Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 561/2021 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 561/2021

Fimmtudaginn 3. febrúar 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 28. október 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. ágúst 2021, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslu atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 31. desember 2020 og var umsókn hennar samþykkt 5. febrúar 2021. Þann 29. júní 2021 var kærandi boðuð á fund hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram daginn eftir. Tekið var fram að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna. Kærandi mætti ekki í boðað viðtal og tilkynnti ekki forföll. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 8. júlí 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna þessa. Skýringar bárust frá kæranda 4. og 9. ágúst 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. ágúst 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. 

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 28. október 2021. Með bréfi, dags. 2. nóvember 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 26. nóvember 2021. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 29. nóvember 2021, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hringt hafi verið í hana þann 30. júní 2021 til að bjóða henni í starfsviðtal. Kærandi hafi verið heima með barn sitt og því ekki mætt. Hún hafi ekki hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Vegna tungumálaörðugleika hafi hún ekki náð að útskýra það.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að þann 29. júní 2021 hafi kæranda verið sendur tölvupóstur og smáskilaboð í farsíma hennar frá stofnuninni kl. 08:53 þar sem hún hafi verið boðuð á fund hjá stofnuninni þann 30. júní 2021 á milli klukkan 10:00 og 11:00. Boðið hafi verið sent á ensku og íslensku. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal og hafi ekki boðað forföll innan gefinna tímamarka. Þann 8. júlí 2021 hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skýringum vegna höfnunar á þáttöku í vinnumarkaðsúrræði. Í erindi til kæranda hafi verið vakin athygli á 58. og 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þann 4. ágúst 2021 hafi kærandi komið á þjónustuskrifstofu með túlk meðferðis og spurst fyrir um hvað hún gæti gert til að komast hjá frestun greiðslna. Kærandi hafi borið það fyrir sig að hún hefði ekki skilið boð um mætingu er hafi borist þann 29. júní 2021. Kærandi hafi fengið leiðbeiningar um að skila skriflegum skýringum til stofnunarinnar. Skýringar kæranda hafi borist þann 9. ágúst 2021 þar sem hún kvaðst ekki hafa lesið tölvupóstinn sem hafi borist þann 29. júní 2021. Þegar hún hafi lesið póstinn hafi það verið orðið of seint. Kærandi hafi borið fyrir sig að hafa ekki vitað af bréfi sem sett hafi verið inn á „Mínar síður“ þann 8. júlí 2021. Kærandi hafi vísað til takmarkaðrar þekkingar á því að nota „Mínar síður“ ásamt tungumálaörðugleikum. Þann 11. ágúst 2021 hafi Vinnumálastofnun fjallað um fjarveru kæranda á boðaðan fund. Með erindi, dags 12. ágúst 2021, hafi kærandi verið upplýst um að það væri mat stofnunarinnar að skýringar hennar teldust ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslu atvinnuleysistrygginga í þrjá mánuði til kæranda þar sem hún hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun og ekki boðað forföll.

Samkvæmt a-lið 13. gr. og g-lið 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit og í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi svo:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 2. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar segi jafnframt:

„Hinn tryggði skal uppfylla skilyrði laga þessara á viðurlagatímanum skv. 1. mgr. Hafni hann aftur að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum á þeim tíma getur komið til ítrekunaráhrifa skv. 61. gr.“

Sá sem hafi sætt viðurlögum samkvæmt 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar á sama tímabili samkvæmt 29. gr. laganna skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VIII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan fund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 30. júní 2021 en henni hafi verið send boðun í tölvupósti og í uppgefið símanúmer með rúmlega 24 klukkustunda fyrirvara. Þá liggi fyrir að kærandi hafi ekki boðað forföll. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar segi að hún hafi ekki lesið tölvupóstinn en þegar hún hafi lesið hann hafi það verið of seint. Kærandi hafi borið fyrir sig tungumálaörðugleika ásamt vanþekkingu á „Mínum síðum“ stofnunarinnar.

Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum þeirra sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að með því að mæta ekki á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar hafi hún brugðist skyldum sínum samkvæmt 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, enda hafi hún ekki tilkynnt forföll þegar hún hafi verið boðuð til fundar hjá stofnuninni.

Þann 4. febrúar 2021 hafi kærandi sætt niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði þar sem hún hafi sjálf sagt upp starfi. Í tilfelli kæranda sé því um að ræða niðurfellingu bótaréttar öðru sinni, sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt ákvæðinu skuli sá sem hafi áður sætt niðurfellingu bótaréttar á sama bótatímabili ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum. Í samræmi við framangreint hafi bótaréttur kæranda verið felldur niður í þrjá mánuði. Það sé afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði frá 12. ágúst 2021.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr.,  3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 29. júní 2021 boðuð á fund hjá Vinnumálastofnun sem átti að fara fram daginn eftir. Tekið var fram að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar. Þá var kæranda bent á að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi mætti ekki á fundinn og tilkynnti ekki forföll. Kærandi veitti þær skýringar að hún hefði ekki lesið tölvupóstinn fyrr en of seint og bar fyrir sig tungumálaörðugleika ásamt vanþekkingu á „Mínum síðum“ stofnunarinnar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var boðuð til Vinnumálastofnunar með sannanlegum hætti, með tölvupósti, smáskilaboðum og skilaboðum á „Mínum síðum“. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram gildar skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Ákvæðið er fortakslaust og því er ekki heimilt að beita vægari úrræðum en þar er kveðið á um.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 5. febrúar 2021 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, bar Vinnumálastofnun að láta kæranda sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. ágúst 2021, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum