Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd velfer%C3%B0arm%C3%A1la - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 255/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 255/2020

Fimmtudaginn 27. ágúst 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 26. maí 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála bréf Vinnumálastofnunar, dags. 15. maí 2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 26. maí 2020. Meðfylgjandi kæru var bréf Vinnumálastofnunar, dags. 15. maí 2020, þar sem óskað var eftir tilteknum upplýsingum frá kæranda. Með erindi úrskurðarnefndar til kæranda 4. júní 2020 var óskað eftir afriti af endanlegri ákvörðun Vinnumálastofnunar og vísað til þess að bréf stofnunarinnar frá 15. maí 2020 væri einungis beiðni um frekari upplýsingar. Ekkert svar barst frá kæranda.

Með erindi úrskurðarnefndar til Vinnumálastofnunar 19. ágúst 2020 var óskað eftir upplýsingum um hvort stofnunin hefði tekið ákvörðun í máli kæranda. Svar barst samdægurs og afrit af ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. júní 2020, þar sem kæranda var tilkynnt að umsókn hans hefði verið hafnað.

II.  Niðurstaða

Samkvæmt 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal nefndin úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar. Um stjórnvaldsákvörðun er að ræða þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um rétt eða skyldur manna í skjóli stjórnsýsluvalds, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga segir að ákvörðun, sem ekki bindur enda á mál, verði ekki kærð til æðra stjórnvalds fyrr en málið hefur verið til lykta leitt. Ákvarðanir sem teknar eru um meðferð stjórnsýslumáls og fela ekki í sér endalok málsins, svokallaðar formákvarðanir, verða því ekki kærðar til úrskurðarnefndarinnar.

Samkvæmt gögnum málsins lá ekki fyrir stjórnvaldsákvörðun í máli kæranda þegar kæra barst úrskurðarnefndinni. Að því virtu og í samræmi við 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga er það mat úrskurðarnefndarinnar að málið sé ekki tækt til efnismeðferðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála. Úrskurðarnefndin bendir á að kærandi getur lagt inn nýja kæru til úrskurðarnefndarinnar vegna ákvörðunar Vinnumálastofnunar frá 29. júní 2020, innan þriggja mánaða frá því að honum var tilkynnt um þá ákvörðun. 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

                                                                                                                                                                                           Kári Gunndórsson

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum