Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd %C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 316/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 1. júlí 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 316/2021

í stjórnsýslumálum nr. KNU21040026 og KNU21040027

 

Kæra [...],

[...]

og barna þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 13. apríl 2021 kærðu einstaklingar er kveðast heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir M), og [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir K), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 25. mars 2021, um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda og barna þeirra, [...], fd. [...], ríkisborgara Íraks (hér eftir A), [...], fd. [...], ríkisborgara Íraks (hér eftir B) og [...], fd. [...], ríkisborgara Íraks (hér eftir C) um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Kærendur krefjast þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, í fyrsta lagi með vísan til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, og í öðru lagi með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Til vara gera kærendur kröfu um að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II.            Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi hinn 10. janúar 2021. Við leit að fingraförum kærenda í Eurodac gagnagrunninum, hinn 19. janúar 2021, kom í ljós að fingraför þeirra höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að þeim hafi verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi hinn 20. mars 2019. Með umsókn framvísuðu kærendur ferðaskilríkjum útgefnum af grískum yfirvöldum með gildistíma til 14. október 2024 og f.h. barna sinna með gildistíma til 14. og 15. október 2022. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun dagana 1. og 8. febrúar 2021, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað hinn 25. mars 2021 að taka ekki umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum hinn 30. mars 2021 og kærðu þau ákvarðanirnar hinn 13. apríl 2021 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst kærunefnd hinn 23. apríl 2021 ásamt fylgigögnum. Þá bárust viðbótargögn hinn 29. apríl 2021.

III.          Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendum hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærendur hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þau flutt til Grikklands.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barnanna A, B og C kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í málum foreldra þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum þeirra sé best borgið og þeim væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til Grikklands.

IV.          Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda kemur fram að kærendur hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að þau hafi dvalið í Grikklandi í tæp þrjú ár. M hafi greint frá því að hann væri blindur og að hann hafi ekki notið aðstoðar eða þjónustu frá grískum stjórnvöldum vegna fötlunar sinnar. Hann ætti erfitt með að dvelja í Grikklandi vegna umferðargatna og skorts á skipulagi og öryggi. Þá væri M með háþrýsting sem hafi komið í ljós við skoðun hér á landi. K hafi greint frá því að hún væri að glíma við brjósklos og að stundum væri hún svo verkjuð að hún ætti erfitt með daglegar athafnir. K ætti erfitt með að standa upp og ganga og gæti ekki sinnt hlutverki sínu heima né séð um börnin en hún taki lyf við þessum kvillum. Kærendur hafi greint frá því að dvöl fjölskyldunnar í flóttamannabúðunum í Grikklandi hafi reynst A erfið auk þeirrar mismununar sem hún hafi upplifað í skólakerfinu. Kærendur hafi greint frá því að staða þeirra hafi versnað gífurlega eftir að þeim hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Kærendur hafi einungis fengið tímabundið húsnæði og enga félagslega aðstoð. Kærendur hafi ekki haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu þrátt fyrir mikla þörf fyrir hana. Kærendur hafi ekki sótt um skattnúmer sökum peningaleysis. Þá hafi fjölskyldunni ekki staðið til boða aðstoð við að aðlagast samfélaginu í Grikklandi. Kærendur hafi mætt fordómum af hálfu Grikkja vegna stöðu þeirra sem flóttafólk og dætrum þeirra verið mismunað í skólakerfinu.

Kærendur krefjast þess að umsóknir þeirra verði teknar til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Íslenskum stjórnvöldum beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður umsækjenda og þær afleiðingar sem endursending gæti haft í för með sér fyrir þá, bæði líkamlegar og andlegar, auk þess að meta hvort umsækjendur séu einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Kærendur gera ýmsar athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar. Kærendur telja að einstaklingsbundið mat Útlendingastofnunar á stöðu fjölskyldunnar sé haldið annmörkum og eru ósammála mati stofnunarinnar á sérstaklega viðkvæmri stöðu þeirra. Kærendur vísa til þess að börn teljist ávallt til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd. Auk þess glími K við brjósklos og eigi erfitt með daglegar athafnir og M sé lögblindur á báðum augum. Þá sé M með háþrýsting og í sérstökum áhættuhópi vegna Covid-19 sökum þess. Stofnunin hafi metið M í viðkvæmri stöðu vegna lögblindu án frekari rökstuðnings. Stjórnvöldum beri að taka afstöðu til þess hvort M sé fatlaður einstaklingur þar sem hann njóti sérstakrar verndar samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Fatlað flóttafólk sæti mismunun í Grikklandi og sé ljóst að skilyrði 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 sé uppfyllt. Kærendur telja að Útlendingastofnun hafi brotið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 í máli þeirra og hafi virt það að vettugi að rannsaka stöðu fatlaðs fólks í Grikklandi. Þá gera kærendur athugasemd við mat Útlendingastofnunar á aðgengi þeirra að heilbrigðiþjónustu, félagsþjónustu, húsnæði, atvinnu og menntun fyrir börnin í Grikklandi. Þá vísa kærendur til þess að staða þeirra og barna þeirra sem handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi sé verulega síðri en almennings vegna fordóma og hatursorðræðu.

Kærendur vísa til þess að grundvallarreglan um hvað sé barni fyrir bestu skuli hafa að leiðarljósi. Kærendur telja að nálgun Útlendingastofnunar á hagsmunamati barnanna sé röng. Það liggi augum uppi að það sé börnunum ekki fyrir bestu að hafa ekki aðgengi að heimili, heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, framfærslu, menntun og atvinnu í framtíðinni en í Grikklandi bíði þeirra vonleysi, réttindaleysi, örbyrgð, öryggisleysi, fordómar og mismunun. Kærendur vísa til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU19110022 frá 25. mars 2020 þar sem lagt hafi verið fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn barnafjölskyldu sem hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi til efnismeðferðar. Kærendur telja ljóst að aðstæður í Grikklandi hafi ekki breyst til batnaðar frá því að fyrrnefndur úrskurður féll, hvorki hvað varðar stöðu flóttafjölskyldna í Grikklandi né hvað varðar áhrif Covid-19 faraldursins, sem gæti hrundið fordæmisgefandi gildi hans. Þá vísa kærendur jafnframt til úrskurðar kærunefndar nr. KNU19110050 frá 25. mars 2020 þar sem eitt barn kærenda hafi þurft á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu að halda og hafi kærunefnd metið að óvissa væri uppi um hvort kærendur myndu greiðlega og án tafar hafa aðgang að þeirri heilbrigðisþjónustu sem barn kærenda þyrfti á að halda. Þá vísa kærendur til ástandsins í Grikklandi í ljósi Covid-19 faraldursins og telja að aðstæður í Grikklandi hafi ekki breyst til batnaðar frá því að úrskurður nr. KNU20110005 frá 10. desember 2020 féll.

Þá byggja kærendur á því að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Endursending fjölskyldunnar til Grikklands teljist vera brot á 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og brot gegn grundvallarreglu þjóðarréttar um bann við endursendingu (non-refoulement).

Til vara gera kærendur kröfu um að Útlendingastofnun verði gert að taka mál þeirra til nýrrar meðferðar með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja á því að Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað stöðu fatlaðs flóttafólks í Grikklandi. Þá telja kærendur að Útlendingastofnun hafi borið að afla upplýsinga frá grískum yfirvöldum um hvort kærendur og börn þeirra hafi kennitölu og skattnúmer í Grikklandi. Kærendur vísa til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU20110019 frá 4. febrúar 2021 þar sem nefndin hafi komist að því að upplýsingar um kennitölu og skattnúmer hafi þurft að liggja fyrir við ákvarðanatöku í máli kæranda.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Réttarstaða barna kærenda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna, þ. á m. viðtöl við kærendur hjá Útlendingastofnun, og er það mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A, B og C sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A, B og C verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin A, B og C eru í fylgd foreldra sinna og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna var kærendum og börnum þeirra veitt alþjóðleg vernd hinn 20. mars 2019. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærendur og börn þeirra njóta í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2020 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 30. mars 2021);
  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
  • Amnesty International Report 2020/21 – Greece (Amnesty International, 7. apríl 2021);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 10. júní 2021);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 22. mars 2021);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Excluded and segregated – The vanishing education of refugee children in Greece (Refugee Support Aegean, 13. apríl 2021);

  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Leiðbeiningar fyrri einstaklinga með áhættuþætti fyrir alvarlegri COVID-19 sýkingu (Embætti landlæknis, 30. nóvember 2020);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingasíða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (https://help.unhcr.org/greece/living-in-greece/access-to-education/, sótt 1. júlí 2021);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 1. júlí 2021);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 1. júlí 2021);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 1. júlí 2021) og
  • World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifi oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2021 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa kennitalna (AMKA) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða kennitölu sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu kennitölu (AMKA) breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin ákveðin heilbrigðisþjónustunúmer sem sé tímabundið úrræði, meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefna kennitölu (AMKA) sem teljist varanlegt úrræði. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um kennitölu (AMKA) í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um kennitölu (AMKA) þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá kennitölu gefna út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur, en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið þurfi að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa kennitölu, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt framangreindri skýrslu er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Samkvæmt fyrrgreindri skýrslu ECRE geti handhafar alþjóðlegrar verndar sem glíma við fötlun í Grikklandi átt erfitt hvað varðar aðgengi að félagslegum bótum. Fyrst þurfa þeir að gangast undir skoðun hjá DAC (e. Disability Accreditation Centre) til að meta hvort örorka þeirra sé umfram 67%, til að eiga rétt á örorkubótum (e. Severe Disability Allowance). Jafnvel þó svo að það takist, geti orðið tafir á málsmeðferðinni.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Samkvæmt rannsókn frá árinu 2018 hafi meirihluti þeirra flóttamanna sem þá hafi verið starfandi verið í óskráðu starfi. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer, hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers er grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið er forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfa einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fer einungis fram á grísku en umsækjendur geta leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þarf að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjá um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu ECRE kemur fram að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi sama rétt til þess að ganga í skóla þar í landi og önnur grísk börn fram að 15 ára aldri. Þrátt fyrir það sé áætlað að einungis þriðjungur barna með alþjóðlega vernd hafi verið formlega skráður til náms á árunum 2018-2019. Í skýrslu Refugee Support Aegean (RSA) kemur fram að Covid-19 faraldurinn hafi haft slæm áhrif á menntun flóttabarna. Mörg börn hafi ekki náð að sækja skóla í meira en ár auk þess sem það hafi verið erfiðleikum bundið að skrá sig til náms. Jafnframt eigi stór hluti flóttabarna í erfiðleikum með fjarnám vegna tungumálaerfiðleika og skorts á nauðsynlegum búnaði.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verði ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Í skýrslu ECRE kemur fram að handhöfum alþjóðlegrar verndar í Grikklandi sé veitt dvalarleyfi til þriggja ára. Þá fái einstaklingar sem hafa hlotið viðbótarvernd, dvalarleyfi til eins árs sem sé hægt að framlengja að þeim tíma loknum til tveggja ára og sama gildi um þá sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna. Þá kemur fram að umsókn um framlengingu dvalarleyfis skuli fara fram ekki seinna en 30 dögum áður en leyfið renni út. Þrátt fyrir að umsókn um endurnýjun dvalarleyfis berist of seint kemur fram að það eitt og sér hafi ekki í för með sér að umsókninni verði synjað. Frá árinu 2017 hefur umsókn um endurnýjun farið fram í gegnum tölvupóst. Þeir einstaklingar sem ekki hafa aðgang að tölvu eða eru ólæsir hafi því mætt hindrunum við að fá endurnýjun á dvalarleyfum sínum. Þá kemur fram í skýrslunni að yfirleitt taki um einn og hálfan mánuð að fá dvalarleyfi endurnýjað þó dæmi séu um að endurnýjun hafi tekið um sex mánuði. Við endurnýjun fari fram skoðun á sakaskrá einstaklingsins. Ef dvalarleyfi rennur út á meðan einstaklingur bíður eftir endurnýjun eigi hann rétt á að fá útgefið vottorð sem gefi til kynna að hann hafi sótt um endurnýjun og er gilt í fjóra mánuði. Dæmi séu þó um að handhafar slíks vottorðs hafi átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi eins og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. Þá sé vinnumálastofnun Grikklands (e. Manpower Employment Organization (OAED)) gjarnan treg til að taka á móti slíkum vottorðum þar sem vottorðin séu m.a. án myndar af einstaklingnum og ekki vatnsmerkt.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málsins eru kærendur hjón á [...] með þrjú börn sem eru [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að hún sé með brjósklos sem hái henni í daglegu lífi en að andlegt heilsufar hennar sé gott. Í samskiptaseðli Göngudeildar sóttvarna, dags. 25. janúar 2021, kemur fram að K sé almennt heilbrigð. Í samskiptaseðli frá heilsugæslunni Keflavík, dags. 22. mars 2021, kemur fram að K hafi fengið ávísað verkjalyfjum við bakverkjum.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hann sé blindur og að það hefti hann í daglegum athöfnum og hafi slæm áhrif á andlega líðan hans. M líði illa yfir því að geta ekki sinnt hlutverki sínu sem foreldri. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 26. janúar 2021, kemur fram að M hafi mælst með háan blóðþrýsting og að hann hafi greint frá því að vera með augnsjúkdóm. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 6. apríl 2021, kemur fram að M hafi greint frá því að andleg heilsa hans hafi versnað og að sjónleysið hái honum mikið og valdi andlegri vanlíðan. Í gögnum frá Augnlæknastofunni Reykjanesbæ, dags. 26. janúar og 16. febrúar 2021, kemur fram að M sé blindur á báðum augum vegna sjónhimnusjúkdóms og þurfi talsverða hjálp varðandi hjálpartæki og umferli. Í bréfi félagsráðgjafa hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón og heyrnarskerðingu, dags. 23. mars og 16. apríl 2021, kemur m.a. fram að M sé lögblindur 2/60 á hægra auga og 6/60 á því vinstra. Þá sé hann bæði birtufælinn og náttblindur. Auk þess fari M ekki út á kvöldin þar sem hann sjái ekki í myrkri. M sjái illa misfellur og annað í umhverfinu. Fram kemur að M gæti nýtt sér ýmsa þjónustu á vegum miðstöðvarinnar og auk þess uppfylli hann skilyrði til örorkulífeyris hér á landi fái hann alþjóðlega vernd. Þá kemur fram að M þurfi á tilteknum hjálpartækjum að halda, s.s. gleraugum og þreifistaf. Þá liggur fyrir bréf frá Þroskahjálp og Blindrafélaginu, dags. 28. apríl 2021.

Kærendur greindu frá því í viðtali að heilsufar barnanna A, B og C sé gott en þau séu með tannvandamál. Þá hafi M greint frá því að andleg heilsa A hafi ekki verið góð eftir dvölina í flóttamannabúðunum. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 25. janúar 2021, kemur fram að A, B og C séu almennt heilbrigð börn. Þá kemur fram að A hafi greint frá sviða við þvaglát en ekki verið með þvagfærasýkingu. Þá hafi hún fengið verk fyrir hjartað í nokkur skipti. Hjartahlustun hafi verið eðlileg.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast.

Einstaklingsbundnum aðstæður kærenda og barna þeirra hefur þegar verið lýst, og m.a. sú aðstoð rakin sem kærendur hafa fengið hér á landi. Kærendur hafa m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli þeirra þar sem fjölskyldan verði útilokuð frá nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, félagslegri aðstoð, húsnæði og atvinnu. Þá sé M blindur á báðum augum og hafi hann ríka þjónustuþörf af þeim sökum en hann hafi sætt mismunun í Grikklandi vegna fötlunar sinnar. Þá vísa kærendur til þess að endursending fjölskyldunnar til Grikklands sé börnunum ekki fyrir bestu.

Aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi hafa þegar verið raktar. Kærendur eru með alþjóðlega vernd í Grikklandi og hafa m.a. greint frá bágum aðstæðum sínum þar í landi. Þau hafi t.a.m. haft takmarkaðan aðgang að heilbrigðisþjónustu, félagslegri þjónustu og orðið fyrir fordómum og mismunun í Grikklandi. Líkt og áður hefur komið fram hafa einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd að mestu sambærileg réttindi að lögum og grískir ríkisborgarar. Aftur á móti liggur fyrir að ýmsar hindranir eru á því að þeir geti sótt þessi réttindi. Til að mynda sé ljóst að börn eigi lagalegan rétt á menntun í Grikklandi en framangreind gögn benda til þess að yfirstíga þurfi ákveðnar stjórnsýsluhindranir til að skrá börn í skóla. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður í Grikklandi m.t.t. félagslegra bóta telur kærunefnd ljóst að þau skilyrði sem sett eru fyrir félagslegum bótum í Grikklandi geta valdið því að fjölskyldur með alþjóðlega vernd þar í landi geti átt erfitt með yfirstíga þær hindranir sem finna má í grísku stjórnkerfi er það varðar, og þar með framfleyta sér. Sem dæmi geti þau mætt hindrunum viðað nálgast gögn sem séu forsendur bótanna og þá geti verið bið eftir afgreiðslu umsókna. Þá séu í reynd engir aðrir styrkir en svokallaður KEA styrkur fyrir einstaklinga sem búi undir fátæktarmörkum. Til að sækja um þann styrk þurfi einstaklingar að sýna fram á skattnúmer, kennitölu, bankareikning og framvísa sönnun um búsetu eða vottorð um heimilisleysi. Þá geti handhafar alþjóðlegrar verndar sem glíma við fötlun í Grikklandi átt erfitt hvað varðar aðgengi að félagslegum bótum vegna skilyrða fyrir þeim og geti orðið talsverð bið eftir slíkum bótum. Jafnframt bera gögn um aðstæður í Grikklandi með sér að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd að vinnumarkaðnum sé erfitt, m.a. í ljósi mikils atvinnuleysis í landinu.

Þá telur kærunefnd að ljóst sé af framangreindri umfjöllun, að ýmsar hindranir séu á möguleikum flóttamanna til að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en líkt og áður hefur komið fram er númerið forsenda þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það sé því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Það er þó mat kærunefndar að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd mæti ýmsum hindrunum við umsókn um skattnúmer þá bendi skýrslur til þess að það sé þeim ekki ómögulegt. Kærendur greindu frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að þau hafi ekki sótt um skattnúmer í Grikklandi þar sem þau hafi ekki getað greitt fyrir það.

Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærendur hafi aðgang að endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu í Grikklandi, þ. á m. nauðsynlegum lyfjum og geðheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar en sækja þurfi um kennitölu til að fá aðgang að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi. Þrátt fyrir það þá benda framangreindar upplýsingar um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi til þess að það geti verið kærendum vandkvæðum bundið að sækja þá þjónustu m.a. vegna álags á gríska heilbrigðiskerfinu og þeirra hindrana sem þau kæmu til með að þurfa að yfirstíga. Enn fremur gætu orðið tafir á því að kærendur og börn þeirra fái aðgang að þeirri þjónustu og úrræðum sem þau þurfi á að halda. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 25. júní 2021, óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá kærendum um það hvort þau hefðu fengið útgefnar kennitölur í Grikklandi. Í svari frá kærendum, dags. 29. júní 2021, kom fram að kærendur hefðu ekki kennitölur. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér bera með sér að útgáfa kennitalna hafi falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu en að það sé þeim ekki ómögulegt.

Eins og að framan hefur verið rakið hafa einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi að formi til ýmis réttindi þar í landi, sem ekki eru þó í öllum tilvikum virk, m.a. vegna álags á inniviði í ríkinu. Kærendur eru hjón með þrjú börn á sínu framfæri. Þá er af gögnum málsins ljóst að M er lögblindur á báðum augum vegna augnsjúkdóms sem hái honum í daglegu lífi og hann þurfi talsverða hjálp varðandi hjálpartæki og umferli. Hann sé bæði birtufælinn og náttblindur. Líkt og áður hefur verið rakið hefur kærandi notið þjónustu hér á landi vegna augnsjúkdóms síns. Ljóst er af gögnum málsins að M hafi þörf fyrir slíka þjónustu og geti það verið vandkvæðum bundið fyrir hann að sækja sér hana í Grikklandi auk félagslegrar aðstoðar. Í ljósi framangreindra aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi og þá sérstaklega þegar litið er til stöðu M telur kærunefnd að ástæða sé til að ætla að kærendur séu í verri aðstöðu en aðrir til þess að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldunni og verða sér úti um húsnæði, og þar með tryggja grunnþarfir barna sinna. Í ljósi alls þess sem að framan er rakið er það mat kærunefndar, sérstaklega m.t.t. aðstæðna M og þarfar fjölskyldunnar á félagslegum stuðningi, auk núverandi aðstæðna í Grikklandi og framangreindra aðgangshindrana að grunnþjónustu og réttindum, að það sé ekki í samræmi við öryggi A, B og C, velferð þeirra og þroska að fara aftur til Grikklands þar sem óvissa sé með trygga framfærslu barnanna, húsnæði og aðgang þeirra að grunnþjónustu.

Samkvæmt framangreindu er það því niðurstaða kærunefndar að fyrir hendi séu sérstakar ástæður í máli þeirra sem mæla með því að mál þeirra verði tekið til efnismeðferðar hér á landi skv. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. sömu laga og 1. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, og tilvitnuð ákvæði reglugerðar um útlendinga.

Að framangreindu virtu og með vísan til sjónarmiða um einingu fjölskyldunnar er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um athugasemdir kærenda við ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda og barna þeirra til efnismeðferðar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicants´ and their children´s applications for international protection in Iceland.

 

 

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                                                                             Bjarnveig Eiríksdóttir

                                                                                             

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum