Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 28/2019 Úrskurður 10. apríl 2019

Mál nr. 28/2019                    Eiginnafn:     Jette (kvk.)

                                               Millinafn:       Jette

 

 

Hinn 10. apríl 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 28/2019 en erindið barst nefndinni 28. mars.

Í þessu máli er óskað eftir úrskurði um eiginnafnið Jette (kvk.) en til vara um millinafnið Jette.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bága við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  5. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. 1 hér að ofan. Nafnið Jette tekur ekki íslenskri eignarfallsendingu, það er eins í öllum föllum. En eins og fram kemur hér á undan er hægt að víkja frá skilyrði nr. 1 ef nafn hefur unnið sér hefð. Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3. Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

 

Samkvæmt gögnum Þjóðskrár bera þrjár konur, sem uppfylla skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna, nafnið Jette. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Þess vegna er ekki unnt að líta svo á að nafnið Jette (kvk.) hafi unnið sér hefð í íslensku máli skv. lögum, nr. 45/1996, um mannanöfn.

Líkt og fram kemur að framan fer úrskurðarbeiðandi til vara fram á úrskurð um millinafnið Jette. Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslenskumáli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • ·nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má eki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Jette telst ekki dregið af íslenskum orðstofni og uppfyllir þess vegna ekki skilyrði laga um millinöfn. Í lögum um mannanöfn er hins vegar einnig ákvæði, 3. mgr. 2. gr., um að „millinafn, sem víkur frá ákvæðum 2. mgr., er heimilt þegar svo stendur á að eitthvert alsystkini þess sem á að bera nafnið, foreldri, afi eða amma ber eða hefur borið nafnið sem eiginnafn eða millinafn.“

Samkvæmt orðanna hljóðan telur ákvæði þetta upp með tæmandi hætti hvaða nöfn koma til greina á þessum lagagrundvelli. Þrátt fyrir ótvíræðan skýrleika lagaákvæðisins þarf túlkun mannanafnanefndar á efnislegu inntaki þess að taka mið af fyrirliggjandi dómafordæmum um beitingu einstakra ákvæða mannanafnalaga, þ.m.t. með tilliti til þess hvort einstök ákvæði laganna samrýmast grundvallarreglum um friðhelgi einkalífs, sbr. 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, eins og því ákvæði var breytt með 9. gr. stjórnarskipunarlögum, nr. 97/1995, sem og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög, nr. 62/1994, um mannréttindasáttmála Evrópu.

Við úrlausn þessa máls þarf því óhjákvæmilega að líta til óáfrýjaðs dóms Héraðsdóms Reykjavíkur 24. apríl 2015 í máli nr. E-3607/2014 (millinafnið Gests) en þar var talið að eins og atvikum máls væri háttað, ætti að horfa framhjá texta 3. mgr. 6. gr. mannanafnalaga þar eð ákvæðið bryti í bága við áðurnefnd ákvæði um friðhelgi einkalífs í stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu.

Af þessu leiðir að mannanafnanefnd þarf í sínum störfum að beita sömu túlkunarreglum og dómstólar gera en líta verður svo á að þegar íslenska ríkið áfrýi ekki niðurstöðum héraðsdóms í málum af þessu tagi, þá sé beiting lagareglna í óáfrýjuðum héraðsdómum, sú sem nefndin ber að fara eftir.

Þegar litið er til fyrirliggjandi gagna málsins er ljóst að umsóknin uppfyllir ekki þau skilyrði sem löggjafinn hefur mælt fyrir um í 3. mgr. 6. gr. mannanafnalaga. Hins vegar verður að líta til þess að í þessu máli liggja ríkar tilfinningalegar ástæður að baki nafnvali, en sóst er eftir að nafnberi fái sem millinafn nafn afar náins fjölskylduvinar sem lést fyrir skömmu. Af þessum ástæðum er talið réttlætanlegt að úrskurðarbeiðandi fái að gefa dóttur sinni millinafnið Jette, sbr. 3. mgr. 6. gr. mannanafnalaga, eins og bera að túlka það ákvæði í ljósi grundvallarreglna um friðhelgi einkalífs.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Jette (kvk.) er hafnað.

 

Á grundvelli 3. mgr. 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn er fallist á beiðni XXX að gefa dóttur sinni millinafnið Jette. Nafnið skal hins vegar ekki fært á mannanafnaskrá.

Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum