Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd %C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 83/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 9. febrúar 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 83/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23010047

Beiðni [...] og barns hennar um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Hinn 7. september 2022 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 27. júní 2022, um að taka umsóknir [...], fd. [...], ríkisborgara Nígeríu (hér eftir kærandi) og barns hennar [...], fd. [...], ríkisborgara Nígeríu, um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa þeim frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 8. september 2022.

Hinn 13. september 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa. Hinn 26. september 2022 hafnaði kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa. Hinn 24. janúar 2023 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd frá Útlendingastofnun 24. janúar 2023 og stoðdeild ríkislögreglustjóra 26. janúar 2023.

Af beiðni kæranda um endurupptöku má ráða að hún byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Beiðni kæranda um endurupptöku málsins byggir á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því að hún lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi, en tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á hennar ábyrgð. Með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skulu umsóknir kæranda og barns hennar því teknar til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar í máli nr. 580/2017, dags. 24. október 2017, máli sínu til stuðnings.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 24. janúar 2022 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti 24. janúar 2023. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hennar sjálfrar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Hinn 24. janúar 2023 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild. Sneri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort tafir væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Svar Útlendingastofnunar barst kærunefnd 24. janúar 2023 og svar stoðdeildar 26. janúar 2023.

Af framangreindum upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild má ráða að þær tafir sem hafi orðið á málinu hafi ekki verið af völdum kæranda. Að auki hefur kærunefnd farið yfir málsmeðferð í máli hennar og er að mati kærunefndar ekkert sem bendir til þess að hún verði talin bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsóknar sinnar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls framangreinds og samfelldrar dvalar kæranda hér á landi síðan hún lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 24. janúar 2022, er það mat kærunefndar að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hún eigi rétt á endurupptöku mál síns, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga, og er það niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Á grundvelli meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar ber einnig að fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barns kæranda. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn barnsins um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.


 

Úrskurðarorð:

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hennar.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda og barns hennar til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                    Gunnar Páll Baldvinsson


 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum