Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mannanafnanefnd, úrskurður 11. nóvember 2011

Mál nr. 86/2011                    Eiginnafn:     Mildinberg

Hinn 11. nóvember 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 86/2011 en erindið barst nefndinni 8. nóvember:

Eiginnafnið Mildinberg (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Mildinbergs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Til samanburðar má vísa til fjölda líkra eiginnafna, s.s. Eyberg, Hafberg, Hallberg og Vilberg.

 Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Mildinberg (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum