Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd %C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 48/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 25. janúar 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 48/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU22120055

 

Beiðni um endurupptöku í máli [...]

 

  1. Málsatvik

    Hinn 23. júní 2022 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. apríl 2022, um að taka umsókn einstaklings er kveðst [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 27. júní 2022.

    Hinn 4. júlí 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar og synjaði kærunefnd beiðni kæranda 15. júlí 2022, með úrskurði kærunefndar nr. 275/2022. Hinn 15. desember 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins ásamt greinargerð. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd frá Útlendingastofnun 16. desember 2022.

    Af greinargerð kæranda má ætla að beiðni hans byggi á 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

  2. Málsástæður og rök kæranda

    Beiðni kæranda um endurupptöku málsins byggir á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því að hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi, en tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á hans ábyrgð. Með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skuli umsókn kæranda því tekin til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi vísar til þess að samkvæmt stjórnsýsluframkvæmd hafi afgreiðsla umsókna í skilningi framangreinds ákvæðis miðast við umsóknardag annars vegar og hins vegar þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda sé framkvæmd með flutningi til viðtökuríkis.

  3. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um endurupptöku stjórnsýslumáls

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 11. desember 2021 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti 11. desember 2022. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Hinn 15. desember 2022 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun um hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort þær væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í svari Útlendingastofnunar, dags. 16. desember 2022, kemur fram að kærandi hafi farið sjálfur til Grikklands 6. september 2022.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 19. desember 2022, var kærandi upplýstur um afstöðu Útlendingastofnunar og gefinn frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Í tölvubréfi frá talsmanni kæranda, sem barst þann sama dag, kom fram að hann gerði ekki ráð fyrir athugasemdum með tilliti til eðli málsins.

Líkt og að framan greinir fór kærandi sjálfur frá landi 6. september 2022, áður en 12 mánaða frestur sem áskilinn er í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga var liðinn. Í ljósi þess er það mat kærunefndar að afgreiðslu máls hans er lokið hér á landi og á hann því ekki rétt á efnismeðferð vegna tafa á afgreiðslu þess, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að synja beiðni kæranda um endurupptöku.

Í ljósi þess að endurupptökubeiðni kæranda barst kærunefnd 15. desember 2022, eftir að kærandi hafði farið frá landi innan 12 mánaða tímamarksins, telur kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku bersýnlega tilhæfulausa og gerir kærunefnd athugasemd við vinnubrögð talsmanns að þessu leyti.

Í ljósi framangreinds er því ekki fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Endurupptöku á máli hans er þar með hafnað.


 

Úrskurðarorð:

Kröfu kæranda er hafnað.

The appellant‘s request is denied.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                            Sandra Hlíf Ocares

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum