Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 12/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 12. janúar 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 12/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU22100080

 

Kæra […]

og barna hennar

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 26. október 2022 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 13. október 2022, um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kæranda og barna hennar, […], fd. […], ríkisborgara Nígeríu (hér eftir A), og […], fd. […], ríkisborgara Nígeríu (hér eftir B), um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að lagt verði fyrir stofnunina að taka umsóknir þeirra til efnismeðferðar, aðallega með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og til vara með vísan til 42. gr. sömu laga, sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 29. mars 2022. Með umsókn framvísaði kærandi ferðaskilríki frá Möltu með gildistíma til 15. júlí 2022 og maltnesku dvalarleyfisskírteini með gildistíma til 15. júlí 2022. Hinn 28. apríl 2022 var beiðni um viðtöku kæranda og barna hennar og umsókna þeirra um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Möltu, sbr. 1. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá maltneskum yfirvöldum, dags. 9. maí 2022, samþykktu þau viðtöku kæranda og barna hennar á grundvelli 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 14. júní 2022 og kom A til viðtals hjá Útlendingastofnun 24. ágúst 2022. Útlendingastofnun ákvað 13. október 2022 að taka ekki umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kæranda 13. október 2022 og kærði hún ákvarðanirnar 26. október 2022 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 9. nóvember 2022, ásamt fylgigögnum. Frekari gögn bárust 24. nóvember 2022.

III.      Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að maltnesk stjórnvöld beri ábyrgð á meðferð umsókna kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknirnar yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda og barna hennar til Möltu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi og börn hennar hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þær fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsóknir þeirra til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda og börnum hennar var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þær fluttar til Möltu.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barnanna A og B kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í málum móður þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, lög um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagmunum þeirra væri ekki stefnt í hættu og að þeim sé best borgið með því að fylgja foreldri sínu til Möltu.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og annarra gagna málsins hvað varðar málavexti. Kærandi sé ríkisborgari Nígeríu og hafi dvalið á Möltu frá árinu 2011. Kærandi hafi komið til Íslands 29. mars 2022 og fætt stúlku hér á landi […]. Kærandi hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hún hafi flúið heimaríki sitt vegna fjölskylduvandamála og að hún hafi verið beitt kynferðisofbeldi sem hafi haft verulega neikvæð áhrif á líf hennar. Ástæður þess að kærandi hafi flúið með A frá Möltu hafi verið vegna kynferðisofbeldis sem A hafi orðið fyrir þar auk kynþáttahaturs sem þær hafi upplifað. Þá hafi kærandi og A búið við verulegan fjárskort á Möltu og hafi lífið þar verið þeim erfitt. Kærandi vísar til þess að hún glími við andlega erfiðleika og að hún sé með augnsjúkdóm sem hún óttist að fari versnandi. Kærandi hafi hvorki fengið húsnæðis- né mataraðstoð frá yfirvöldum á Möltu. Þá vísar kærandi til þess að hún hafi einungis haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu á Möltu þegar hún hafi verið í starfi.

Kærandi byggir aðallega á því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál hennar til efnismeðferðar þar sem óheimilt sé að senda kæranda og börn hennar til svæðis þar sem þær hafi ástæðu til að óttast ofsóknir með vísan til 1. mgr. 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar í því sambandi til athugasemda með 42. gr. í frumvarpi til laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að íslensk stjórnvöld séu bundin af grundvallarreglu þjóðaréttar um að vísa fólki ekki brott þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu (non-refoulement). Kærandi vísar því á bug að yfirvöld á Möltu skorti hvorki getu né vilja til að veita öllum sem dvelji þar aðstoð og vernd telji þeir á sér brotið. Kærandi byggir á því að íslenskum stjórnvöldum beri að hafa hliðsjón af meginreglum sem Evrópudómstóllinn hafi sett fram í dómum sínum að því leyti sem þær séu til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenskra stjórnvalda. Kærandi gerir kröfu um að aðstæður hennar og barna hennar verði teknar til skoðunar með tilliti til viðkvæmrar stöðu þeirra.

Kærandi byggir auk þess á því að taka skuli mál hennar og barna hennar til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, og telur að aðstæður hennar og barna hennar falli undir ákvæðið. Kærandi byggir á því að hún og börn hennar megi vænta þess að eiga erfitt uppdráttar vegna alvarlegrar mismununar á Möltu sem flóttakonur frá Nígeríu. Kærandi telur að þær muni sæta alvarlegri mismunun á grundvelli kynþáttar og að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings á Möltu. Kærandi byggir á því að aðgengi þeirra að heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð á Möltu verði verulega síðra en almennings. Þá muni hún standa frammi fyrir húsnæðisvanda og hafa takmarkaða möguleika á atvinnu á Möltu.

Kærandi byggir á því að hún og börn hennar séu ekki með virka vernd á Möltu. Dvalarleyfi hennar og A hafi runnið út 15. júlí 2022 og hafi C ekki verið með vernd á Möltu. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar nr. 528/2019 þar sem m.a. komi fram að í framkvæmd sé útgáfa og endurnýjun dvalarleyfa á Möltu erfiðleikum bundin. Kærandi vísar til þess að einstaklingar með alþjóðlega vernd á Möltu sem séu ekki handhafar gildra dvalarskírteina eigi á hættu að geta ekki nálgast grunnþjónustu þar í landi.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi kona á […] sem er stödd hér á landi ásamt tveimur dætrum sínum, A og B, sem eru […] og […]. Við meðferð málsins greindi kærandi frá því að hún hafi flúið heimaríki sitt vegna fjölskylduaðstæðna. Kærandi hafi komið barnshafandi til Möltu árið 2011 og búið þar síðan. Kærandi hafi fyrst búið í móttökumiðstöð og síðar í flóttamannabúðum. Þegar barn kæranda hafi orðið fimm mánaða hafi hún þurft að útvega sér húsnæði sjálf. Kærandi eignaðist barnið B hér á landi […]. Samkvæmt gögnum málsins eru kærandi og A handhafar dvalarleyfa á Möltu á grundvelli mannúðarástæðna sem runnu út 15. júlí 2022. Framlögð heilsufarsgögn bera með sér að kærandi og börn hennar séu almennt við ágæta heilsu. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún sé með augnsjúkdóm en að líkamleg heilsa hennar væri að öðru leyti góð. Kærandi eigi við andleg vandamál að stríða og hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi í heimaríki. Kærandi hafi reynt að fremja sjálfsvíg eftir að hafa greinst með Covid-19 árið 2020 vegna hræðslu um að hún myndi látast af sjúkdómnum. Þá greindi kærandi frá því að hún hafi haft aðgengi að heilbrigðiþjónustu á Möltu með framvísun launaseðils. Kærandi greindi frá því að hún hafi verið í reglubundnu eftirliti og meðferð vegna augnsjúkdómsins. Kærandi hafi verið í starfi sem umönnunaraðili á Möltu og leigt húsnæði ásamt meðleigjanda. Þá greindi kærandi frá því að á árinu 2021 hafi A orðið fyrir kynferðisofbeldi á Möltu af hálfu meðleigjanda hennar. Kærandi hafi farið með A í skoðun á barnaspítala og hafi málið verið tilkynnt til lögregluyfirvalda sem hafi tekið málið til rannsóknar. Kærandi hafi ekki fengið frekari upplýsingar um framgang málsins. Kærandi greindi einnig frá því að þær hafi orðið fyrir kynþáttafordómum á Möltu og að A hafi orðið fyrir einelti í skólanum.

Réttarstaða barna kæranda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur yfirfarið gögn málsins, þ. á m. viðtal kæranda og A hjá Útlendingastofnun. Það er mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A og B sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A og B verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin A og B eru í fylgd móður sinnar og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Möltu á umsóknum kæranda og barna hennar er byggð á 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja maltnesk stjórnvöld um að taka við kæranda og börnum hennar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður á Möltu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd á Möltu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Amnesty International Report 2021/22 - Malta (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Asylum Information Database, Country Report: Malta (European Council on Refugees and Exiles, 23. maí 2022);
  • ECRI Report on Malta (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 15. maí 2018);
  • Freedom in the World 2022 – Malta (Freedom House, febrúar 2022);
  • Malta 2021 Human Rights Report (United States Department of State, 12. apríl 2022);
  • National Action Plan Against Racism and Xenophobia (Equality Research Consortium, desember 2010);
  • National Report on Hate Speech and Hate Crime in Malta 2016 (E-More Project, nóvember 2016);
  • Progress Report 2018: A Global Strategy to Support Governments to End the Detention of Asylum seekers & Refugees, 2014-2019 (UN High Commissioner for Refugees (UNCHR), febrúar 2019);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report Universal Periodic Review: Malta (UN High Commissioner for Refugees (UNHCR), júlí 2018);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) (https://e-justice.europa.eu);
  • Upplýsingar af vefsíðu félagasamtakanna Victim Support (victimsupport.org.mt);
  • Upplýsingar af vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (http://www.unhcr.org.mt);
  • Upplýsingar af vefsíðu IPCAN (e. Independent Police Complaints Authorities Network) (www.ipcan.org);
  • Upplýsingar af vefsíðu lögreglunnar á Möltu (https://pulizija.gov.mt/en/Pages/Home.aspx);
  • Upplýsingar af vefsíðu maltneskra yfirvalda (https://deputyprimeminister.gov.mt/en/Pages/health.aspx);
  • Upplýsingar af vefsíðum Report Racism Malta og Reporting Hate: (www.reportracism-malta.org) og (reportinghate.eu);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 15. desember 2022) og
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 15. desember 2022).

Í skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá maí 2022 kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem séu sendir til Möltu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti lagt fram umsókn hjá útlendingayfirvöldum þar í landi (e. International Protection Agency, IPA), sem taki ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd á Möltu. Fram kemur að umsækjendur fari í viðtal þar sem þeir eigi rétt á aðstoð túlks. Fram kemur í skýrslu ECRE að umsækjendur um alþjóðlega vernd geti kært ákvarðanir útlendingayfirvalda innan tveggja vikna til kærunefndar útlendingamála (e. International Protection Appeals Tribunal, IPAT). Úrskurður kærunefndar sé endanleg niðurstaða í máli umsækjanda um alþjóðlega vernd en hægt sé að bera hana undir maltneska dómstóla.

Samkvæmt fyrrgreindri skýrslu ECRE heyri þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd undir velferðarstofnun (e. Agency for the welfare of Asylum-Seekers, AWAS). Stofnunin beri ábyrgð á búsetuúrræðum og félagslegri aðstoð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Samkvæmt fyrrgreindri skýrslu sé takmarkað aðgengi að búsetuúrræðum vegna fjölgunar umsækjenda en fjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu hafi forgang að úrræðunum. Sérstakar móttökumiðstöðvar séu starfræktar til að hýsa fjölskyldur, einstæðar konur og viðkvæma einstaklinga. Fjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu fái að dvelja í úrræði á vegum AWAS í eitt ár en að því liðnu geti þeir leitað til félagsþjónustu á Möltu. Umsækjendur sem dvelji í opnum rýmum í móttökumiðstöðvum eigi rétt á dagpeningum, aðgengi að heilbrigðisþjónustu og aðgengi að menntun til sextán ára aldurs. Samkvæmt fyrrgreindri skýrslu ECRE eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á að stunda atvinnu á Möltu og eigi börn umsækjenda rétt á menntun til 16 ára aldurs. Þá kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Mat á viðkvæmri stöðu fari fram hjá AWAS og sé m.a. tekið mið af því hvort umsækjandi hafi verið alvarlega veikur, eigi við andleg vandamál að stríða eða glími við fötlun og fari stuðningur við umsækjanda eftir stöðu hans og þörfum. Einstaklingar í viðkvæmri stöðu geti sem dæmi verið fylgdarlaus börn, þungaðar konur, einstæðir foreldrar með ung börn og þolendur ofbeldis.

Í framangreindri skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns og einstaklingar með viðbótarvernd á Möltu fái útgefin endurnýjanleg dvalarleyfi til þriggja ára í senn og einstaklingar með mannúðarvernd til eins árs. Að framkominni beiðni sé að jafnaði fallist á endurnýjun slíkra dvalarleyfa. Í framkvæmd sé útgáfa og endurnýjun dvalarleyfa þó erfiðleikum bundin, m.a. vegna skorts á aðgengi að upplýsingum, tafa við vinnslu umsókna, íþyngjandi krafna og neikvæðra viðhorfa opinberra starfsmanna í garð einstaklinga með alþjóðlega vernd á Möltu. Upplýsingar séu ekki alltaf settar fram á tungumáli sem einstaklingar skilji og þá þurfi umsækjendur um endurnýjun dvalarleyfis m.a. að leggja fram sönnun um núverandi dvalarstað, s.s. leigusamning og afrit af persónuskilríkjum leigusala. Útgáfa varanlegra dvalarleyfa sæti ströngum skilyrðum á Möltu svo og veiting ríkisborgararéttar. Í skýrslunni kemur fram að þótt yfirvöld veiti umsækjendum um endurnýjun dvalarskírteinis skriflega staðfestingu á að umsóknin sé til meðferðar hefur slík staðfesting ekkert formlegt gildi. Í reynd eigi einstaklingar með alþjóðlega vernd sem séu ekki handhafar gildra dvalarskírteina á hættu að geta ekki nálgast grunnþjónustu þar í landi.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 kemur fram að stjórnarskrá Möltu leggi bann við mismunun á grundvelli kynþáttar og kyns. Auk þess sé kynferðisofbeldi og annars konar kynbundið ofbeldi refsivert samkvæmt lögum og séu sérhæfðar lögregludeildir og samtök sem veiti stuðning til þolenda slíks ofbeldis. Þá sé hvers kyns ofbeldi gagnvart börnum refsivert en refsiramminn fyrir kynferðisbrot gegn barni sé allt að 20 ára fangelsi. Í framangreindri skýrslu European Commission against Racism and Intolerance (ECRI) frá árinu 2018 kemur m.a. fram að flóttamenn og innflytjendur sæti mismunun á Möltu, þ. á m. á vinnumarkaði, en að maltnesk yfirvöld framfylgi aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju og útlendingahatri (e. National Action Plan Against Racism and Xenophobia), sem gefin hafi verið út árið 2010. Telji einstaklingar á sér brotið geti þeir m.a. leitað til nefndar um opinbera þjónustu (e. Public Service Commission), jafnréttisnefndar (e. National Commission for the Promotion of Equality), umboðsmanns þingsins (e. Parliamentary ombudsman) og dómstóla. Ekki liggi fyrir sundurliðuð, opinber gögn um hatursglæpi á Möltu, s.s. um tíðni þeirra, kærufjölda, fjölda mála sem sæti ákæru o.s.frv. Hatursglæpir, þ. á m. á grundvelli kynþáttar, séu refsiverðir samkvæmt maltneskum hegningarlögum. Samkvæmt framangreindri skýrslu ECRI skorti þó eftirfylgni með löggjöfinni, fá mál séu kærð og lágt hlutfall kærumála sæti ákæruferli.

Þolendur afbrota geti leitað til lögregluyfirvalda á Möltu en á heimasíðu lögreglunnar kemur fram að einstaklingar geti tilkynnt um brot til lögreglunnar á lögreglustöð eða í gegnum síma. Þá sé einnig hægt að tilkynna í gegnum rafrænt kerfi á vefsíðu lögreglunnar. Þá kemur fram að þolendur geti gengið út frá því að komið verði fram við þá af virðingu óháð menningu, kynþætti, kyni eða annarra þátta. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar á Möltu sem séu þolendur afbrota og tali hvorki né skilji maltnesku geti lagt fram kæru til lögreglu á sínu móðurmáli og eigi rétt á nauðsynlegri aðstoð við það, s.s. túlkaþjónustu. Meðan á rannsókn standi eigi þeir jafnframt rétt á túlkaþjónustu en þurfi þá að greiða fyrir þjónustuna. Jafnframt geti þau leitað til samtakanna Victim Support og tilkynnt um hatursglæpi á þar til gerðum vefsíðum, www.reportracism-malta.org og reportinghate.eu. Þá kemur fram á framangreindri vefsíðu IPCAN að umboðsmaður maltneska þingsins fari með rannsókn á embættisverkum maltnesku lögreglunnar.

Þá kemur fram í fyrrgreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins að á Möltu séu í gildi lög sem kveði á um réttindi fatlaðs fólks. Samkvæmt lögum eigi fatlað fólk m.a. jafnt aðgengi að menntun og heilbrigðiþjónustu. Þá séu einnig lög sem kveði á um bann við mismunun á opinberum og almennum vinnumarkaði á grundvelli fötlunar. Þá hafa maltnesk yfirvöld fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og valfrjálsa bókun við samninginn.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beiti] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, eins og efnahagslegar ástæður, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er kona á […] með tvö börn, A og B. Samkvæmt gögnum málsins eignaðist kærandi barnið B hér á landi […]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún væri með gláku og að hún hefði enga sjón á öðru auga. Kærandi tæki inn lyf og augndropa ef hún fyndi fyrir þrýstingi í auganu. Þá greindi kærandi frá áhyggjum sínum af því að missa sjón á hægra auga og geta ekki hugsað um A og B. Að öðru leyti væri hún líkamlega hraust. Kærandi greindi frá því að hún væri illa í stakk búin til að takast á við erfiðleika í lífinu. Kærandi hafi reynt að fremja sjálfsvíg á Möltu eftir að hafa greinst með Covid-19 árið 2020. Kærandi greindi frá því að hún hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi í heimaríki og það hafi haft áhrif á andlega heilsu hennar. Í heilsufarsgögnum frá lækni á Möltu, dags. 22. mars 2022, kemur fram að kærandi hafi undirgengist aðgerð vegna gláku á hægra auga en ekki hafi verið hægt að endurheimta sjón á auganu. Þá kemur fram að kærandi sé undir eftirliti vegna augnþrýstings á vinstra auga en það sé líklegt að hún muni einnig fá gláku í því auga. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 27. apríl 2022, kemur fram að kærandi hafi farið í mæðravernd vegna meðgöngu sinnar. Kærandi eigi sögu um gláku. Í gögnum frá heilsugæslunni Firði, dags. 1. september 2022, kemur fram að kærandi hafi komið í sálfræðiviðtöl í tvígang. Í viðtölum hefðu komið fram töluverð einkenni áfallastreituröskunar, þunglyndiseinkenni og flókin áfallasaga. Einnig sjálfsvígshugsanir og saga um sjálfsvígstilraun. Kærandi væri í erfiðri félagslegri stöðu og hefði lítinn sem engan félagslegan stuðning. Í tölvubréfi frá augnlækni á Landspítalanum, dags. 8. nóvember 2022, kemur fram að kærandi sé blind á hægra auga af völdum gláku og að gerð hafi verið glákuaðgerð á einhverjum tímapunkti. Ekki sé hægt að gera nokkuð til hjálpar hægra auga þar sem blinda á því sé óafturkræf. Skoðun á vinstra auga hafi komið eðlilega út en kærandi þurfi að vera undir eftirliti vegna vinstra auga.

Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að A væri almennt við góða heilsu en að sjálfsvígstilraun kæranda hafi haft veruleg áhrif á A. Þá hafi A orðið fyrir kynferðisofbeldi á Möltu af hálfu meðleigjanda kæranda og glími hún við afleiðingar þess í dag. A hafi farið í skoðun á barnaspítala og hafi málið jafnframt verið tilkynnt til lögreglu, sem hafi tekið málið til rannsóknar. Samkvæmt gögnum frá Barnahúsi, dags. 20. júní 2022, fór A í viðtal vegna fyrrgreinds kynferðisofbeldis. Í minnispunktum vegna viðtalsins kemur m.a. fram að A hafi greint frá því að hafa tvisvar orðið fyrir kynferðisofbeldi á Möltu af hálfu manns sem hafi leigt herbergi á heimili hennar. Þá kemur fram að A hafi verið í sálfræðiviðtölum á vegum barnaverndar og muni halda þeim áfram. Ekki hafi verið þörf á frekari þjónustu Barnahúss og málinu lokið af þeirra hálfu. Þá greindi A m.a. frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hún hafi upplifað einelti á Möltu vegna kynþáttar.

Ekki hafa verið lögð fram heilsufarsgögn vegna B. Kærunefnd hefur því ekki forsendur til annars en að líta svo á að barnið B sé við góða heilsu.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun 14. júní 2022, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 26. október 2022, um framlagningu frekari gagna í málinu. Bárust frekari gögnum um heilsufar með greinargerð kæranda 9. nóvember 2022 og 24. nóvember 2022. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hennar. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hennar geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda eða barna hennar séu með þeim hætti að þær teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður á Möltu verður ráðið að kærandi og börn hennar geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda og barna hennar tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá áréttar kærunefnd að gögn málsins bera með sér að kærandi hafi notið heilbrigðisþjónustu á Möltu en við meðferð málsins hefur kærandi m.a. greint frá því að hafa farið til læknis þar vegna augnsjúkdómsins og jafnframt lagt fram heilsufarsgögn þess efnis. Þá lítur kærunefnd til þess að gögn málsins bera með sér að kærandi hafi ekki lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í viðtökuríki og því hafi hún ekki reynslu af móttökukerfinu þar í landi. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verið fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Kærunefnd áréttar að samkvæmt 31. og 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar skuli miðla upplýsingum um heilsufar umsækjenda um alþjóðlega vernd til yfirvalda í viðtökuríki, að uppfylltum skilyrðum ákvæðanna, þannig að flutningur viðkomandi fari fram með þeim hætti að heilsufari þeirra verði ekki stefnt í hættu.

Kærandi hefur greint frá því að hún og A hafi orðið fyrir kynþáttafordómum á Möltu og að hún óttist að börn hennar verði fyrir kynferðisofbeldi. Samkvæmt fyrrgreindum skýrslum er kynferðisofbeldi og hvers kyns ofbeldi gagnvart börnum á Möltu refsivert. Af framangreindum gögnum verður ráðið að löggæslan sé virk á Möltu og að kærandi geti leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra yfirvalda óttist hún um öryggi sitt eða barna sinna eða telji þeim ógnað. Í framangreindum gögnum kemur fram að þolendur geti leitað til lögregluyfirvalda á Möltu en á heimasíðu lögreglunnar kemur fram að einstaklingar geti tilkynnt um brot til lögreglunnar á lögreglustöð eða í gegnum síma. Þá hefur kærandi greint frá því við meðferð málsins að lögreglan hafi rannsakað mál A vegna tilkynningar um kynferðisbrot. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár maltneskra yfirvalda verði hún eða börn hennar fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og barna hennar, beri ekki með sér að þær muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að þær geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem skapast hafa vegna Covid-19 faraldursins. Með vísan til framangreinds, þ.m.t. þeirra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, telur nefndin ljóst að verulega hafi dregið úr þeirri óvissu sem til staðar var í upphafi Covid-19 faraldursins og að ekkert bendi til þess að þjónusta til umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu hafi skerst á síðustu mánuðum þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá er bólusetning langt á veg komin í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu.

Af skýrslum er ljóst að viðtökuríkið býr við stöðuga stjórnarhætti og sterka innviði. Að mati kærunefndar er því ekkert sem bendir til þess að það tímabundna ástand sem hefur ríkt komi til með að hafa teljandi áhrif á getu eða vilja viðtökuríkisins til að taka á móti kæranda og barni hennar þar í landi og veita þeim nauðsynlegan stuðning og viðeigandi aðbúnað.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma jafnframt fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Sem fyrr segir eru fjölskyldur sem leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd á Möltu almennt vistaðar saman. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að leyst sé úr umsóknum þeirra m.t.t. meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar.

Þá tekur kærunefnd fram að í 3. mgr. 20. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar kemur fram að staða ólögráða barns, sem sé í fylgd umsækjanda og uppfyllir skilyrði skilgreiningar um aðstandanda þess, skuli vera óaðskiljanleg stöðu aðstandanda þess og heyra undir aðildarríkið sem ber ábyrgð á meðferð umsóknar þess aðstandanda um alþjóðlega vernd, jafnvel þótt ólögráða barnið sé ekki umsækjandi sjálft, að því tilskildu að slíkt samræmist hagsmunum barnsins. Sama meðferð eigi við um börn sem fædd eru eftir að umsækjandi kemur á yfirráðasvæði aðildarríkjanna án þess að hefja þurfi nýja málsmeðferð varðandi umsjá þeirra. Samkvæmt framangreindu ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar ber Malta ábyrgð á umsókn barns kæranda þrátt fyrir að það hafi fæðst hér á landi.

Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í málum kæranda og barna hennar og umfjöllunar um aðstæður barna sem sækja um alþjóðlega vernd á Möltu er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Möltu samrýmist hagsmunum barnanna þegar litið er m.a. til öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja beiðni um að taka til efnismeðferðar umsóknir barna kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi, og fallast á að senda þær til Möltu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barna kæranda að umsóknir þeirra verði ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 14. júní 2022 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málanna sem bendir til þess að hún og börn hennar hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í málum kæranda og barna hennar þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar 29. mars 2022.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tiltekni lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema ofangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.

Eins og ráða má af ofangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná mjög háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda og barna hennar til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.

Þá benda öll gögn til þess að kærendur hafi raunhæf úrræði á Möltu, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd á Möltu og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og barna hennar, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi og börn hennar eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda og barna hennar ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við ákvarðanir Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar, þ. á m. við mat stofnunarinnar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og barna hennar.

Vegna athugasemda kæranda í greinargerð vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda sem horfa beri til við mat á því hvort rétt sé að taka umsókn hennar til efnismeðferðar hér á landi. Þá tekur kærunefnd fram að kærandi og börn hennar hafa við meðferð málsins verið metin í sérstaklega viðkvæmri stöðu líkt og fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar.

Vegna tilvísunar kæranda til úrskurðar kærunefndar nr. 528/2019 frá 7. nóvember 2019 tekur kærunefnd fram að í fyrrgreindu máli voru kærendur með viðbótarvernd á Möltu, auk þess sem einstaklingsbundnar aðstæður kærenda í því máli eru ólíkar einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda þessa máls, þ. á m. með tilliti til heilsufarsgagna. Málin eru því ekki sambærileg.

Kærandi byggir á því að kærandi og A og B séu ekki með virka alþjóðlega vernd á Möltu. Þar sem samþykki Möltu er byggt á c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur ekki til skoðunar hvort kærandi og börn hennar hafi virka vernd þar í landi. Að mati kærunefndar hefur það ekki áhrif á niðurstöðu málsins að dvalarleyfi kæranda og A sé útrunnið. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi dvalið á Möltu undanfarin 11 ár og hefur verið handhafi dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða, en samkvæmt upplýsingum um aðstæður þar í landi er gildistími þess eitt ár í senn. Af þeim upplýsingum og að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kærandi eigi möguleiki á að endurnýja dvalarleyfið en gildistími þess var líkt og að framan greinir til 15. júlí 2022. Þá áréttar kærunefnd að samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi ekki lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í viðtökuríki og mun standa slíkt til boða við komuna þangað til lands.

Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við þær.

Frávísun

Kærandi og A komu hingað til lands 29. mars 2022 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þær því ekki tilskilið leyfi til dvalar. Verður kæranda og börnum hennar því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafi þær verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi og börn hennar skulu fluttar til Möltu innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í málum þessum hafa maltnesk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og börnum hennar og umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd hér á landi og senda þær til Möltu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru því staðfestar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.


 

Úrskurðarorð:

 

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                            Gunnar Páll Baldvinsson


 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum