Hoppa yfir valmynd
K%EF%BF%BD%EF%BF%BDrunefnd %EF%BF%BD%EF%BF%BDtlendingam%EF%BF%BD%EF%BF%BDla

Nr. 345/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 7. september 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 345/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22070046

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 19. júlí 2022 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. júní 2022, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 21. desember 2021. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum 22. desember 2021, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Hinn 25. janúar 2022 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 23. febrúar 2022, kom fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi 13. maí 2020 og dvalarleyfi með gildistíma til 12. maí 2023. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun m.a. 27. janúar 2022, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 30. júní 2022 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 5. júlí 2022 og kærði kærandi ákvörðunina 19. júlí 2022 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 2. ágúst 2022 ásamt fylgigögnum.

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Kærandi fer yfir málsatvik í greinargerð sinni og vísar til viðtala hans hjá Útlendingastofnun og annarra gagna málsins. Kærandi þjáist af líkamlegum veikindum og sé m.a. með krabbamein í mænu og hafi farið í aðgerð á Indlandi vegna þess. Auk þess hafi kærandi verið pyndaður í heimaríki og m.a. þurft að fara í aðgerð á maga. Kærandi hafi leitast við að fá læknishjálp í Grikklandi án árangurs. Hann eigi að fara í segulómun á sex mánaða fresti vegna krabbameinsins og þurfi á sjúkraþjálfun að halda þar sem hann þjáist af verkjum. Þá hafi lögreglan í Grikklandi beitt hann harðræði og fordómum. Kærandi hafi ekki haft húsnæði eða heilbrigðisþjónustu í Grikklandi þrátt fyrir að þurfa mikið á því að halda. Kærandi hafi búið í tjaldi og fært sig reglulega um stað til að forðast líkamlegt áreiti af hálfu lögreglu í Grikklandi. Auk þess hafi hann ekki fengið fjármuni til framfærslu og ekki getað unnið vegna veikinda sinna og tungumálaörðugleika. Hann hafi þó þjálfað fólk í líkamsrækt og aflað einhverra fjármuna. Þá hafi kæranda verið neitað um fjölskyldusameiningu í Grikklandi sem hafi ollið honum kvíða og áhyggjum.

Kærandi telur að þrátt fyrir að hann hafi hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi og falli því undir a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sé ótækt að beita þeirri heimild í tilviki kæranda vegna þeirra líkamlegu og andlegu veikinda sem kærandi þjáist af og geti ekki fengið bráðnauðsynlega heilbrigðisþjónustu vegna. Þá vísar kærandi til þess að 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, kveði einungis á um heimild til handa stjórnvöldum til að synja kæranda um efnismeðferð en ekki skyldu. Meginregla laganna sé því að taka skuli allar umsóknir til efnismeðferðar, nema rétt þyki að beita undantekningarreglu laganna, en í samræmi við almennar lögskýringarreglur skuli undantekningarreglur túlkaðar þröngt. Taka skuli mál kæranda til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til athugasemda með frumvarpi því er varð að breytingarlögum nr. 115/2010, á þágildandi lögum um útlendinga, um sérstakar ástæður, og athugasemda við ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Sú viðbót sem komi fram í athugasemdum með 2. mgr. 36. gr. í núgildandi lögum um útlendinga leiði með skýrum hætti í ljós vilja löggjafans til að víkka út gildissvið ákvæðisins. Enda sé það í samræmi við meginreglu laganna um að umsóknir um alþjóðlega vernd skuli teknar til efnismeðferðar.

Þá byggir kærandi á því að mál hans skuli tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, í Grikklandi. Með endursendingu hans til Grikklands yrði brotið gegn meginreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement), sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Annars vegar sé kærandi í beinni hættu á að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð á Grikklandi (e. direct refoulment) og hins vegar óbeinni (e. indirect refoulment) vegna væntanlegrar endursendingar hans frá Grikklandi til heimaríkis. Hann óttist að vera sendur til heimaríkis þar sem hann hafi yfirgefið Grikkland og sótt um alþjóðlega vernd hér á landi. Að auki myndi slík endursending brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979 og 33. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna frá 28. júlí 1951.

Þá byggir kærandi málatilbúnað sinn á því að ekki sé tækt að endursenda hann til Grikklands, þar sem um kerfisbundinn galla sé að ræða á aðbúnaði og meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Kærandi hafi því ástæðuríkan ótta um að þar fái hann ekki þá nauðsynlegu heilbrigðisþjónustu sem hann þurfi á að halda. Þá vísar kærandi til heimilda sem hann telur að gefi til kynna að raunveruleg staða flóttamanna í Grikklandi sé slæm er varðar m.a. aðgengi að húsnæði, atvinnu og heilbrigðisþjónustu.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...] sem er staddur einsamall hér á landi. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að hann sé kvæntur og eigi tvö börn en þau séu stödd í heimaríki. Kærandi hafi fyrst lagt á flótta frá heimaríki sínu árið 2015 og farið til Indlands þar sem hann hafi dvalið í þrjú ár. Kærandi hafi farið aftur til heimaríkis en lagt á flótta öðru sinni árið 2019 til Tyrklands og þaðan til Grikklands. Kærandi hafi fengið alþjóðlega vernd í Grikklandi 13. maí 2020 og dvalið þar í landi þar til hann hafi sótt um alþjóðlega vernd hér á landi 21. desember 2021. Kærandi hafi ekki fengið húsnæði, atvinnu eða framfærslu eftir að hann hafi fengið alþjóðlega vernd í Grikklandi. Kærandi hafi þó starfað sem þjálfari þegar tækifæri gafst. Þá hafi kærandi fengið takmarkaða heilbrigðisþjónustu og þurft að greiða fyrir lyf sjálfur. Samkvæmt gögnum málsins má þó sjá að kærandi hafi farið í segulómun í Grikklandi. Þá forðist kærandi grísku lögregluna sem hafi beitt hann ofbeldi. Samkvæmt framlögðum heilsufarsgögnum er kærandi með æxli í neðri hluta brjóstgangs. Ummerki séu um að kærandi hafi farið í aðgerð og geislameðferð. Samkvæmt eftirliti hafi ekki orðið breyting á æxli og ekki þörf á inngripi. Þá hefur kærandi greint frá andlegri vanlíðan.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi 13. maí 2020 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 12. maí 2023. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum: gögnum:

  • 2021 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 12. apríl 2022);
  • Amnesty International Report 2021/22 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 29. mars 2022);

  • Annual report 2020 (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2020);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 30. maí 2022);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 31. mars 2022);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

  • Freedom in the World 2022 – Greece (Freedom House, febrúar 2022);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;

  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/, sótt 7. september 2022);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 7. september 2022);
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 7. september 2022);

  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 7. september 2022) og
  • World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslum European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá í maí 2022 og Passerell frá nóvember 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir flóttafólk þurfa einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa almannatrygginganúmer, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt skýrslu ECRE er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.

Samkvæmt skýrslum ECRE og Passerell hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Í fyrrnefndri skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa réttarstöðu flóttamanns í Grikklandi geti sótt um fjölskyldusameiningu. Þá kemur fram að einstaklingur sem ekki sé í hjúskap en sannanlega sé í sambandi með einstaklingi sem hlotið hafi réttarstöðu flóttamanns eigi rétt á fjölskyldusameiningu en færa þurfi sönnur fyrir sambandinu. Þá má einnig ráða af framangreindum skýrslum að grísk stjórnvöld hafi verið gagnrýnd fyrir skorður á möguleikum einstaklinga sem hlotið hafi alþjóðlega vernd til fjölskyldusameiningar í Grikklandi. Kemur þar m.a. fram að samkvæmt grískum lögum eigi einstaklingar sem hlotið hafi viðbótarvernd í Grikklandi ekki rétt á fjölskyldusameiningu og þá séu ýmsar hömlur fyrir þá sem séu með réttarstöðu flóttamanns, m.a. vegna langs afgreiðslutíma umsókna, kröfu stjórnvalda til framlagningar gagna og erfiðleika við útgáfu vegabréfsáritana fyrir fjölskyldumeðlimi þegar umsókn hafi verið samþykkt.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er karlmaður á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun hefur kærandi greint frá því að hann sé með krabbamein og hafi farið í aðgerð á baki vegna þess. Þá hafi kærandi orðið fyrir pyndingum og m.a. verið stunginn í magann og pyndaður með rafmagni. Kærandi þjáist vegna framangreindra áverka og geti ekki unnið. Þá sé andleg heilsa hans ekki góð og hann hugsi mikið til fjölskyldu sinnar. Vegna þessa þurfi hann að fara í sjúkraþjálfun og segulómun á sex mánaða fresti. Samkvæmt komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 13. og 17. janúar 2022, hafi kærandi greint frá því að hann hafi greinst með æxli í hrygg á Indlandi árið 2015 sem hafi verið skorið upp og hann farið í geislameðferð. Kærandi sé verkjaður í baki, eigi erfitt með gang og finni fyrir máttleysi í ganglimum. Þá greindi kærandi frá því að jaxlar hafi verið dregnir úr honum sem pyndingaraðferð í heimaríki og hann sé með verki í kjálka. Kærandi eigi erfitt með svefn og fái martraðir. Kæranda hafi verið vísað í frekari skoðun vegna æxlis og bókaður hafi verið tími hjá sálfræðingi.

Samkvæmt læknisvottorði frá heilsugæslunni í Keflavík, dags. 16. febrúar 2022, leitaði kærandi þangað 1. febrúar 2022 vegna aukins verks í baki og vinstri fæti. Kærandi hafi verið dofinn í báðum fótleggjum og greint frá því að liðið hafi yfir hann vegna verkja. Bókaður hafi verið tími fyrir kæranda í segulómun. Þá hafi kærandi farið í blóðrannsókn þar sem í ljós hafi komið að kærandi væri með B12 skort. Samkvæmt niðurstöðu úr segulómun 8. febrúar 2022, kemur m.a. fram að segulómun af hálshrygg og mænugangi hafi ekki sýnt fram á fyrirferð í mænu, sjúklega skuggaefnisupphleðslu eða hryggþófahlaup (e. prolaps). Þá hafi segulómun af brjósthrygg leitt í ljós æxli í neðri hluta brjóstgangs um 12,5 cm í þvermáli aftan við liðbolinn. Ummerki séu um að kærandi hafi farið í aðgerð og geislameðferð. Segulómun af mjóbaki sýni sama æxli og þar sé lækkun á liðþófa L5-S1 og örlítil afturbungun sem ekki valdi neinum þrýsting á taugavef. Að öðru leyti sé eðlilegt rými í mænugangi. Tilvísun hafi verið send á heila- og taugalækni vegna mats um frekari meðferð og/eða rannsóknir.

Samkvæmt samskiptaseðli frá sálfræðingi á Göngudeild sóttvarna, dags. 15. mars 2022, greindi kærandi frá því að honum liði vel en hann væri einangraður. Kærandi hafi orðið fyrir miklu ofbeldi sem hafi áhrif á hann en ekkert bendi til að árifin séu óeðlileg. Kærandi sé í óvissu sem honum finnist erfitt og hann hafi áhyggjur af börnunum sínum sem eru í heimaríki. Farið hafi verið yfir hvað hann gæti gert til að komast í gegnum þetta tímabil.

Samkvæmt læknabréfi frá 16. maí 2022 var segulómun frá 8. febrúar 2022 metin. Óklárt sé hvers eðlis æxlið sé en engin ástæða sé til frekari meðferðar að svo stöddu. Ákveðið hafi verið að kalla kæranda í frekari skoðun og skipuleggja frekara eftirlit sem ekki sé þörf á að gera á sex mánaða fresti. Í göngudeildarskrá frá heila- og taugaskurðlækni, dags. 9. júní 2022, er saga kæranda rakin. Hann hafi verið greindur með fágripluæxli (e. oligodendroglioma) í mænu og farið í aðgerð á Indlandi í apríl 2015. Eftir aðgerð hafi hann fengið vökvasöfnun á skurðsvæði og vökvasöfnun hafi verið stöðvuð. Þá hafi hann farið í geislameðferð í lok árs 2015. Kærandi hafi verið í eftirliti á sex mánaða fresti og farið til lækna í Grikklandi og Tyrklandi þar sem hann hafi m.a. fengið sterasprautur. Kærandi hafi hætt því vegna kostnaðar. Reglulegt eftirlit hafi ekki sýnt stækkun á æxli. Kærandi sé í raun og veru í góðu ástandi miðað við útlit æxlis og hefur ekki farið aftur undanfarið. Þá hreyfi kærandi sig eðlilega en geti ekki gert flóknari hreyfingar með fótum. Ekki sé þörf á inngripi. Engar skurðaðgerðir komi til greina þar sem skurðaðgerð til að fjarlægja meira af æxli myndi leiða til algerrar lömunar í fótum. Auk þess virðist æxlið hafa haldið sér algerlega eftir geislameðferð. Kærandi sé búinn að vera í sex mánaða eftirliti sem sé of þétt eftir svona langan tíma og engin ástæða sé til að halda því áfram. Þar sem einkenni hafi verið nokkuð góð og komin séu sjö ár frá aðgerð sé ekki ástæða til reglubundins eftirlits nema einstaka sinnum á vegum heila- og taugaskurðlækna. Einu einkennin sem séu nýtilkomin hjá kæranda séu vöðvatengd í hálsi og herðum. Bókuð hafi verið mynd í febrúar 2023 til að fylgja æxlinu eftir en að öðru leyti þurfi kærandi ekki sérhæfða meðferð eða frekara eftirlit og ólíklegt sé að æxlið muni hreyfa sig eða stækka þegar svona langt sé liðið frá meðferðinni.

Á meðal gagna málsins eru jafnframt heilsufarsgögn frá Indlandi um aðgerð á mænu og Grikklandi um segulómun og lyfjaávísun. Auk þess liggur fyrir beiðni um sjúkraþjálfun dags. 1. apríl 2022, þar sem fram kemur að sjúkraþjálfun hafi áður hjálpað kæranda við verkjum.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun 27. janúar 2022, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 19. júlí 2022, um framlagningu frekari gagna í málinu. Kærandi lagði fram gögn með greinargerð sinni 2. ágúst 2022. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar hans og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Þá hefur kærandi, samkvæmt eigin frásögn og gögnum málsins, fengið heilbrigðisþjónustu í viðtökuríki og m.a. farið í segulómun þar í landi vegna æxlis.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hafa ekki fengið húsnæði eða atvinnu í Grikklandi. Þá hafi hann aðeins fengið félagslega framfærslu áður en hann hafi fengið alþjóðlega vernd í Grikklandi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, eins og áður sagði. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hann á að lögum rétt á og þarf á að halda í Grikklandi. Í gögnum málsins kemur fram að kærandi hafi haft atvinnu í viðtökuríki og haft húsnæði á leigu þar. Líkt og komið hefur fram eiga handhafar alþjóðlegar verndar í Grikklandi sem búa undir fátæktarmörkum m.a. rétt á fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna.

Í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051 er fjallað um skattnúmer í Grikklandi. Skattnúmer er nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Í því máli sem hér er til meðferðar hefur kærandi greint frá því að hann hafi skatt og almannatrygginganúmer í Grikklandi. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi sé fær um að sækja sér þá þjónustu sem hann þarf á að halda í viðtökuríki.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hann hafi orðið fyrir fordómum og ofbeldi í Grikklandi m.a. af hendi lögreglu. Af framangreindum gögnum má ráða að flóttafólk hafi orðið fyrir fordómum í Grikklandi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Þá bera framangreind gögn með sér að kærandi geti lagt fram kvörtun um meint ofbeldi lögreglu til umboðsmanns Grikklands þar sem slík brot eru rannsökuð. Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hann geti vænst þess að staða hans, í ljósi sömu aðstæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Með vísan til framangreinds, þ.m.t. þeirra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, telur nefndin ljóst að verulega hafi dregið úr þeirri óvissu sem til staðar var í upphafi Covid-19 faraldursins og að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi hafi skerst á síðustu mánuðum þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá er bólusetning langt á veg komin í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu. Þá hefur kærandi greint frá því að vera tvíbólusettur.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 27. janúar 2022 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína 21. desember 2021.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.

Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og mat stofnunarinnar á stöðu kæranda.

Þá byggir kærandi á því að hann óttist að vera sendur til heimaríkis þar sem hann hafi yfirgefið Grikkland og sótt um alþjólega vernd hér á landi. Í málinu liggur fyrir svar frá grískum yfirvöldum, dags. 23. febrúar 2022, þar sem fram kemur að kærandi hafi fengið alþjóðlega vernd þar í landi og sé með dvalarleyfi til 12. maí 2023. Því telur kærunefnd tryggt að kærandi verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Hvað varðar tilvísun kæranda til dóma Mannréttindadómstóls Evrópu frá 21. janúar 2011 í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi og í máli Tarakhel gegn Sviss frá 4. nóvember 2012, vísar kærunefnd til þess að hún hafi ítrekað í úrskurðarframkvæmd sinni fjallað um þann mun sem er á stöðu einstaklinga með virka alþjóðlega vernd í Grikklandi og þeirra sem falla undir gildissvið Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærunefnd áréttar að ekki er um sambærileg tilvik að ræða og því eigi tilvísun kæranda til framangreindra dóma ekki við.

Að öðru leyti hefur kærunefnd farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands 21. desember 2021. Hann sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                             Sandra Hlíf Ocares

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum