Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 504/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 7. desember 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 504/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22110008

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 3. nóvember 2022 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Sýrlands ( hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. október 2022, um að synja honum um ótímabundið dvalarleyfi á grundvelli e-liðar 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi hefur ekki sett fram kröfur í málinu en í ljósi framkominnar kæru má ætla að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt ótímabundið dvalarleyfi hér á landi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.            Málsatvik og málsmeðferð

Kæranda var veitt viðbótarvernd hér á landi á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga var honum veitt dvalarleyfi samkvæmt 73. gr. laganna, sbr. 1. mgr. 45. gr. sömu laga. Kærandi fékk fyrst útgefið dvalarleyfi á grundvelli viðbótarverndar 11. desember 2017 og hefur það verið endurnýjað einu sinni, nú síðast með gildistíma til 4. nóvember 2026. Hinn 22. nóvember 2021 lagði kærandi fram umsókn um ótímabundið dvalarleyfi. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. október 2022, var umsókn kæranda synjað.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar voru skilyrði fyrir útgáfu ótímabundins dvalarleyfis rakin, sbr. 58. gr. laga um útlendinga. Meðal skilyrða væri að útlendingur ætti ekki ólokið mál í refsivörslukerfinu þar sem hann væri grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi, sbr. e-lið 1. mgr. 58. gr. Fram kom að samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá 14. september 2022 væri kærandi með ólokið mál í refsivörslukerfinu þar sem hann væri grunaður um refsiverðan verknað. Þar sem kærandi uppfyllti ekki fyrrnefnt skilyrði e-liðar 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga var umsókn hans um ótímabundið dvalarleyfi synjað.

Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála 3. nóvember 2022. Með tölvubréfi, dags. 23. nóvember 2022, óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um það hvort kærandi ætti ólokin mál í refsivörslukerfinu. Í svari frá lögreglunni, dags. sama dag, kom fram að kærandi ætti ólokið mál í refsivörslukerfinu vegna ætlaðs brots gegn lögum um útlendinga. Með tölvubréfi, dags. 25. nóvember 2022, var kæranda veitt tækifæri til að koma að andmælum vegna svars Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í tölvubréfi frá talsmanni kæranda, dags. 25. nóvember 2022, kemur fram að kærandi kannist ekki við að hafa gerst brotlegur gegn lögum um útlendinga. Hann hafi því ekki raunverulegan kost á því að una beiðni nefndarinnar um að tjá sig um efnið frekar þar sem hann hafi ekki verið upplýstur um sakarefnið. Vísaði kærandi í því samhengi til 12. gr. laga um útlendinga og 13. gr. stjórnsýslulaga. 

III.       Málsástæður og rök kæranda

Eins og að framan greinir lagði kærandi ekki fram greinargerð fyrir kærunefnd í málinu. Kærunefnd hefur farið yfir öll gögn málsins.

IV.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 58. gr. laga um útlendinga er fjallað um ótímabundið dvalarleyfi. Samkvæmt 1. mgr. 58. gr. er heimilt að veita útlendingi ótímabundið dvalarleyfi hafi hann dvalist hér á landi samfellt síðustu fjögur ár samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Eins og að framan greinir hefur kærandi dvalið hér á landi samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins leyfis síðan 11. desember 2017.

Frekari skilyrði fyrir veitingu ótímabundins dvalarleyfis eru m.a. tilgreind í stafliðum a-e í 1. mgr. 58 gr. laga um útlendinga. Samkvæmt e-lið er það skilyrði að útlendingur eigi ekki ólokið mál í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi.

Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, dags. 23. nóvember 2022, á kærandi ólokið mál í refsivörslukerfinu vegna ætlaðs brots gegn lögum um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir veitingu ótímabundins dvalarleyfis og verður hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar því staðfest.


 

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

Gunnar Páll Baldvinsson                                                                                             Bjarnveig Eiríksdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum