Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 358/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 12. ágúst 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 358/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21060053

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 24. júní 2021 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 11. júní 2021, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi, aðallega á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og til vara á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 13. september 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 18. september 2020, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að honum hefði verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi þann 11. október 2019. Við umsókn framvísaði kærandi grísku dvalarleyfisskírteini með gildistíma frá 11. október 2019 til 10. október 2022 og grísku flóttamannavegabréfi með gildistíma til 28. júní 2025. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, þann 7. október 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 15. desember 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Kærði kærandi ákvörðunina þann 4. janúar 2021 til kærunefndar útlendingamála. Þann 4. mars 2021 var ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 12. maí 2021. Með ákvörðun, dags. 11. júní 2021, synjaði Útlendingastofnun öðru sinni að taka mál kæranda til efnismeðferðar. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 15. júní 2021. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar þann 24. júní 2021. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 24. júní 2021.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi ekki haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi eftir að hann hlaut alþjóðlega vernd í þar í landi og honum hafi ítrekað verið vísað frá. Kærandi hafi einu sinni hitt lækni, en aðeins fengið ávísuðum verkjalyfjum í þeirri heimsókn. Kærandi hafi gert ítrekaðar tilraunir til þess að sækja um kennitölu, en alltaf verið vísað frá vegna Covid-19 faraldursins. Þá kvaðst hann ekki vita hvað skattnúmer væri, og hann hafi ekki fengið leiðbeiningar um mikilvægi þess og hvernig þyrfti að bera sig að við að sækja um það. Samskipti kæranda við embættismenn í Grikklandi hafi aðeins farið fram á grísku, en hann tali hvorki né skilji tungumálið. Kærandi hafi greint frá því að hann væri afar verkjaður og andleg heilsa hans væri farin að líða fyrir endalausa verki og svefnleysi. Kæranda hafi verið ávísað verkjalyfjum hér á landi en þau hafi ekki dugað til að slá á verkina.

Kærandi gerir athugasemd við ályktun Útlendingastofnunar um möguleika hans á að öðlast kennitölu í Grikklandi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi svarað því staðfastlega að hann hafi reynt að skila inn umsókn um kennitölu en ekki haft erindi sem erfiði og honum ítrekað vísað frá vegna Covid-19 faraldursins. Kærandi telur að Útlendingastofnun geri vísvitandi lítið úr þeim tilraunum hans til að afla sér upplýsinga og nýta sér þau réttindi sem felist í verndarveitingu. Kærandi vísar til þess að í fyrsta lagi þurfi að leiðbeina aðilum um tilvist skattnúmers og mikilvægi þess og í öðru lagi þurfi að hafa lögheimili til að skrá nafn sitt á til þess að hafa möguleika á að öðlast skattnúmer, en það hafi kærandi ekki. Kærandi hafi verið heimilislaus í Grikklandi og heimildir beri með sér að aðgengi að gistiskýlum fyrir heimilislausa í Grikklandi sé örðugt. Kærandi vísar til þess að stór hluti heimilislauss flóttafólks sé því ógerlegt að útvega vottorð um heimilisleysi. Því sé kæranda ómögulegt að verða sér úti um kennitölu og skattnúmer enda sé sönnun dvalarstaðar skilyrði útgáfu þeirra beggja. Þá telur kærandi óforsvaranlegt að Útlendingastofnun vísi til þess í ákvörðun sinni að frásögn kæranda sé ótrúverðug. Kærandi vísar til þess að heimildir beri með sér að flóttafólki í Grikklandi sé nánast ómögulegt að njóta réttinda sinna í reynd, þrátt fyrir að lög geri ráð fyrir því. Kærandi telur að gera verði þá kröfu að Útlendingastofnun geri greinarmun á því sem sé raunverulega til staðar og því sem ætti að vera til staðar samkvæmt lögum. Kærandi telur með vísan til framangreinds að draga megi þá ályktun að sú meðferð sem kærandi þurfi á að halda sé honum aðgengileg hér á landi en standi honum ekki raunverulega til boða í viðtökuríki. Kærandi telur með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 276/2018 að fyrir hendi séu sérstakar ástæður í máli hans sem leiði til þess að taka skuli máls hans til efnismeðferðar hér á landi.

Kærandi telur rannsókn Útlendingastofnunar á einstaklingsbundinni stöðu hans vera verulega áfátt og telur að mat á stöðu hans hafi ekki verið framkvæmt í samræmi við lög. Kærandi gerir athugasemd við þá staðhæfingu Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki leitað á náðir heilbrigðisstofnana til annars en að fá endurnýjun á verkjalyfjum. Hið rétta sé að kærandi hafi ítrekað óskað eftir að komast í aðgerð á fótum, í sjúkraþjálfun og aðgang að hjálpartækjum en ekki hafi verið fallist á það af hálfu þjónustuteymis Útlendingastofnunar. Því sé eini möguleiki kæranda að fá tíma á heilsugæslu til þess að fá uppáskrifuð verkjalyf við þeim miklu verkjum sem hann fái vegna óbreytts ástands. Það sé því rangt sem komi fram í ákvörðun Útlendingastofnunar að kærandi hafi alla burði til að sækja sér þjónustu og að eina þjónustan sem hann þarfnist og hafi borið sig eftir, sé í formi verkjalyfja. Kærandi vísar til rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar sem lögfest sé í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og áréttuð sé í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga þar sem fram komi að Útlendingastofnun skuli tryggja eins fljótt og kostur sé að fram fari með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. sömu laga. Kærandi telur að mat Útlendingastofnunar á stöðu hans á grundvelli þeirra gagna sem fram hafi komið í málinu og þeirri staðhæfingu að kærandi sé ekki í þörf fyrir frekari þjónustu og því ekki í viðkvæmri stöðu, beri með sér að stofnunin hafi ekki ráðist í ítarlegt einstaklingsbundið mat á þörfum kæranda. Þó svo að kærunefnd endurskoði ekki mat Útlendingastofnunar á sérstaklega viðkvæmri stöðu telur kærandi að mikilvægt sé að kærunefnd óski eftir upplýsingum um það hvort matið hafi farið fram í samræmi við lög og kalli eftir upplýsingum um það til hvaða sérfræðinga Útlendingastofnun leitaði aðstoðar við mat á því hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu líkt og áskilið sé í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Hafi ekki verið leitað út fyrir stofnunina við umrætt mat skuli Útlendingastofnun rökstyðji með ítarlegri hætti hvernig á því standi.

Þá andmælir kærandi mati Útlendingastofnunar á því að ekki sé brotið gegn 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 með endursendingu hans til Grikklands. Kærandi vísar til þess að lýsingar hans á aðstæðum sínum komi heim og saman við opinberar heimildir um aðstæður þar í landi m.a. hvað varðar húsnæði, atvinnu, félagslega þjónustu, heilbrigðisþjónustu, aðbúnað og mismunun. Endursending kæranda til Grikklands teljist því, vegna aðbúnaðar og aðstæðna einstaklinga með alþjóðlega vernd þar í landi, vera brot á 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og brot gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement). Að auki myndi ákvörðun um að senda kæranda til Grikklands brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 7. gr. alþjóðsamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins er kærandi handhafi alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og hefur framvísað dvalarleyfisskírteini með gildistíma til 10. október 2022. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2020 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 30. mars 2021);
  • Amnesty International Report 2020/21 – Greece (Amnesty International, 7. apríl 2021);

  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2021);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 22. mars 2021);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 12. ágúst 2021);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 12. ágúst 2021);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 12. ágúst 2021) og
  • World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2021 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið þurfi að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa almannatrygginganúmer, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt framangreindri skýrslu er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Samkvæmt rannsókn frá árinu 2018 hafi meirihluti þeirra flóttamanna sem þá hafi verið starfandi verið í óskráðu starfi. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fari einungis fram á grísku en umsækjendur geti leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þurfi að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjái um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verði ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára karlmaður. Í samskiptaseðli frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 9. október 2020, kemur fram að kærandi hafi leitað þangað vegna verks í hægri il. Það hafi verið mat læknis að kærandi væri með hælspora og honum hafi verið ávísað bólgueyðandi lyfi og ráðlagt að fá innlegg. Þá hafi verið útbúin beiðni til sjúkraþjálfara. Í komunótu frá Göngudeild sóttvarna, dags. 22. október 2020, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að hafa farið í aðgerð þegar hann var yngri vegna fæðingargalla í fótum. Læknamistök hafi verið gerð í aðgerðinni og hann hafi verið verkjaður allt sitt líf vegna þess. Þá sé kærandi andlega þreyttur og sofi illa útaf verkjum. Kærandi hafi áður fengið ávísað bólgueyðandi lyfjum hér á landi sem hafi hjálpað en hann hafi nú klárað lyfin. Þá kemur fram í samskiptaseðli frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 29. október 2020, að kærandi hafi leitað þangað vegna verkja. Ekki hafi verið hægt að leysa vandamálið á heilsugæslu nema að hluta til með verkjastillingu. Var því útbúið læknabréf til bæklunarlæknis fyrir frekara mat. Í samskiptaseðli frá heilsugæslunni Efstaleiti, dags. 19. nóvember 2020, kemur fram að kærandi hafi leitað þangað vegna verkja í fótum. Þar sem kærandi hafði þegar fengið tíma hjá ökklasérfræðingi var ekki aðhafst frekar. Í vinnublaði sérfræðinga frá læknastöðinni Orkuhúsinu, dags. 3. desember 2020, kemur fram að kærandi sé með meðfædda skekkju í báðum fótum og aðgerð sem gerð hafi verið í heimaríki hafi ekki tekist sem skyldi. Við skoðun á hægri fæti sé kærandi með talsverða aflögun og hællinn standi neðar en tábergið. Þá sé aðgerðarör medialt og dorsalt yfir ristinni. Kærandi sé stífur í fætinum almennt og við þreifingu. Vinstri fótur sé mun betri að sjá, þar sé hann með minni verki og betri hreyfanleika. Kærandi hafi verið sendur í röntgenmyndatöku og tölvusneiðmynd. Í heilsufarsgögnum, dags. 12. janúar 2021, kemur fram að kærandi hafi hitt bæklunarskurðlækni sem hafi útbúið umsókn um styrk til kaupa á sérsmíðuðum skóm og innleggjum til Sjúkratrygginga Íslands auk þess sem honum hafi verið ávísað verkjalyfi.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst, og m.a. sú aðstoð rakin sem hann hefur fengið hér á landi. Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans vegna slæmra aðstæðna í Grikklandi. Kærandi hafi ekki haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu, félagsaðstoð eða atvinnu í Grikklandi. Af framlögðum heilsufarsgögnum má sjá að kærandi hefur glímt við verki í fótum vegna fæðingargalla. Kærandi sé með meðfædda skekkju í báðum fótum og þurfi að taka inn verkjalyf vegna þess. Þá kemur fram í heilsufarsgögnum að kærandi þurfi sérsmíðaða skó og innlegg. Kærandi hafi jafnframt greint frá því að eiga erfitt með að standa lengi og geti ekki gengið langar leiðir.

Í fyrri úrskurði kærunefndar nr. 104/2021 frá 4. mars 2021 í máli kæranda var það mat kærunefndar að í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga um heilsufar kæranda og þess að ekki lá fyrir greining eða álit læknis eða heilbrigðisstarfsmanna á afleiðingum þess fyrir kæranda fái hann ekki þá læknismeðferð sem hann kunni að vera í þörf fyrir, hefði verði sérstakt tilefni til að afla upplýsinga um hvort kærandi hefði almannatrygginganúmer (áður nefnt kennitala) og skattnúmer í Grikklandi. Var það mat kærunefndar að nægilega skýrar upplýsingar um fyrrgreint hefði þurft að liggja fyrir áður en ákvörðun var tekin í máli kæranda og taldi kærunefnd rannsókn Útlendingastofnunar áfátt að því leyti. Var lagt fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný. Í framhaldsviðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 12. maí 2021, kvaðst kærandi hafa reynt að skila inn umsókn um almanntrygginganúmer en ekki haft erindi sem erfiði og honum verið ítrekað vísað frá vegna Covid-19 faraldursins. Þá greindi kærandi frá því að hann hefði ekki verið með skattnúmer í Grikklandi. Verður framburður kæranda lagður til grundvallar í málinu hvað þetta varðar. Þá rakti Útlendingastofnun þau heilsufarsgögn sem lágu fyrir í málinu en þar er m.a. vikið að því að kærandi sé með meðfædda skekkju í báðum fótum og þurfi að taka inn verkjalyf vegna þessa. Þá hafi kærandi gengist undir aðgerðir á fótum áður en hann kom til Grikklands og að hann sé í þörf fyrir sérsmíðaða skó og innlegg.

Að mati kærunefndar hefur framangreind málsmeðferð Útlendingastofnunar ekki leitt fram frekari upplýsingar um stöðu kæranda hvað varðar líkamlegt heilsufar hans eða hvort hann sé í þörf fyrir frekari læknisfræðilega meðferð og hvort að sú meðferð standi honum til boða í Grikklandi. Kærunefnd telur með vísan til þeirra aðgangshindrana sem geta verið til staðar að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og fjallað hefur verið um og þess álags sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á heilbrigðiskerfið í Grikklandi, og í ljósi þess að upplýsingar um skattnúmer og almannatrygginganúmer kæranda lágu ekki fyrir, að fara hefði átt fram frekari rannsókn á heilsufari kæranda. Til að mynda hefði verið tilefni til að afla skýrari upplýsinga frá sérfróðum aðila hver þörf hans er fyrir frekari heilbrigðisþjónustu og um afleiðingar þess fyrir kæranda fái hann ekki þá þjónustu eða meðferð eða afleiðingar á töfum á veitingu slíkrar þjónustu.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Eins og að framan greinir telur kærunefnd að annmarkar hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar í máli kæranda. Kærunefnd telur jafnframt í ljósi aðstæðna að ekki sé unnt að bæta úr þeim annmörkum á kærustigi og því rétt að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

 

 

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

 

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

 

 

 

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Þorbjörg I. Jónsdóttir                                                                                    Sindri M. Stephensen

                                                                                             

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum