Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd velfer%C3%B0arm%C3%A1la - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 574/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 571/2022

Fimmtudaginn 12. janúar 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 6. desember 2022, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. desember 2022, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. desember 2021 og var umsóknin samþykkt 19. janúar 2022. Þann 10. október 2022 var kæranda tilkynnt að The Tin Can Factory myndi boða hann á námskeið í íslensku. Kæranda var greint frá því að 80% skyldumæting væri á námskeiðið og að boða yrði öll forföll/veikindi. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 30. nóvember 2022, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til þess að hafa ekki mætt á boðað námskeið. Skýringar bárust frá kæranda 1. desember 2022. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. desember 2022, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 6. desember 2022. Með bréfi, dags. 12. desember 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 14. desember 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 16. desember 2022. Athugasemdir og frekari gögn bárust frá kæranda 17. desember 2022.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að þar sem hann hafi ekki mætt á íslenskunámskeið verði hann beittur viðurlögum til tveggja mánaða. Fyrir byrjun námskeiðsins hafi kærandi sent Vinnumálastofnun bréf til að lýsa vinnutímum sínum. Kærandi vinni í tvær vikur frá klukkan 09:00 til 12:00 og í tvær vikur frá klukkan 12:00 til 15:00 í hverjum mánuði. Hann hafi því ekki komist á námskeiðið þar sem hann starfi á sömu tímum og þegar námskeiðið hafi verið haldið.

Vinnumálastofnun hafi svarað erindi kæranda og sagt að nóg væri fyrir hann að mæta á námskeiðið þegar hann kæmist vegna vinnu en námskeiðið sé kennt á morgnana. Þegar kærandi sé í vinnu eftir hádegi komist hann þó ekki á námskeiðið því að hann þurfi að ferðast með strætó til vinnu klukkan 11:00. Kærandi viti því ekki hvernig hann eigi bæði að mæta á námskeiðið og í vinnuna.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 1. desember 2021. Með erindi, dags. 19. janúar 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Kærandi hafi verið boðaður á íslenskunámskeið hjá The Tin Can Factory sem haldið hafi verið á tímabilinu 17. október til 10. nóvember 2022. Með tölvupósti og smáskilaboðum, sem send hafi verið af hálfu Vinnumálastofnunar þann 10. október 2022, hafi kæranda verið gefnar upplýsingar um að The Tin Can Factory myndi boða kæranda á námskeið sem myndi henta fyrir hann og að 80% skyldumæting væri á umrætt námskeið. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar til The Tin Can Factory eða með tölvupósti á netfangið [email protected].

Kærandi hafi ekki boðað forföll á námskeiðið. Þann 30. nóvember 2022 hafi kæranda verið boðið að skila skriflegum skýringum á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt á umrætt námskeið. Vinnumálastofnun hafi óskað eftir skriflegum skýringum á ástæðum þess af hverju hann hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið. Samkvæmt skýringum kæranda hafi hann ekki mætt þar sem hann hafi farið í 37,5% vinnu og að hann færi í vinnuna á morgnana á sama tíma og námskeiðið væri haldið. Þar af leiðandi hafi hann ekki getað mætt á umrætt námskeið. Kærandi lýsi því að hafa látið kennarann vita um þessa stöðu frá byrjun námskeiðsins. Þá vísi kærandi til tölvupósts frá kennara námskeiðsins. Þar hafi kennarinn sagt að kærandi þyrfti einungis að mæta á námskeiðið þegar hann væri ekki að vinna og að tillit yrði tekið til þess við skráningu á mætingu.

Skýringar kæranda hafi ekki verið metnar gildar. Vinnumálastofnun hafi fjallað um mál kæranda á fundi þann 5. desember 2022. Á grundvelli fyrirliggjandi gagna hafi bótaréttur kæranda verið felldur niður í tvo mánuði sem ella hefði verið greitt atvinnuleysisbætur fyrir með vísan til 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Í 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Í a-lið 1. mgr. 13. gr. sé kveðið á um það skilyrði að atvinnuleitandi skuli vera í virkri atvinnuleit. Samkvæmt h-lið 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun bjóði upp á. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Atvinnuleitendum beri samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr. sömu greinar, þar á meðal um tilfallandi veikindi og fjarveru á boðaðan fund, án ástæðulausrar tafar. Ljóst sé af ákvæði 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að atvinnuleitandi beri tilkynningarskyldu gagnvart Vinnumálastofnun. Það sé forsenda þess að stofnunin geti sinnt eftirlitshlutverki sínu.

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé fjallað um þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé hafnað. Í 1. mgr. 58. gr. segi orðrétt:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi meðal annars að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Vinnumálastofnun árétti að eitt af skilyrðum laga um atvinnuleysistryggingar sé að atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit. Í virkri atvinnuleit felist að atvinnuleitendur þurfi að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða og beri atvinnuleitanda skylda til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun bjóði upp á.

Fyrirliggjandi sé að kærandi hafi verið skráður á íslenskunámskeið á vegum The Tin Can Factory á tímabilinu 17. október til 10. nóvember 2022. Námskeiðið hafi verið haldið mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 9:30 til 12:15. Kærandi sé skráður í 37% starf hjá sínu eigin fyrirtæki. Kærandi gefi upp til stofnunarinnar að vinnutími sinn sé frá 09:00 til 12:00 í tvær vikur og frá 12:00 til 15:00 næstu tvær vikurnar. Jafnvel þó að námskeiðshaldari hafi gefið vilyrði fyrir því að kærandi fengi að mæta þegar hann væri ekki í vinnunni telji stofnunin ekki unnt að líta fram hjá þeirri staðreynd að kærandi hafi aldrei mætt á umrætt námskeið. Vinnumálastofnun telji að kæranda hafi verið í lófa lagið að mæta á umrætt námskeið þegar hann hafi ekki verið í vinnu hjá eigin fyrirtæki. Mat Vinnumálastofnunar sé að gera verði þær kröfur til atvinnuleitenda að mæting þeirra í vinnumarkaðsúrræði sé fullnægjandi og að atvinnuleitendur hafi vilja og getu til að mæta til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum. Því verði ekki fallist á að atvinnuleitandi geti virt boðanir í vinnumarkaðsúrræði að vettugi af því hann sé að sinna 37% hlutastarfi hjá eigin fyrirtæki.

Með vísan til þess sem að framan greini og hinnar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem standi þeim til boða í atvinnuleit sinni séu skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hafi verið fjarverandi á umrætt námskeið ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Niðurstaða Vinnumálastofnunar sé sú að réttilega hafi verið staðið að ákvörðun stofnunarinnar um að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kæranda var þann 10. október 2022 tilkynnt að The Tin Can Factory myndi boða hann á námskeið í íslensku sem yrði haldið á tímabilinu 17. október til 10. nóvember 2022. Kæranda var greint frá því að 80% skyldumæting væri á námskeiðið og að boða yrði öll forföll/veikindi til The Tin Can Factory eða á netfangið [email protected]. Daginn fyrir fyrsta dag námskeiðsins tilkynnti kærandi Vinnumálastofnun að hann gæti ekki mætt á námskeiðið þar sem hann væri að sinna hlutastarfi þar sem vinnutíminn væri breytilegur. Kærandi væri að vinna í tvær vikur frá klukkan 9 til 12 og í tvær vikur frá klukkan 12 til 15. Þann 20. október 2022 fékk kærandi það svar að hann yrði að mæta þegar hann væri ekki að vinna. Það yrði tekið tillit til þess að hann væri í hlutastarfi við mætingarskráningu. Fyrir liggur að kærandi mætti aldrei á námskeiðið.    

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í vinnumarkaðsúrræði sem honum var gert að sækja. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. desember 2022, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum