Hoppa yfir valmynd
%EF%BF%BD%EF%BF%BDrskur%EF%BF%BD%EF%BF%BDarnefnd um lei%EF%BF%BD%EF%BF%BDr%EF%BF%BD%EF%BF%BDttingu ver%EF%BF%BD%EF%BF%BDtrygg%EF%BF%BD%EF%BF%BDra fasteignave%EF%BF%BD%EF%BF%BDl%EF%BF%BD%EF%BF%BDna

Úrskurður nr. 110/2015

ÚRSKURÐUR ÚRSKURÐARNEFNDAR UM LEIÐRÉTTINGU VERÐTRYGGÐRA FASTEIGNAVEÐLÁNA

 nr. 110/2015

 

Ár 2015, miðvikudaginn 25. mars, er tekið fyrir mál nr. 79/2015; kæra A, dags. 4. febrúar 2015. Í málinu úrskurða Eva Dís Pálmadóttir, Ingi Tryggvason og Kristján Jónasson. Upp er kveðinn svofelldur

 

ú r s k u r ð u r :


I.

Málavextir eru þeir að kærandi sótti um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána sinna þann 19. maí 2014. Útreiknuð leiðréttingarfjárhæð kæranda var 1.179.475 kr. og var sú fjárhæð birt kæranda 11. nóvember 2014.

Með kæru, dags. 4. febrúar 2015, hefur kærandi kært fjárhæð leiðréttingar, sbr. 9. gr. laga. nr. 35/2014, um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána og framkvæmd leiðréttingar, sbr. 11. gr. sömu laga. Í kæru kemur fram að kærandi mótmæli því að útreiknaðri leiðréttingu sé að jöfnu skipt milli hans og fyrrverandi eiginkonu hans. Lánin sem leiðréttingin nái til séu á nafni kæranda og hafi verið það frá skilnaði á árinu 2010. Fyrrverandi eiginkona kæranda hafi þar fyrir utan ekki greitt af lánunum frá því þau voru yfirtekin árið 2007. Kærandi hafi yfirtekið öll lán við skilnað aðila og glími við fjárhagserfiðleika. Kærandi tekur fram að hann sé nú í skuldaaðlögun hjá umboðsmanni skuldara.

           

II.

 Ágreiningsefni máls þessa snýr að fjárhæð leiðréttingar. Kærandi var á tímabilinu 1. janúar 2008 til 31. desember 2009, þ.e. leiðréttingartímabili 1. gr. og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 35/2014, kvæntur B. Fjárhæð leiðréttingar fyrrverandi eiginkonu kæranda er ekki til umfjöllunar í máli þessu.

Ljóst er að útreiknuð leiðrétting lána kæranda er 1.389.032 kr. og frá þeirri fjárhæð dragast frádráttarliðir, sbr. 8. gr. laga nr. 35/2014, samtals að fjárhæð 205.557 kr. Nánar tiltekið er um að ræða sérstaka vaxtaniðurgreiðslu.

Í 3. gr. laga nr. 35/2014 er fjallað um afmörkun leiðréttingar samkvæmt lögunum. Þar segir í 2. mgr. að leiðrétting samkvæmt lögunum taki til heimila, þ.e. einstaklinga, hjóna og sambýlisfólks sem uppfyllti skilyrði til samsköttunar innan leiðréttingartímabils skv. 1. mgr. Taki leiðrétting til áhvílandi lána á sameiginlegu heimili hjóna eða sambýlisfólks, óháð því hvor aðilinn var skráður fyrir lánunum á tímabilinu. Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 35/2014 segir að leiðrétting einstaklings og hámark hennar ráðist af hjúskapar- eða heimilisstöðu eins og hún var á hverjum tíma innan leiðréttingartímabilsins.

Í athugasemdum við 3. gr. frumvarps, er varð að lögum nr. 35/2014, kemur fram að afmörkun og þar með tilkall til leiðréttingar byggist á nokkrum þáttum. Síðan segir: „Í fyrsta lagi afmarkast leiðrétting við ákveðið tímabil, í öðru lagi þarf að hafa verið áhvílandi verðtryggt lán á heimili á sama tímabili, í þriðja lagi er það skilyrði að vaxtagjöld af lánunum hafi verið viðurkennd sem grundvöllur útreiknings vaxtabóta. Síðastgreinda atriðið felur nánar í sér kröfu um að til lána hafi verið stofnað vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota, þ.e. til heimilishalds viðkomandi, en hvorki til útleigu, né annarra nota eða sem fjárfesting einvörðungu. Réttur til vaxtabóta hefur þannig víðtæka skírskotun í þessu sambandi því annars vegar er um að ræða staðfestingu á nýtingu láns og hins vegar afmörkun á rétti til annars vegar vaxtabóta við einstaklinga og hins vegar hjóna og sambúðarfólks óháð því hver skráður er fyrir láni á þeim tíma sem um sameiginlegt heimilishald var að ræða. Á þessum forsendum er litið svo á að tilkall til leiðréttingar vegna lána til öflunar húsnæðis til sameiginlegs heimilishalds eigi jafnt við um hjón og einstaklinga sem höfðu sambærilega fjárhagslega samstöðu vegna sambúðar óháð því hvort viðkomandi var formlega skráður fyrir lánum á því tímabili sem leiðréttingu er ætlað að taka til. Réttur eða tilkall til leiðréttingar kann þannig að ráðast af hjúskaparstöðu á tímabilinu eða innan áranna 2008–2009. Skilnaður hjóna eða samvistarslit hefur þannig ekki í för með sér brottfall réttar til leiðréttingar, enda ræðst útreikningur leiðréttingar skv. 7. gr. af stöðu lána sem hvíldu á hverjum tíma á sameiginlegu heimili á tímabilinu.“

Nánar er fjallað um útreikning leiðréttingar og ráðstöfun í 4. gr. reglugerðar nr. 698/2014, um samræmt verklag og viðmið við leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána. Þar segir í 3. mgr. að fjárhæð leiðréttingar einstaklings og hámark hennar ráðist skv. 5. mgr. 7. gr. laga nr. 35/2014 af hjúskapar- eða heimilisstöðu eins og hún var á hverjum tíma innan leiðréttingartímabilsins, 1. janúar 2008 til 31. desember 2009. Ef breytingar hafi orðið á högum umsækjanda, einu sinni eða oftar, sbr. 1. málsl., á leiðréttingartímabilinu skuli útreikningur leiðréttingar miða við að breytingin taki gildi í sama mánuði. Í 4. mgr. segir að heildarsamtala fjárhæðar útreiknaðrar leiðréttingar hvers heimilis geti að hámarki orðið 4 milljónir kr. Við útreikning á hámarki leiðréttingar hvers heimilis skuli, eftir atvikum, skipta fjárhæð leiðréttingar í samræmi við breytingar á hjúskapar- eða heimilisstöðu hvers einstaklings á hverjum tíma innan leiðréttingartímabilsins.

Í tilviki kæranda er óumdeilt að hann var kvæntur á leiðréttingartímabili 1. gr., sbr. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 35/2014. Lýsing kæranda á sambúðartímabili sínu og þáverandi eiginkonu hans er í samræmi við forsendur ríkisskattstjóra við útreikning leiðréttingar. Fjárhæð leiðréttingar og hámark hennar tekur mið af hjúskapar- og heimilisstöðu leiðréttingartímabilsins, óháð því hvor aðili var skráður fyrir leiðréttum lánum á tímabilinu og óháð því hvor er nú ábyrgur fyrir skuldum. Af þessu leiðir að fyrrverandi eiginkona kæranda átti sjálfstæðan rétt á hluta leiðréttingar lána sem um ræðir í þessu máli. Útreiknuð fjárhæð leiðréttingar kæranda er því í samræmi við framangreind lagafyrirmæli sem um hana gilda. Á því hefur ekki verið byggt af hálfu kæranda að önnur atriði útreikningsins séu röng. Ákvörðun ríkisskattstjóra um útreikning leiðréttingarfjárhæðar verður ekki hnekkt. Kröfu kæranda er því hafnað.

 

Ú r s k u r ð a r o r ð :

Kröfu kæranda er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum