. 1086/2022. Í úrskurðinum var lagt til grundvallar að gögn úr botnrannsókn sem Farice ehf. hefði annast við strendur Íslands árið 2021 teldust ekki vera fyrirliggjandi hjá fjarskiptasjóði. Úrskurðarnefndin lagði þann skilning í endurupptökubeiðni að beiðandi teldi að nefndin hefði ekki átt að leggja til grundvallar að gögn úr botnrannsókn við strendur Íslands teldust ekki fyrirliggjandi hjá fjarskiptasjóði, þar sem nánast öruggt mætti telja að rannsóknin hefði verið greidd úr ríkissjóði en ekki af Farice. Nefndin taldi að úrskurður nefndarinnar hefði ekki byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, eða að niðurstöður hans hafi byggst á atvikum sem breyst hafi verulega frá því að hann var kveðinn upp. Þá taldi nefndin röksemdir kæranda ekki leiða í ljós vísbendingar um að á úrskurðinum væru verulegir annmarkar að lögum. Beiðni um endurupptöku var því hafnað.


  • 21. nóvember 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 6/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Hugbúnaðargerð. Útboðsskylda. Málskostnaður.


  • 21. nóvember 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 12/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Reglugerð nr. 340/2017. Jafnræði. Frávikstilboð. Bindandi samningur. Frávikstilboð. Álit á skaðabótaskyldu hafnað.


  • 21. nóvember 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 5/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Reglugerð nr. 340/2017. Bindandi samningur. Útboðsgögn. Ógilt tilboð. Álit á skaðabótaskyldu. Málskostnaður.


  • 17. nóvember 2023 / Úrskurðir um matvæli og landbúnað

    Úrskurður vegna ákvörðunar Matvælastofnunar um synjun á umsókn um undanþágu til heimaeinangrunar vegna tveggja hunda.

    Innflutningur dýra, einangrun, innflutningsskilyrði, reglugerð um innflutning hunda og katta nr. 200/2020.


  • 16. nóvember 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 685/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.


  • 15. nóvember 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 665/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 79. gr. laga um útlendinga er staðfest. Einnig er staðfest ákvörðun um brottvísa kæranda frá Íslandi og ákveða honum endurkomubann til tveggja ára.


  • 14. nóvember 2023 / Úrskurðir um matvæli og landbúnað

    Stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar Matvælastofnunar vegna svars stofnunarinnar við fyrirspurn kæranda.

    Frávísun, Stjórnsýslulög


  • 13. nóvember 2023 / Úrskurðir um matvæli og landbúnað

    Stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar sýslumanns um skipun fyrirsvarsmanns

    Jarðalög, Þinglýsingarlög, Stjórnsýslulög, Stjórnvaldsákvörðun



  • 10. nóvember 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 33/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Bindandi samningur. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað.


  • 10. nóvember 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 16/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Reglugerð nr. 340/2017. Útboðsgögn. Bindandi samningur. Tæknilegt hæfi. Faglegt hæfi. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað.


  • 10. nóvember 2023 / Yfirfasteignamatsnefnd

    Mál nr. 7/2023

    Rafstöðvarvegur [], Reykjavík


  • 09. nóvember 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 681/2023 Úrskurður

    Kröfu aðila er hafnað.


  • 08. nóvember 2023 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 14/2022 - Úrskurður

    Fötlun. Viðeigandi aðlögun. Utan vinnumarkaðar. Fallist á brot.


  • 03. nóvember 2023 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 24/2023

    Kærandi kærði málsmeðferðartíma embættis landlæknis í kvörtunarmáli til ráðuneytisins þar sem hann taldi meðferð málsins ekki í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga um málshraða. Í úrskurði ráðuneytisins var litið til þess að gagnaöflun hefði dregist hjá embætti landlæknis af ástæðum sem vörðuðu ekki embættið. Þótt nokkur tími hefði liðið frá því að gögn hefðu borist embættinu og þau kynnt kæranda lá fyrir að málið væri í eðlilegum farvegi. Taldi ráðuneytið því að meðferð málsins væri að svo stöddu í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga um málshraða stjórnsýslumála.


  • 01. nóvember 2023 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 23/2023

    Kærð var gjaldtaka heilsugæslunnar vegna afhendingar á sjúkraskrá. Krafði heilsugæslan kæranda gjald með vísan til ákvæða 14. gr. reglugerðar nr. 1551/2022, um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Kærandi byggði á því að lagastoð skorti fyrir innheimtu gjaldsins. Ráðuneytið vísaði til þess að samkvæmt lögum um sjúkraskrár ætti sjúklingur rétt á að fá sjúkraskrá afhenta í heild eða hluta. Í lögunum væri engin gjaldtökuheimild vegna vinnu við yfirferð á sjúkraskrá fyrir afhendingu. Með vísan til meginreglna um lagastoð fyrir gjaldtöku taldi ráðuneytið að kærandi yrði þannig ekki krafin um gjald vegna afhendingar á sjúkraskrá. Var gjaldtakan því ógilt og lagt fyrir heilsugæsluna að endurgreiða kæranda.


  • 1155/2023. Úrskurður frá 20. október 2023

    Kærandi óskaði eftir að fá afhent gögn frá Reykjavíkurborg sem vörpuðu ljósi á það fyrirkomulag sem væri viðhaft hjá borginni varðandi ráðstöfun fræsisvarfs. Reykjavíkurborg afhenti kæranda nokkurt magn af gögnum sem vörðuðu fræsun malbiksslitlaga. Af hálfu Reykjavíkurborgar var fullyrt að engin frekari gögn lægju fyrir sem fallið gætu undir beiðni kæranda. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að draga þá staðhæfingu í efa og var ákvörðun Reykjavíkurborgar því staðfest.


  • 1154/2023. Úrskurður frá 20. október 2023

    Deilt var um synjun Tækniskólans á beiðni kæranda um aðgang að skýrslu sálfræði- og ráðgjafastofunnar Lífs og sálar um athugun á fylgni skólans við lög og reglugerðir. Úrskurðarnefndin rakti að gildissvið upplýsingalaga næði til einkaaðila, meðal annars þegar þeim væri falið að sinna þjónustu sem kveðið væri á um í lögum að stjórnvald skyldi sinna. Tækniskólinn væri að öllu leyti í eigu einkaaðila. Að mati nefndarinnar gætu starfsmannamál skólans hins vegar ekki talist vera hluti af þeirri opinberu þjónustu sem skólanum væri falið að veita samkvæmt lögum um framhaldsskóla. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.


  • 1153/2023. Úrskurður frá 20. október 2023

    Deilt var um synjun Akraneskaupstaðar á beiðni kæranda um aðgang að skipulagslýsingum sem lagðar höfðu verið fram á fundi skipulags- og umhverfisnefndar sveitarfélagsins. Meðan málið var til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni voru kæranda afhend gögnin. Þar sem ljóst var að ekki lægi lengur fyrir ákvörðun að synja kæranda um aðgang að gögnum var kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.


  • 1152/2023. Úrskurður frá 20. október 2023

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum sem Tryggingastofnun afhendir félags- og vinnumarkaðsráðuneyti vegna eftirlits með framkvæmd fjárlaga. Synjun ráðuneytisins var á því byggð að gögnin væru vinnugögn í skilningi upplýsingalaga, sem aðeins hefðu verið afhent ráðuneytinu sem eftirlitsaðila og misstu þannig ekki stöðu sína sem vinnugögn þótt þau hefðu verið afhent út fyrir Tryggingastofnun. Úrskurðarnefndin taldi hluta gagnanna ekki uppfylla það skilyrði upplýsingalaga að hafa verið útbúin af Tryggingastofnun til eigin nota. Þau gögn sem eftir stæðu uppfylltu skilyrði þess að teljast vinnugögn og að þau misstu ekki stöðu sína sem slík þótt þau hefðu verið afhent ráðuneytinu, þar sem Tryggingastofnun væri skylt að lögum að afhenda þau. Beiðni kæranda var vísað til félags- og vinnumarkaðsráðuneytis til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.


  • 30. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 109/2023 Úrskurður 30. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Enya (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 30. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 108/2023 Úrskurður 30. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Laurasif er hafnað.


  • 30. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 107/2023 Úrskurður 30. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Márey (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 30. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 106/2023 Úrskurður 30. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Garbó (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 30. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 105/2023 Úrskurður 30. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Vilfreð (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá


  • 30. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 104/2023 Úrskurður 30. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Harley (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 30. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 102/2023 Úrskurður 30. október 2023

    Beiðni um millinafnið Árheim er samþykkt.


  • 4/2022 A gegn Háskóla Íslands

    Ár 2023, 5. október, lauk áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema, þau Elvar Jónsson lögmaður og formaður nefndarinnar, Eva Halldórsdóttir lögmaður og Pétur Marteinn Urbancic Tómasson lögfræðingur máli)...


  • 26. október 2023 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 22/2023

    Kærð var gjaldtaka heilbrigðisstofnunar vegna afhendingar á sjúkraskrá. Krafði stofnunin kæranda gjald með vísan til ákvæða 14. gr. reglugerðar nr. 1551/2022, um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Kærandi byggði á því að lagastoð skorti fyrir innheimtu gjaldsins. Ráðuneytið vísaði til þess að samkvæmt lögum um sjúkraskrár ætti sjúklingur rétt á að fá sjúkraskrá afhenta í heild eða hluta. Í lögunum væri engin gjaldtökuheimild vegna vinnu við yfirferð á sjúkraskrá fyrir afhendingu. Með vísan til meginreglna um lagastoð fyrir gjaldtöku taldi ráðuneytið að kærandi yrði þannig ekki krafin um gjald vegna afhendingar á sjúkraskrá. Var gjaldtakan því ógilt og lagt fyrir stofnunina að endurgreiða kæranda.


  • 26. október 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 599/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Svíþjóðar er staðfest.


  • 25. október 2023 / Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi

    Úrskurður nr. 9 um ákvörðun Fiskistofu um sviptingu veiðileyfis.

    Lykilorð: Brottkast. Viðurlög. Svipting veiðileyfis. Lagaheimild. Persónuvernd.


  • 25. október 2023 / Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi

    Úrskurður nr. 8 um ákvörðun Fiskistofu um sviptingu veiðileyfis.

    Lykilorð: Brottkast. Viðurlög. Svipting veiðileyfis. Lagaheimild. Persónuvernd.


  • 25. október 2023 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 21/2023

    Kærandi, sem er læknir, kærði ákvörðun embættis landlæknis um að áminna hann. Var áminninguna að rekja til álita embættis landlæknis í tveimur málum þar sem embættið hafði komist að niðurstöðu um mistök/vanrækslu við veitingu heilbrigðisþjónustu og vanrækslu á að færa sjúkraskrá. Í úrskurði ráðuneytisins var talið, með vísan til meðalhófsreglu, að aldur annars málsins leiddi til þess að ekki yrði byggt á því við ákvörðun um áminningu, en um var að ræða vanrækslu á að færa sjúkraskrá árið 2002. Þá var það mat ráðuneytisins að atvik í hinu málinu næðu ein og sér ekki þeim alvarleikaþröskuldi að rétt væri að áminna kæranda vegna þeirra. Var ákvörðun embættis landlæknis því felld úr gildi og lagt fyrir embættið að beina tilmælum til kæranda um úrbætur.


  • 25. október 2023 / Úrskurðir mennta- og barnamálaráðuneytisins

    Synjun sveitarfélags á greiðslu matarkostnaðar grunnskólabarns meðan á samkomubanni varði

    Mánudaginn 1. október 2023 var kveðinn upp í mennta- og barnamálaráðuneytinu svofelldur   ÚRSKURÐUR í stjórnsýslumáli nr. MRN22090037 I. Kæra, kröfur og kæruheimild Mál þetta varðar kæru A og B, dags)...


  • 24. október 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 632/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi með vísan til 74. gr., sbr. 44. gr. laga um útlendinga.


  • 24. október 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 635/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi með vísan til 74. gr., sbr. 44. gr. laga um útlendinga.


  • 24. október 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 634/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi með vísan til 74. gr., sbr. 44. gr. laga um útlendinga.


  • 18. október 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 586/2023 Úrskurður

    Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um að vísa kæranda frá Íslandi er felld úr gildi.


  • 18. október 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 585/2023 Úrskurður

    Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um að vísa kæranda frá Íslandi er felld úr gildi.


  • 12. október 2023 / Yfirfasteignamatsnefnd

    Mál nr. 6/2023

    Borgarás [], Garðabæ


  • 12. október 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 571/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hana til Grikklands er staðfest.


  • 12. október 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 570/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hana til Grikklands er staðfest.


  • 12. október 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 569/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er staðfest.


  • 12. október 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 568/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er staðfest.


  • 12. október 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 567/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hana til Grikklands er staðfest.


  • 12. október 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 36/2023. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Aflétting sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar.


  • 12. október 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 22/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Reglugerð nr. 340/2017. Útboðsskylda. Lögvarðir hagsmunir. Tilboðsfrestir. Ógilding útboðs. Álit á skaðabótaskyldu.


  • 11. október 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 13/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Reglugerð nr. 340/2017. Viðmiðunarfjárhæðir. Útboðsskylda. Uppskipting innkaupa. Álit á skaðabótaskyldu.


  • 11. október 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 9/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Örútboð. Rammasamningur. Matsnefnd. Kærufrestur. Óvirkni samninga. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað.


  • 11. október 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 35/2023. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar.


  • 11. október 2023 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 19/2022 - Úrskurður

    Ráðning í starf. Mismunun á grundvelli kyns. Ekki fallist á brot.



  • 11. október 2023 / Úrskurðir mennta- og barnamálaráðuneytisins

    Ákvörðun sveitarfélags um að hafna forráðamanni barna aðgang að Mentor

    Föstudaginn 7. júlí 2023 var kveðinn upp í mennta- og barnamálaráðuneytinu svofelldur       ÚRSKURÐUR í stjórnsýslumáli nr. MRN23010168 I. Kæra, kröfur og kæruheimild Mennta- og barnamálaráðuneytinu )...


  • 11. október 2023 / Úrskurðir mennta- og barnamálaráðuneytisins

    Synjun um rétt til að nota starfsheitið kennari

    Ár 2023, þriðjudaginn 3. janúar, var kveðinn upp í mennta- og barnamálaráðuneytinu svofelldur     ÚRSKURÐUR í stjórnsýslumáli nr. MRN22020202 I. Kæra, kröfur og kæruheimild Mennta- og barnamálaráðune)...


  • 11. október 2023 / Úrskurðir mennta- og barnamálaráðuneytisins

    Undanþága á skólaskyldu á tilgreindu tímabili

    Fimmtudaginn 2. mars 2023 var kveðinn upp í mennta- og barnamálaráðuneytinu svofelldur     ÚRSKURÐUR í stjórnsýslumáli nr. MRN22060006   I. Kæra, kröfur og kæruheimild Mennta- og barnamálaráðuneytinu)...


  • 11. október 2023 / Úrskurðir mennta- og barnamálaráðuneytisins

    Synjun um rétt til að nota starfsheitið kennari

    Fimmtudaginn 2. mars 2023, var kveðinn upp í mennta- og barnamálaráðuneytinu svofelldur   ÚRSKURÐUR í stjórnsýslumáli nr. MRN22030206   I. Kæra, kröfur og kæruheimild Mennta- og barnamálaráðuneytinu)...


  • 09. október 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 25/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Kröfugerð. Jafnræði. Útboðsskilmálar.


  • 09. október 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 17/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Örútboð. Kærufrestur. Kröfugerð. Úrræði kærunefndar. Álit um skaðabótaskyldu hafnað.


  • 09. október 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 7/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Gildissvið laga nr. 120/2016. Valdsvið kærunefndar útboðsmála. Útboðsgögn. Tæknilegar kröfur. Álit á skaðabótaskyldu hafnað.


  • 05. október 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 561/2023 Úrskurður

    Kröfu aðila er hafnað.


  • 05. október 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 562/2023 Úrskurður

    Kröfu aðila er hafnað.


  • 05. október 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 563/2023 Úrskurður

    Kröfu aðila er hafnað.


  • 03. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 76/2023 Úrskurður 25. ágúst 2023

    Beiðni um eiginnafnið Fox (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 103/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Brynylfa (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 101/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Bábó (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 100/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Winter (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 1151/2023. Úrskurður frá 31. ágúst 2023

    Kæranda, sem er fréttamaður, var synjað um aðgang að stefnu og greinargerð Sinfóníu­hljómsveitar Íslands í nánar tilgreindu dómsmáli. Ákvörðun Sinfóníuhljómsveitar Íslands byggðist á því að um viðkvæm gögn væri að ræða sem vörðuðu einstaklinga, auk þess sem gögnin væru liður í dómsmáli. Úrskurðarnefndin taldi engum vafa undirorpið að gögnin lytu að einkamálefnum þeirra einstaklinga sem um ræðir, sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færu, sbr. 1. málsl. 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Þá væri það verulegum erfiðleikum bundið að skilja þær upplýsingar sem féllu undir undantekningarákvæði laganna frá þeim upplýsingum sem veita mætti aðgang að. Var ákvörðun Sinfóníuhljómsveitar Íslands því staðfest.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 99/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Merkel (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 98/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um millinafnið Árland er samþykkt.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 97/2023 Úrskurður 2. september 2023

    Beiðni um eiginnafnið Octavía (kvk.) er hafnað.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 96/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Eldrós (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 95/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Evin (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 94/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Andrei (kk.) er samþykkt og skal fært á mannanafnaskrá.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 93/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Zulima (kvk.) er samþykkt og skal fært á mannanafnaskrá.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 92/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Kaia (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttarafbrigði nafnsins Kaja.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 91/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Tatía (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 1150/2023. Úrskurður frá 31. ágúst 2023

    Kærandi bað sveitarfélagið Garðabæ um yfirlit úr málaskrá sveitarfélagsins sem tengdist eldri gagnabeiðnum hans og upplýsingar um það hvaða gögn voru afhent í hvert skipti. Afstaða sveitarfélagsins var sú að kærandi hefði þegar fengið slíkt yfirlit afhent, þótt afhendingin hefði ekki verið í formi skjáskota úr málaskrá sveitarfélagsins. Úrskurðarnefndin taldi að kærandi hefði ekki afmarkað beiðni sína við tilgreind mál eða tilgreind gögn, og þannig ekki uppfyllt skilyrði 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, um tilgreiningu gagna. Var ákvörðun Garðabæjar því staðfest.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 90/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Cara (kvk.) er hafnað.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 89/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Broteva (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 88/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Ezra (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttarafbrigði nafnsins Esra.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 87/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um föðurkenninguna Barteksdóttir er hafnað.


  • 1149/2023. Úrskurður frá 31. ágúst 2023

    Matvælastofnun synjaði kæranda um aðgang að gögnum sem lægju til grundvallar birtingu á tölfræði um afföll eldisfiska í sjókvíum í mælaborði fiskeldis á vef stofnunarinnar. Ákvörðunin byggðist aðallega á því að gögnin teldust ekki fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga, því þau tilheyrðu gagnagrunni stofnunarinnar. Í skýringum Matvælastofnunar kom fram að hægt væri að draga út úr gagnagrunninum allar upplýsingar, þ.m.t. þær sem synjað var um, og flytja yfir í excel-skjal án mikillar fyrirhafnar. Úrskurðarnefndin taldi í ljósi þeirra skýringa og með hliðsjón af ákvæði 15. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, að gögnin teldust í reynd vera fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga. Var því ákvörðun Matvælastofnunar felld úr gildi og beiðni kæranda vísað til stofunarinnar til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.


  • 02. október 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 86/2023 Úrskurður 2. október 2023

    Beiðni um eiginnafnið Brynjarr (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttarafbrigði nafnsins Brynjar.


  • 29. september 2023 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 20/2023

    Kærð var ákvörðun Lyfjastofnunar um stöðvun á sölu og innköllun á svonefndu sleipiefni, en stofnunin taldi vöruna lækningatæki. Þar sem varan væri hins vegar framleidd sem snyrtivara uppfyllti hún ekki þær kröfur sem gerðar séu til lækningatækja samkvæmt lögum. Í úrskurði ráðuneytisins var fallist á með Lyfjastofnun að umrædd vara teldist lækningatæki. Þótt ekkert lægi fyrir um að varan væri skaðleg notendum var ákvörðun stofnunarinnar staðfest.


  • 28. september 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 402/2023-Úrskurður

    Félagslegt leiguhúsnæði. Staðfest ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði. Lágmarksstigafjölda ekki náð.


  • 28. september 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 364/2023-Úrskurður

    Húsnæðisbætur. Staðfest ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta. Eignastaða umfram skerðingarmörk.


  • 27. september 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 539/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.


  • 27. september 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 526/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.


  • 27. september 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 525/2023 Úrskurður

    Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.


  • 27. september 2023 / Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi

    Úrskurður nr. 7 um ákvörðun Fiskistofu um að synja aðila máls um aðgang að gögnum.

    Réttur aðila máls til aðgangs að gögnum. Afhending gagna að hluta. Vigtun. Málsmeðferð. Viðurlög.


  • 26. september 2023 / Úrskurðir mennta- og barnamálaráðuneytisins

    Synjun á skólavist í sjálfstætt reknum grunnskóla

    Ár 2023, föstudagurinn 24. mars, var kveðinn upp í mennta- og barnamálaráðuneyti svofelldur ÚRSKURÐUR í stjórnsýslumáli nr. MRN22050230 I. Kæra, kröfur og kæruheimild Mennta- og barnamálaráðuneyti b)...


  • 25. september 2023 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 19/2023

    Kærandi kærði ákvörðun embættis landlæknis um að staðfesta ekki tilkynningu hans um rekstur heilbrigðisþjónustu. Umsóknin varðaði útgáfu læknisvottorða og álitsgerða en í málinu var deilt um hvort þjónustan félli undir hugtakið heilbrigðisþjónusta eins og það er skilgreint í lögum um landlækni og lýðheilsu. Í ljósi þeirra upplýsinga sem kærandi veitti um reksturinn á kærustigi var það mat ráðuneytisins að embætti landlæknis þyrfti að leggja nýtt mat á tilkynninguna, enda kynni starfsemin að einhverju leyti að fela í sér veitingu heilbrigðisþjónustu. Var ákvörðunin því felld úr gildi og lagt fyrir embættið að taka málið til meðferðar á ný.


  • 25. september 2023 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 18/2023

    Kærandi kærði ákvörðun embættis landlæknis um að veita honum áminningu. Þar sem kæran barst utan kærufrests var henni vísað frá ráðuneytinu.


  • 21. september 2023 / Úrskurðir mennta- og barnamálaráðuneytisins

    Synjun um rétt til að nota starfsheitið kennari

    Þriðjudaginn 24. janúar 2023, var kveðinn upp í mennta- og barnamálaráðuneytinu svofelldur ÚRSKURÐUR í stjórnsýslumáli nr. MRN22120052 I. Kæra, kröfur og kæruheimild Mennta- og barnamálaráðuneytinu )...


  • 20. september 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 449/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 70. gr. laga um útlendinga er staðfest.


  • 20. september 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 498/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.


  • 20. september 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 26/2023. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar. Hæfi.


  • 18. september 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 55/2023-Álit

    Samþykki húsfundar: Tenging við sameiginlega lagnagrind fyrir kaldavatnslögn.


  • 18. september 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 51/2023-Álit

    Ákvörðunartaka: Bann gegn notkun nagladekkja í sameiginlegri bílageymslu.


  • 18. september 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 48/2023-Úrskurður

    Ótímabundinn leigusamningur: Lengd uppsagnarfrests


  • 18. september 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 46/2023-Álit

    Skaðabótaábyrgð eiganda: Tjón á séreign. Bætur.


  • 18. september 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 39/2023-Úrskurður

    Leigusala ber að endurgreiða tryggingarfé. Ágreiningi um bótaskyldu leigjanda ekki vísað til nefndarinnar innan frests


  • 18. september 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 36/2023

    Riftun leigjanda. Endurgreiðsla tryggingarfjár.


  • 18. september 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 22/2023-Úrskurður

    Krafa leigusala í tryggingarfé of seint fram komin.


  • 18. september 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 20/2023-Álit

    Sameign/sameign sumra: Hjólageymsla.


  • 18. september 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 18/2023

    Tryggingafé


  • 18. september 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 14/2023-Úrskurður

    Fjárhæð leigu. Frávik frá skiptingu reksturskostnaðar. Hússjóður.


  • 18. september 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 59/2023-Úrskurður

    Krafa leigjanda um að leigusali greiði kostnað vegna fatahreinsunar.


  • 18. september 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 7/2023-Álit

    Hugtakið hús: Eitt hús eða fleiri. Húsfélag: Raðhús.


  • 15. september 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 45/2022. Úrskurður kærunefndar útboðsmála

    Reglugerð nr. 950/2017. Sérleyfi. Útreikningur verðmætis samnings. Valdsvið kærunefndar útboðsmála. Fjárhagslegt hæfi. Óstofnað einkahlutafélag. Ógilt og óaðgengilegt tilboð. Jafnræði. Álit á skaðabótaskyldu. Málskostnaður.


  • 15. september 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 44/2022. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Reglugerð nr. 950/2017. Sérleyfi. Útreikningur verðmætis samnings. Valdsvið kærunefndar útboðsmála. Fjárhagslegt hæfi. Óstofnað einkahlutafélag. Aðild. Ógilt og óaðgengilegt tilboð. Jafnræði. Álit á skaðabótaskyldu. Málskostnaður.


  • 15. september 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 32/2023. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Aflétting sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar.


  • 15. september 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 34/2023. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt.


  • 15. september 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 28/2023. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Samkeppnisútboð. Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt.


  • 15. september 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 19/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Tilboðsgögn. Sérfræðingur. Rammasamningur.


  • 14. september 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 493/2023 Úrskurður

    Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Kýpur eru staðfestar.


  • 14. september 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 484/2023 Úrskurður

    Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá.


  • 13. september 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 371/2023-Úrskurður

    Akstursþjónusta fatlaðs fólks. Staðfest ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsókn kæranda um aksturþjónustu. Kærandi ekki fötluð í skilningi laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.


  • 13. september 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 333/2023-Úrskurður

    Húsnæðisbætur. Staðfest ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta. Tekjur hærri en tekjuáætlun gerði ráð fyrir.


  • 13. september 2023 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 17/2023

    Kærandi kærði ákvörðun embættis landlæknis um að synja beiðni um endurupptöku á áliti embættisins á kvörtun kæranda vegna þjónustu tveggja tannlækna. Í úrskurði ráðuneytisins var vísað til þess álit embættis landlæknis væru ekki stjórnvaldsákvarðanir og giltu óskráðar meginreglur stjórnsýsluréttar um endurupptöku og eftir atvikum afturköllun. Við meðferð málsins komu fram upplýsingar sem leiddu til þess að ráðuneytið taldi óháðan sérfræðing, sem hafði veitt umsögn um kvörtun kæranda, hafa verið vanhæfan til að veita umsögnina. Að því virtu taldi ráðuneytið að beita bæri óskráðum meginreglum um afturköllun vegna ógildingarannmarka og að ógilda bæri málsmeðferð embættisins í málinu. Var lagt fyrir embættið að taka málið til meðferðar á ný.


  • 07. september 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 487/2023 Úrskurður

    Kröfu aðila er hafnað.


  • 07. september 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 486/2023 Úrskurður

    Kröfu aðila er hafnað.


  • 07. september 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 488/2023 Úrskurður

    Kröfu aðila er hafnað.


  • 06. september 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 116/2023-Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkumat. Úrskurðarnefndin telur rétt að kærandi gangist undir sérhæft mat á möguleikum til endurhæfingar áður en til örorkumats kemur.


  • 05. september 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 85/2023 Úrskurður 5. september 2023

    Beiðni um eiginnafnið Óbi (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 31. ágúst 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 464/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Austurríkis er staðfest.


  • 31. ágúst 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 463/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Austurríkis er staðfest.


  • 30. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 27/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Viðmiðunarfjárhæð. Valdsvið kærunefndar útboðsmála. Frávísun.


  • 30. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 18/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Gagnvirkt innkaupakerfi. Breytingar á útboðsgögnum. Ógilding útboðs.


  • 30. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 33/2023. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Bindandi samningur. Stöðvunarkröfu hafnað.


  • 30. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 31/2023. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Forval. Tæknilegt hæfi. Fjárhagslegt hæfi. Stöðvun innkaupaferlis.


  • 30. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 11/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Örútboð. Rammasamningur. Lágmarkskröfur. Bindandi samningur. Skaðabótaskyldu hafnað.


  • 30. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 10/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Reglugerð nr. 340/2017. Útilokunarástæður. Of lágt tilboð. Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt.


  • 29. ágúst 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 326/2023-Úrskurður

    Sérstakur húsnæðisstuðningur. Staðfest ákvörðun Reykjanesbæjar um að synja beiðni kæranda um niðurfellingu á skuld vegna ofgreidds sérstaks húsnæðisstuðnings. Ekkert ákvæði í reglum sveitarfélagsins sem heimilar slíka niðurfellingu.


  • 29. ágúst 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 306/2023-Úrskruður

    Húsnæðisbætur. Staðfest ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um að synja umsókn kæranda um húsnæðisbætur þar sem eignir skerða húsnæðisbætur að fullu. Einnig staðfest ákvörðun stofnunarinnar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta þar sem eignastaða var umfram skerðingarmörk.


  • 29. ágúst 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 298/2023-Úrskurður

    Fjárhagsaðstoð. Staðfestar ákvarðanir Reykjavíkurborgar um að synja umsóknum kæranda um styrki til að greiða fyrir gistikostnað. Skilyrði 27. gr. reglna sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð ekki uppfyllt.


  • 29. ágúst 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 84/2023 Úrskurður 29. ágúst 2023

    Beiðni um eiginnafnið Reykjalín (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.



  • 28. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 24/2023. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt.


  • 28. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 28/2022. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Samkeppnisútboð. Matsnefnd. Útboðsgögn. Valforsendur. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað.


  • 25. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 19/2023. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Stöðvun samningsgerðar aflétt. Sérfræðingur.


  • 25. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 46/2022 og 8/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Rammasamningur. Tæknilegt hæfi. Útboðsgögn. Sérfræðingur. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað.


  • 25. ágúst 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 83/2023 Úrskurður 25. ágúst 2023

    Beiðni um eiginnafnið Þórberg (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 25. ágúst 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 82/2023 Úrskurður 25. ágúst 2023

    Fallist er á föðurkenninguna Róbertsdóttir.


  • 25. ágúst 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 81/2023 Úrskurður 25. ágúst 2023

    Beiðni um eiginnafnið Valerí (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 25. ágúst 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 80/2023 Úrskurður 25. ágúst 2023

    Beiðni um eiginnafnið Hrafnea (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 25. ágúst 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 79/2023 Úrskurður 25. ágúst 2023

    Beiðni um eiginnafnið Trausta (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 25. ágúst 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 78/2023 Úrskurður 25. ágúst 2023

    Beiðni um eiginnafnið Annamaría (kvk.) er hafnað.


  • 25. ágúst 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 77/2023 Úrskurður 25. ágúst 2023

    Beiðni um eiginnafnið Özur (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttarafbrigði eiginnafnsins Össur.


  • 25. ágúst 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 74/2023 Úrskurður 14. ágúst 2023

    Beiðni um eiginnafnið Konstantín (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 25. ágúst 2023 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 75/2023 Úrskurður 25. ágúst 2023

    Beiðni um eiginnafnið Aðaley (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 24. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 35/2022. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Útboðsskylda. Sérleyfissamningur. Viðmiðunarfjárhæð. Tilboð.


  • 24. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 36/2022. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Útboðsskylda. Hugbúnaðargerð. Kærufrestur. Frávísun.


  • 24. ágúst 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 4/2023-Álit

    Hugtakið hús. Eitt hús eða fleiri. Ákvörðunartaka. Svalalokanir.


  • 24. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 4/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Rammasamningur. Útboðsgögn. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað.


  • 23. ágúst 2023 / Yfirfasteignamatsnefnd

    Mál nr. 5/2023

    Finnheiðarvegur [], Grímsnes- og Grafningshreppi


  • 1148/2023. Úrskurður frá 26. júlí 2023

    A kærði synjun barnaverndarþjónustu Garðabæjar á beiðni hans um aðgang að öllum gögnum máls í barnaverndarmáli dóttur sinnar. Úrskurðarnefndin taldi að um rétt kæranda til aðgangs að gögnunum gilti ákvæði 45. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 og yrði því ágreiningur um aðgang að þeim borinn undir úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 6. gr. laga nr. 80/2002. Var málinu því vísað frá.


  • 1147/2023. Úrskurður frá 26. júlí 2023

    Kærð var synjun dómsmálaráðuneytisins á beiðni A, fréttamanns, um aðgang að minnisblaði ráðherra sem lagt var fyrir á ríkisstjórnarfundi, um sjónarmið Almannavarna um samgöngumál á Austfjörðum. Úrskurðarnefndin taldi ljóst að minnisblaðið til ríkisstjórnar Íslands hefði verið lagt fyrir ráðherrafund og því undanþegin upplýsingarétti almennings með vísan til 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Synjun ráðuneytisins á afhendingu minnisblaðisins var því staðfest.


  • 1146/2023. Úrskurður frá 26. júlí 2023

    Deilt var um rétt kærenda til aðgangs að gögnum í vörslum Samgöngustofu sem vörðuðu ábendingar og athuganir stofnunarinnar á tilteknum flugmanni og félagi hans. Synjun Samgöngustofu byggðist á því gögnin væru undirorpin sérstakri þagnarskyldu samkvæmt 2. mgr. 8. gr. laga nr. 119/2012, og girti fyrir aðgang kærenda að gögnunum samkvæmt upplýsingalögum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki unnt að líta á ákvæði 2. mgr. 8. gr. laga nr. 119/2012 sem sérstakt þagnarskylduákvæði gagnvart þeim upplýsingum sem beiðni kærenda í málinu beindist að, heldur færi úrlausn þess eftir ákvæðum upplýsingalaga. Af þeim sökum var það niðurstaða nefndarinnar að Samgöngustofa hefði ekki leyst úr beiði kærenda á réttum lagagrundvelli. Var beiðni kærenda því vísað til Samgöngustofu til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.





  • 22. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 19/2023. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála

    Krafa um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar.


  • 21. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 2/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Fjárhagslegt hæfi. Byggt á getu annarra. Skaðabótaskyldu hafnað.


  • 21. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 43/2022. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Rökstuðningur. Bindandi samningur. Álit á skaðabótaskyldu hafnað.


  • 18. ágúst 2023 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 40/2022. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Útboðsgögn. Tæknilegt hæfi. Bindandi samningur. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað.


  • 18. ágúst 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 454/2023 Úrskurður

    Kröfu aðila er hafnað.


  • 18. ágúst 2023 / Úrskurðir um matvæli og landbúnað

    Stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um sölustöðvun á Cocoa Puffs

    Sölustöðvun, meðalhófsregla


  • 18. ágúst 2023 / Úrskurðir um matvæli og landbúnað

    Stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um sölustöðvun á Lucky Charms

    Sölustöðvun, meðalhófsregla





  • 17. ágúst 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 324/2023-Úrskurður

    Málefni fatlaðs fólks. Kærufrestur. Kæru vísað frá þar sem hún barst að liðnum kærufresti.


  • 17. ágúst 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 304/2023-Úrskurður

    Húsnæðisbætur. Staðfest ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta. Tekjur hærri en tekjuáætlun gerði ráð fyrir.


  • 17. ágúst 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 303/2023-Úrskurður

    Málefni fatlaðs fólks. Húsnæði. Staðfest synjun Reykjavíkurborgar á umsókn kæranda um húsnæði fyrir fatlað fólk þar sem fötlunargreining lá ekki fyrir þegar kærandi lagði inn umsókn.


  • 17. ágúst 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 300/2023-Úrskurður

    Húsnæðisbætur. Staðfest ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta. Tekjur heimilismanna hærri en tekjuáætlun gerði ráð fyrir.


  • 17. ágúst 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 296/2023-Úrskurður

    Húsnæðisbætur. Staðfest ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta. Tekjur hærri en tekjuáætlun gerði ráð fyrir.


  • 17. ágúst 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 265/2023-Úrskurður

    Húsnæðisbætur. Staðfest ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um að synja umsókn kæranda um húsnæðisbætur. Eignir skerða húsnæðisbætur að fullu.


  • 17. ágúst 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 243/2023-Úrskurður

    Fjárhagsaðstoð. Staðfest ákvörðun Kópavogsbæjar um að synja kæranda A um fjárhagsaðstoð þar sem hún var með opinn rekstur. Kópavogsbæ gert að taka umsókn B fyrir að nýju þar sem hann var ekki skráður raunverulegur eigandi fyrirtækisins.


  • 17. ágúst 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 420/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hana til Grikklands er staðfest.


  • 17. ágúst 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 386/2023 Úrskurður

    Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Ítalíu eru staðfestar.


  • 17. ágúst 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 444/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Paragvæ er staðfest.


  • 17. ágúst 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 443/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Paragvæ er staðfest.


  • 17. ágúst 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 442/2023 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Paragvæ er staðfest.


  • 17. ágúst 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 27/2023-Úrskurður

    Leigumál: Skaða- og miskabótakrafa leigusala.


  • 17. ágúst 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 33/2023-Álit

    Viðgerðir á svölum. Ákvörðunartaka á húsfundi.


  • 17. ágúst 2023 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 34/2023-Úrskurður

    Leigusala ber að endurgreiða tryggingarfé.


  • 14. ágúst 2023 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Fæðingar- og foreldraorlof

    Mál nr. 123/2023-Úrskurður

    Kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


  • 14. ágúst 2023 / Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi

    Úrskurður nr. 6 um ákvörðun Fiskistofu um synjun kröfu um svæðisbundna friðun fyrir allri veiði á jörð og veiðisvæði

    Lax- og silungsveiði. Krafa um svæðisbundna friðun. Synjun. Mat stjórnvalda. Málsmeðferð. Stjórnarskrá.


  • 10. ágúst 2023 / Úrskurðir um matvæli og landbúnað

    Kærð málsmeðferð Matvælastofnunar

    Lög um velferð dýra, dagsektir, málsmeðferð.


  • 10. ágúst 2023 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 16/2023

    Kærandi kærði ákvörðun embættis landlæknis um að synja beiðni um endurupptöku á áliti embættis landlæknis hennar frá 2006, vegna heilbrigðisþjónustu sem átti sér stað á árunum 1995-1997. Í úrskurði ráðuneytisins var talið að nýlegar upplýsingar sem kærandi vísaði til um sjúkdómsgreiningar hefðu ekki þau áhrif að taka ætti málið upp að nýju. Var það jafnframt mat ráðuneytisins að efni kvörtunarinnar næði ekki því alvarleikastigi að mikilvægt væri vegna almannahagsmuna að hún yrði rannsökuð á ný eða að niðurstaða málsins yrði fordæmisgefandi fyrir þá heilbrigðisþjónustu sem veitt er á þeim sviðum Landspítala sem um ræddi. Var ákvörðun embættis landlæknis því staðfest.


  • 08. ágúst 2023 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 13/2022 - Úrskurður

    Uppsögn. Mismunun vegna þjóðernisuppruna og kynþáttar. Fjölþætt mismunun. Fallist á brot.


  • 08. ágúst 2023 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 434/2023 Úrskurður

    Kröfu aðila er hafnað.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum