Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd %C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 478/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 1. desember 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 478/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22100048

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

  1. Málsatvik

    Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 3/2021, dags. 21. janúar 2021, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar frá 19. október 2020 um að taka ekki umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...]og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 25. janúar 2021.

    Hinn 3. september 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins. Var þeirri beiðni synjað af kærunefnd með úrskurði nr. 484/2021, dags. 21. október 2021. Þá barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku að nýju 18. október 2022.

    Beiðni kæranda um endurupptöku byggir á 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

     

  2. Málsástæður og rök kæranda

    Kærandi byggir beiðni sína um endurupptöku á tvíþættum grundvelli, annars vegar á því að aðstæður hafi breyst verulega frá því að ákvörðun var tekin í máli hans og hins vegar að ákvörðun í málinu hafi byggst á ófullnægjandi upplýsingum. Kærandi vísar til dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-351/2022 frá 13. október 2022. Dómurinn hafi slegið því föstu að ekki hafi verið réttmætt að leggja til grundvallar að umsækjandi í því máli bæri ábyrgð á þeirri töf sem varð á meðferð máls hans og leiddi til þess að ekki varð af flutningi innan 12 mánaðar frestsins sem kveðið sé á um í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

    Kærandi byggir í fyrsta lagi á því að hann hafi ekki verið upplýstur með formlegum og sannanlegum hætti á móðurmáli sínu um skyldur sínar gagnvart Útlendingastofnun og afleiðingar þess að mæta ekki í sýnatöku eða framvísa ekki bólusetningarvottorði. Kærandi vísar til þess að í máli hans liggi ekki fyrir fullnægjandi upplýsingar um hvernig staðið hafi verið að upplýsingagjöf af hálfu stoðdeildar ríkislögreglustjóra eða hvort túlkað hafi verið frá ensku eða íslensku yfir á móðurmál hans.

    Í öðru lagi byggir kærandi á því að það sé ekki í samræmi við 11. gr. laga um útlendinga að birta tilkynningu um frávísun frá Íslandi án nokkurs samráðs við lögmann viðkomandi aðila. Kærandi telur að dómur Héraðsdóms Reykjavíkur feli í sér áfellisdóm hvað varði birtingu og framkvæmd ákvarðana Útlendingastofnunar af hálfu stoðdeildar. Af dómnum megi ráða að það verklag sem hafi verið viðhaft gagnvart aðilum sem hafi ílengst hér vegna heimsfaraldurs, m.t.t. framkvæmdar um brottvísun hafi verið ófullnægjandi. Kærandi telur að endurupptaka þurfi mál hans vegna ófullnægjandi verklags. Kærandi telur því óásættanlegt að skella skuldinni á umsækjendur og synja þeim um efnismeðferð vegna ófullnægjandi verklags.

    Kærandi telur skýr og haldgóð rök fyrir því að 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga verði beitt í máli hans. Með hliðsjón af rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, meginreglu 11. gr. laga um útlendinga, hagsmunum þeim sem í húfi séu og hvernig nýfallinn dómur Héraðsdóms Reykjavíkur breyti niðurstöðu málsins sé ljóst að fullt tilefni sé til endurupptöku málsins.

  3. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum en ekki við komu til landsins. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 26. júlí 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti 26. júlí 2021. Hinn 3. september 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku á þeim grundvelli að meira en 12 mánuðir væru liðnir frá því hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi. Með úrskurði kærunefndar í máli nr. 484/2021, dags. 21. október 2021, var það niðurstaða kærunefndar að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hefðu verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Var því ekki fallist á beiðni kæranda um endurupptöku máls hans.

Í tengslum við fyrri endurupptökubeiðni kæranda barst kærunefnd tölvubréf frá stoðdeild 12. október 2021, þar sem fram kemur að 6. apríl 2021 hafi verið haft samband við kæranda en hann hafi ekki svarað. Honum hafi því verið send smáskilaboð á arabísku um að mæta í Bæjarhraun 18, daginn eftir klukkan tíu. Hinn 7. apríl 2021 hafi kærandi mætt og rætt hafi verið við hann með aðstoð túlks á arabísku. Kærandi hafi samþykkt að fara til Grikklands 10. apríl 2021 og honum tilkynnt að mæta á heilsugæsluna í Mjódd í Covid-19 sýnatöku, 9. apríl klukkan 8:20. Þá hafi verið gengið frá farmiðapöntun til Grikklands. Hinn 9. apríl 2021 hafi stoðdeild mætt fyrir utan heilsugæsluna í Mjódd en lögreglufulltrúinn á staðnum hafi þá fengið smáskilaboð frá kæranda þar sem hann hafi greint frá því að vilja ekki fara til Grikklands.

Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-351/2022 frá 13. október 2022, var það niðurstaða dómsins að þar sem stefnandi í því máli skildi takmarkaða ensku hefði verið fullt tilefni til að tryggja að hann skildi inntak Tilkynningar um framkvæmd ákvörðunar um frávísun frá Íslandi til Grikklands og mikilvægi þess að mæta til Covid-19 sýnatöku degi síðar. Að mati dómsins stæðist ekki grunnforsenda úrskurðarins um að stefnandi hefði tafið afgreiðslu málsins með því að mæta ekki í sýnatöku nema því yrði slegið föstu að stefnandi hefði áttað sig á því hvar og hvenær sýnatakan ætti að fara fram. Þá hafi neðanmálsgrein í fyrirliggjandi tilkynningu, sem fjallaði m.a. um hugsanlega ábyrgð stefnanda á töfum, einungis verið á íslensku. Samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga sé skylt að veita útlendingum leiðbeiningar um réttindi sín og meðferð máls á tungumáli sem ætla má með sanngirni að þeir geti skilið. Tók dómurinn fram að horfa yrði til íþyngjandi áhrifa þess að tafir á málsmeðferð væru taldar á ábyrgð umsækjanda um alþjóðlega vernd, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Dómurinn taldi því ekki réttmætt að leggja til grundvallar að stefnandi bæri ábyrgð á þeirri töf sem varð á meðferð máls hans og leiddi til þess að ekki varð af flutningi hans innan 12 mánaða frestsins. Hafi því úrskurður kærunefndar að þessu leyti verið byggður á efnisannmarka sem teljist verulegur. Af þeirri ástæðu var fallist á kröfu stefnanda um að ógilda úrskurð nefndarinnar frá 18. nóvember 2021 þar sem beiðni stefnanda var synjað um endurupptöku málsins.

Með tilliti til framangreinds telur kærunefnd að aðstæður kæranda í þessu máli séu ólíkar aðstæðum stefnanda í máli Héraðsdóms Reykjavíkur nr. E-351/2022 frá 13. október 2022. Í máli kæranda liggur fyrir að rætt hafi verið við kæranda með aðstoð túlks á arabísku þegar kærandi mætti á starfsstöð stoðdeildar ríkislögreglustjóra til að fá upplýsingar um flutning hans til viðtökuríkis og að bóka fyrir hann sýnatöku vegna hans. Þrátt fyrir að kæranda hafi verið tilkynnt um fyrirhugaða sýnatöku með aðstoð túlks mætti hann ekki til sýnatökunnar heldur sendi lögreglu smáskilaboð þar sem fram kom afstaða hans um hann vildi ekki fara til Grikklands. Með vísan til framangreinds telur kærunefnd að ætla megi að kærandi hafi skilið mikilvægi þess að mæta í Covid-19 sýnatöku og sýna samstarfsvilja við framkvæmd flutnings hans til Grikklands. Telur því kærunefnd að 11. gr. laga um útlendinga hafi verið uppfyllt í máli kæranda. Kærunefnd telur að lokum að 11. gr. laga um útlendinga leggi almennt ekki þá skyldu á stjórnvöld að kalla til lögmann þegar þau eiga í samskiptum við umsækjendur um alþjóðlega vernd og er þeirri málsástæðu kæranda því hafnað.

Að teknu tilliti til framangreinds er það mat kærunefndar að ekki sé hægt að fallast á að úrskurður kærunefndar frá 21. janúar 2021 hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða að atvik máls hafi breyst verulega frá því að úrskurðurinn var kveðinn upp, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Kærunefnd telur samkvæmt framansögðu að skilyrði 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga séu ekki uppfyllt. Kröfu kæranda um endurupptöku málsins er því hafnað.

Að öllu framangreindu virtu er kröfu kæranda um endurupptöku málsins því hafnað.


 

Úrskurðarorð:

 

Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

The appellant‘s request to re-examine the cases is denied.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

 

Sandra Hlíf Ocares                                                    Gunnar Páll Baldvinsson


 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum