Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 239/2022 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 23. júní 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 239/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22040037

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 20. apríl 2022 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...]og vera ríkisborgari Íran (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 1. apríl 2022, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi, aðallega á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, en til vara á grundvelli 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi lagði upphaflega fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 4. júlí 2018. Hinn 9. apríl 2019 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnismeðferðar hér á landi. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi fluttur til Ítalíu 5. júní 2019. Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi öðru sinni 11. júní 2019. Hinn 18. júlí 2019 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Kærandi fór sjálfur af landi brott 10. júlí 2019. Hinn 11. janúar 2022 lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi í þriðja sinn. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, dags. 19. janúar 2022, kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Hinn 19. janúar 2022 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 9. febrúar 2022, kom fram að kæranda hafi verið veitt dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar á Ítalíu. Dvalarleyfi hans hafi runnið út 26. mars 2019 en kærandi hafi ekki óskað eftir endurnýjun. Send var önnur upplýsingabeiðni til yfirvalda á Ítalíu 15. mars 2022. Í svari sem barst 17. mars 2022 kemur fram að alþjóðleg vernd hans hafi ekki verið afturkölluð. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, dags. 16. febrúar 2022, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 1. apríl 2022 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 5. apríl 2022 og kærði kærandi ákvörðunina 20. apríl 2022 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 8. maí 2022 ásamt fylgigögnum. Þá bárust kærunefnd viðbótargögn 1. og 22. júní 2022.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Ítalíu.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur m.a. fram að kærandi hafi ekki snúið aftur til Ítalíu þegar hann hafi yfirgefið Ísland síðast. Kærandi greinir frá því að honum hafi verið rænt í Tyrklandi og hann fluttur til Íran þar sem hann hafi verið fangelsaður og pyntaður í nokkra mánuði vegna þátttöku sinnar í mótmælum. Kærandi hafi skaddast á baki, hand- og fótlegg og beðið andlegan skaða af. Þá hafi hann verið greindur með áfallastreituröskun og hann eigi erfitt með svefn. Kærandi mótmælir því að vera sendur til viðtökuríkis, þar sé hópur af írönskum einstaklingum með tengsl við írönsk stjórnvöld sem hafi hótað honum. Þá hafi hann ekki fengið aðstoð á Ítalíu eftir að hann hafi hlotið alþjóðlega vernd þar í landi. Hann hafi hvorki fengið húsnæði né framfærslu og ekki fengið aðstoð vegna alvarlegra andlegra vandamála sinna. Kærandi greinir einnig frá því að hann sé enn að fá hótanir frá írönskum aðila sem hafi tengsl við írönsk stjórnvöld, sem hafi m.a. lýst eftir honum með aðstoð Interpol.

Kærandi byggir aðallega á því að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, með síðari breytingum. Við mat á því hvort sérstakar ástæður í skilningi ákvæðisins eigi við í máli kæranda beri íslenskum stjórnvöldum að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður hans og þær afleiðingar sem endursending gæti haft í för með sér fyrir kæranda, bæði líkamlegar og andlegar. Kærandi telur þær aðstæður sem hann upplifði og muni standa frammi fyrir verði hann endursendur til Ítalíu falli að öllu leyti undir þau skilyrði sem sett séu fram í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi vísar í greinargerð sinni til heimilda sem hann telur að gefi til kynna að raunveruleg staða flóttafólks á Ítalíu sé önnur en Útlendingastofnun leggi til grundvallar í máli hans. Með vísan til frásagnar kæranda og áreiðanlegra heimilda muni kærandi sæta gífurlegum hindrunum sem jafnast á við útilokun þegar kemur að aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, húsnæði, atvinnuþátttöku og menntun á grundvelli stöðu hans sem flóttamaður auk þess sem hann megi vænta þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings á Ítalíu. Þá hafi kærandi greint frá því að hafa mætt miklum fordómum á Ítalíu sem fái stoð í heimildum. Ljóst sé að kynþáttafordómar séu mikið vandamál á Ítalíu og allar líkur á því að kærandi muni verða þolandi þess, verði honum gert að snúa aftur þangað. Kærandi telur að stjórnvöld verði að líta til lögskýringargagna með 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, fjölþættra og alvarlegra veikinda hans, bæði líkamlegra og andlegra, og aðstæðna hans á Ítalíu.

Til vara byggir kærandi á því að endursending kæranda til Ítalíu jafngildi broti á grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement). Kærandi vísar til þess að það skuli skoðað í hverju tilviki fyrir sig hvort aðstæður flóttafólks, sem hafi búið við erfiðar aðstæður á götum úti fyrir brottför frá Ítalíu og án þess að eiga nokkra von um það að aðstæður þeirra batni, samsvari broti ítalskra stjórnvalda á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sbr. lög nr. 62/1994 og vísar til ummæla Evrópudómstólsins frá 19. mars 2019 í máli nr. C-163/17, Jawo gegn Þýskalandi. Lýsingar kæranda á aðstæðum á Ítalíu komi heim og saman við heimildir um aðstæður þar í landi varðandi húsnæði, atvinnu, félagslega þjónustu, heilbrigðisþjónustu, aðbúnað, fordóma og mismunun. Með vísan til þess verði að telja að aðstæður flóttafólks á Ítalíu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreinds beri kærunefnd útlendingamála skylda til að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi og taka umsókn hans til efnismeðferðar á Íslandi með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 42. gr. sömu laga.

Kærandi gerir margvíslegar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við mat hennar á auðkenni hans og einstaklingsbundinni stöðu hans. Þá gerir kærandi athugasemd við þá fullyrðingu Útlendingastofnunar að stofnunin geti ekki staðreynt frásögn hans um atburði sem hann kveður hafa gerst í heimaríki og á ferðalagi hans þangað. Íslenskum stjórnvöldum beri, við mat á trúverðugleika, að leggja mat á frásögn og afla gagna í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Jafnframt sé lögð skylda á stjórnvöld að gera ráðstafanir til að bera kennsl á og skrá einkenni og ummerki pyndinga. Útlendingastofnun hafi virt þetta af vettugi og látið duga að kalla eftir þeim takmörkuðu gögnum sem kærandi gat sjálfur lagt fram. Þá mótmælir kærandi þeirri staðhæfingu Útlendingastofnunar að frekari heilsufarsgögn komi ekki til með að hafa áhrif á niðurstöðu málsins. Það sé skylda stjórnvalda að tryggja að mál umsækjenda um alþjóðlega vernd hér á landi séu nægjanlega upplýst, ekki sé hægt að færa þá skyldu á umsækjendur og á sama tíma neita þeim um nauðsynlega og lögboðna þjónustu og greiningu. Kærandi fái ekki skilið hvernig matið sé einstaklingsbundið þegar umfjöllun stofnunarinnar um fjölþættan og alvarlegan heilsufarsvanda kæranda sé jafn takmörkuð og raun beri vitni en engin göng liggi fyrir um alvarleika eða umfang vandans. Kærandi hafi ítrekað leitað til læknis hér á landi og lagt fram gögn um óútskýrðan háþrýsting og alvarleg andleg veikindi. Ljóst sé að kærandi þurfi mun sérhæfðari þjónustu en þá grunnheilbrigðisþjónustu sem Útlendingastofnun hafi vísað til. Þá sé kærandi ekki með dvalarleyfi í viðtökuríki sem geri stöðu hans erfiðari en ella við að sækja sér heilbrigðisþjónustu. Auk þess sé kærandi í hópi þeirra sem verða fyrir hvað verstu áhrifum af Covid-19. Þá krefst kærandi þess að kærunefnd kanni hvort írönsk stjórnvöld hafi lýst eftir honum með aðstoð alþjóðalögreglunnar (e. Interpol). Kærandi telur það nauðsynlegt svo upplýsa megi um þá hættu sem honum stendur af stjórnvöldum í heimaríki og þá hættu sem hann er í á Ítalíu vegna þeirra ofsókna.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...]. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að hann sé kvæntur og eigi tvo syni sem séu búsettir í Danmörku. Eftir að kærandi hafi fengið synjun um alþjóðlega vernd hér á landi í júní 2019 hafi hann farið til Danmerkur og þaðan til Grikklands. Þá hafi kærandi farið með bát til Tyrklands en þar hafi honum verið rænt og hann fluttur til Íran þar sem hann hafi verið fangelsaður og pyndaður. Kærandi hafi farið til sálfræðings í heimaríki sem hafi greint hann með áfallastreituröskun. Kærandi hafi farið í gegnum Danmörku til Íslands og sótt um alþjóðlega vernd hér á landi í byrjun árs 2022. Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi er handhafi alþjóðlegar verndar á Ítalíu. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að heilsa hans hafi versnað síðan hann hafi sótt um alþjóðlega vernd hér á landi síðast. Þá sé líf hans í hættu á Ítalíu og þar hafi honum verið hótað af hópi einstaklinga frá írönskum yfirvöldum. Kærandi hafi ekki fengið aðstoð lögregluyfirvalda á Ítalíu. Auk þess hafi kærandi ekki fengið heilbrigðisþjónustu eða fjárhagsaðstoð á Ítalíu. Framlögð heilsufarsgögn bera með sér að kærandi sé með háþrýsting og noti lyf að staðaldri. Þá hafi kærandi legið inni á hjartadeild vegna brjóstverks og hefur sögu um andleg heilsufarsvandamál.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins og þeim gögnum sem kærandi lagði fram við fyrri umsóknir hans um alþjóðlega vernd er kærandi handhafi alþjóðlegrar verndar á Ítalíu og var með dvalarleyfi þar í landi með gildistíma til 26. mars 2019. Samkvæmt upplýsingum frá ítölskum stjórnvöldum er alþjóðleg vernd kæranda á Ítalíu enn í gildi. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur á Ítalíu í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Amnesty International Report 2021/2022 – Italy (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2021 (European Asylum Support Office, 2. júní 2021);
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, uppfært 20. maí 2022);
  • Asylum Information Database. Housing out of reach. The reception of refugees and asylum seekers in Europe (European Council on Refugees and Exiles, 31. maí 2019);
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerence, 7. júní 2016);
  • Freedom in the World 2022 – Italy (Freedom House, febrúar 2022);
  • Italy 2021 Human Rights Report (United States Department of State, 12. apríl 2022);
  • Reception conditions in Italy. Updated report on the situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees, in Italy (Swiss Refugee Council, 21. janúar 2020);
  • Report of mission to Italy on racial discrimination, with a focus on incitement to racial hatred and discimination (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, 2019);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, desember 2019);
  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013);
  • Upplýsingar af vefsíðu Amnesty International (www.amnesty.org);
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati – (http:www.cir-onlus.org/en/);
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (www.hatecrime.osce.org/italy);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 23. júní 2022);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 23. júní 2022) og
  • World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Samkvæmt framangreindum gögnum eru dvalarleyfi einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og einstaklinga með viðbótarvernd gefin út til fimm ára en að þeim tíma liðnum geta handhafar sótt um ótímabundið dvalarleyfi á Ítalíu. Í framangreindri skýrslu European Council on Refugees and Exiles (ECRE) kemur fram að til að endurnýja dvalarleyfi sitt þar í landi þurfi að fylla út þar til gert eyðublað og senda það með bréfpósti en málsmeðferðin geti tekið allt upp í nokkra mánuði. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns geti öðlast ríkisborgararétt að fimm árum liðnum en einstaklingar með viðbótarvernd að tíu árum liðnum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns fái útgefin flóttamannavegabréf (í. documenti di viaggio) með fimm ára gildistíma en handhafar viðbótarverndar geti fengið svonefnt ferðaleyfi (í. titolo di viaggio). Af framangreindum gögnum verður þó ekki séð að á Ítalíu sé munur á réttindum einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og handhafa viðbótarverndar hvað varðar aðgang að húsnæði, heilbrigðisþjónustu og atvinnuleyfi.

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Í framangreindri skýrslu ECRE kemur m.a. fram að húsnæðisaðstoð við einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar sé af skornum skammti. Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tóku ný lög nr. 130/2020 gildi á Ítalíu árið 2020 sem kveða á um breytingar á móttökumiðstöðvum og búsetuúrræðum fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Samkvæmt ákvæðum laganna hefur móttöku- og húsnæðiskerfið SIPRIOMI, sem áður var einungis ætlað þeim sem hlotið hafa alþjóðlega vernd og fylgdarlausum börnum, verið endurskipulagt og fengið nýtt nafn, SAI (e. System of accommodation and integration). Búsetuúrræðinu er núna skipt í tvennt; annars vegar móttökumiðstöðvar og búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og hins vegar búsetuúrræði og þjónustu fyrir þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu.  SAI er þó áfram aðallega ætlað handhöfum alþjóðlegrar verndar og fylgdarlausum börnum. Þegar einstaklingar hafi fengið inngöngu í SAI úrræði megi þeir dvelja þar í sex mánuði með möguleika á framlengingu í eitt ár og í undantekningartilvikum enn lengur. SAI sé rekið af sveitarfélögum og frjálsum félagasamtökum og eigi búsetumiðstöðvarnar m.a. að tryggja þeim sem dvelja þar túlkaþjónustu, lögfræðiaðstoð, tungumálakennslu, heilbrigðisþjónustu, félags- og sálfræðiþjónustu og fleira. Þá eigi handhafar alþjóðlegrar verndar rétt á stuðningi við aðlögun og aðstoð við atvinnuleit. Aftur á móti séu ekki nógu mörg SAI úrræði til að mæta þeim fjölda sem hafi fengið alþjóðlega vernd.Í framangreindri skýrslu ECRE kemur m.a. fram að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar og hafi dvalarleyfi á Ítalíu hafi sama rétt til atvinnuþátttöku og ítalskir ríkisborgarar. Hins vegar sé atvinnuleysi mikið og einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi oft í erfiðleikum með að finna atvinnu við hæfi en eigi, líkt og ítalskir ríkisborgarar, rétt á aðstoð þeirri sem vinnumiðlanir veiti. Þá hafi einstaklingar sem njóti alþjóðlegrar verndar á Ítalíu almennt sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til velferðarþjónustu. Aftur á móti sé í einhverjum tilvikum gerð krafa um búsetu á Ítalíu í ákveðinn tíma, t.a.m. sé tiltekin aðstoð við framfærslu eingöngu veitt einstaklingum sem hafi búið í tíu ár á Ítalíu.

Í framangreindri skýrslu ECRE kemur m.a. fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd, bæði börn og fullorðnir, eigi sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, að því gefnu að þeir hafi skráð sig inn í heilbrigðiskerfið. Slík skráning sé háð því að umsækjandi hafi skráð lögheimili sem eðli máls samkvæmt geti verið hindrun fyrir einstaklinga sem séu án fastrar búsetu. Skráning í heilbrigðiskerfið falli ekki sjálfkrafa úr gildi meðan á málsmeðferð endurnýjunar dvalarleyfisins standi en í framkvæmd geti einstaklingar með útrunnin dvalarleyfi átt í erfiðleikum með að nálgast heilbrigðisþjónustu. Sjúklingar þurfi almennt að greiða hluta þess kostnaðar sem falli til vegna heilbrigðisþjónustu sem þeir nýti sér en frá því séu þó undantekningar, t.d. í þeim tilvikum þegar sjúklingar séu utan vinnumarkaðar og án annarrar framfærslu. Mismunandi túlkun á reglum um greiðsluþátttöku sjúklinga hafi þó leitt til þess að í sumum sveitarfélögum hafi verið gerð krafa um að einstaklingar sem njóti alþjóðlegrar verndar en séu utan vinnumarkaðar greiði kostnað við heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt framangreindum heimildum eru því ýmsar aðgangshindranir þegar kemur að heilbrigðiskerfinu á Ítalíu, m.a. vegna tungumálaörðugleika.

Af framangreindum skýrslum verður jafnframt ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna eru vandamál á Ítalíu. Í framangreindri skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, vegna sendifarar árið 2019 um mismunun á grundvelli kynþáttar, komi fram að í ítalskri löggjöf sé kveðið á um vernd gegn mismunun á grundvelli kynþáttar. Þá sé í stjórnarskrá landsins kveðið á um vernd ákveðinna hópa, þ. á m. útlendinga. Ítölsk yfirvöld hafi tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum. Á Ítalíu sé starfrækt stofnun (í. Ufficio Nazionale Antidiscriminazioni Razziali (UNAR)) sem hafi það hlutverk að berjast gegn hvers kyns mismunun. Einstaklingar sem telji sig hafa orðið fyrir mismunun þ. á m. vegna kynþáttar eða kynhneigðar og þurfi á aðstoð eða ráðgjöf að halda geti leitað til stofnunarinnar. Þá hafi stofnunin farið með umsjón eftirfylgni við aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance) sem hafi verið í gildi á árunum 2014-2016. Þá reki lögreglan stofnun sem hafi það hlutverk að bæta forvarnir og aðgerðir lögreglu við hatursglæpum (í. Osservatorio per la Sicurezza Contro gli Atti Discriminatori). Stofnuninni sé m.a. ætlað að auka þjálfun lögreglufólks og stuðla að því að hatursglæpir séu tilkynntir og skráðir. Stofnunin sé með netfang þar sem unnt sé að tilkynna mismunun á grundvelli m.a. kynþáttar, ríkisfangs og trúar. Þær tilkynningar sem teljist geta falið í sér glæpsamlegt athæfi séu áframsendar til lögreglu til rannsóknar en aðrar séu áframsendar til UNAR. Þá standi dómstólar landsins styrkum fótum sem hafi stuðlað að virkri framkvæmd sumra þeirra réttinda um vernd gegn mismunun á grundvelli kynþáttar sem mælt sé fyrir um í lögum. Þá hafi rannsóknum og ákærum fjölgað í málum er varði mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis á árunum 2016 til 2018. Framangreindar skýrslur bera enn fremur með sér að almenningur á Ítalíu getur leitað sér aðstoðar ítalskra löggæsluyfirvalda vegna ofbeldisbrota og hótana.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar eins og efnahagslegar ástæður, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Líkt og fram hefur komið er kærandi karlmaður á [...] sem sækir um alþjóðlega vernd hér á landi í þriðja sinn en eins og að framan greinir var umsóknum hans synjað um efnismeðgerð með úrskurðum kærunefndar í málum nr. KNU19020044, dags. 9. apríl 2019 og KNU19060044, dags. 18. júlí 2019.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann hafi hand- og fótleggsbrotnað auk þess sem hann hafi hlotið meiðsli í baki frá því hann hafi síðast sótt um alþjóðlega vernd hér á landi. Þá sé andleg heilsa hans slæm og allt hljóð fari illa í hann. Sérfræðingur í heimaríki hafi greint hann með áfallastreituröskun. Auk þess sofi hann illa og fái martraðir. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dagana 24. febrúar og 2. mars 2022, kemur m.a. fram að kærandi sé hraustlegur en noti lyf reglulega. Kærandi hafi greint frá því að hafa verið lagður inn vegna ýmissa sjúkdóma og áverka. Þá sé hann stöðugt með verk í baki og hnjám og óski eftir verkjalyfjum. Kærandi hafi greint frá því að hafa farið í aðgerð við gyllinæð sem hafi ekki skilað árangri. Þá hafi kærandi verið mældur með háan blóðþrýsting og bókaður hafi verið tími til frekari skoðunar. Auk þess hafi verið bókaður tími hjá sálfræðingi. Samkvæmt göngudeildarskrá Landspítalans, dags. 1. febrúar 2022, greindist kærandi með Covid-19 og naut fjarþjónustu Covid-göngudeildar.

Samkvæmt gögnum frá heilbrigðisstofnun Suðurnesja, frá 1. mars til 20. maí 2022, var kærandi í reglulegu blóðþrýstingseftirliti hjá stofnuninni. Samkvæmt samskiptaseðli frá stofnuninni, dags. 9. mars 2022, var kærandi sendur í frekara mat á bráðamóttöku vegna streitu og mæði. Kærandi hafi greint frá höfuðverk, doða í vörum, andlegri vanlíðan og minnisleysi. Auk þess hafi kærandi kveðist vera með tíð þvaglát og gyllinæð. Kærandi hafi verið með of háan blóðþrýsting og borið sig illa. Hann hafi mæðst við gang, verið haltur og greinilega með verk í […] fæti. Kærandi hafi m.a. verið þrútinn í andliti, með höfuðverk, andþyngsli og stoðkerfisverki. Kæranda hafi verið gefin lyf og hann sendur í frekari rannsóknir. Samkvæmt samskiptaseðli frá heilsugæslunni Keflavík, dags. 11. apríl 2022, leitaði kærandi þangað vegna fjölþættra vandamála, m.a. vöðvaverkja og slappleika. Þá hafi kærandi greint frá vanlíðan, kvíða og svefntruflunum. Kærandi hafi verið sendur í blóðprufur og gefin lyf vegna geðrænna vandamála. Samkvæmt samskiptaseðli frá heilsugæslunni Keflavík, dags. 13. apríl 2022, hafi kærandi greint frá svima, svefnerfiðleikum og marblettum á nárasvæði. Kæranda hafi verið ávísað nýjum lyfjum vegna háþrýstings. Samkvæmt samskiptaseðli frá heilsugæslunni í Keflavík, dags. 22. apríl 2022, hafi kærandi leitað þangað m.a. vegna háþrýstings, þunglyndis, stoðkerfisverkja og blóðs í hægðum. Kæranda hafi verið gefin lyf vegna háþrýstings og þunglyndis. Þá hafi verið bókaður tími hjá sjúkraþjálfara. Samkvæmt samskiptaseðli frá heilsugæslunni Keflavík, dagana 18. og 20. maí 2022, hafi kærandi greint frá andlegri vanlíðan og að hann fái oft höfuðverk og hitatoppa. Hann sé dofinn og þreyttur og með verk hægra megin í brjóstkassa sem leiði aftur í bak og öxl. Farið hafi verið yfir lyfjanotkun hans. Samkvæmt samskiptaseðli, dags. 27. maí 2022, hafi kærandi komið með sjúkrabíl á slysa- og bráðamóttöku heilbrigðisstofnunar Suðurnesja vegna brjóstverks, hann hafi sögu um hjartaáfall en sé ekki bráðveikur að sjá. Kærandi hafi fengið lyf og verið sendur á bráðamóttöku Landspítalans til frekari skoðunar.

Samkvæmt komunótu frá Landspítalanum, dags. 27. maí 2022, var kærandi lagður inn á hjartadeild vegna brjóstverks og ritbreytinga. Kærandi hafi ekki verið bráðveikindalegur að sjá en verkjaður. Kærandi hafi greint frá því að hafa fengið hjartaáfall í Danmörku. Kærandi hafi verið sendur í frekari rannsóknir, gefin lyf og hann notið aðhlynningar. Samkvæmt dagáli, dags. 28. maí 2022, hafi kærandi látið ágætlega af sér. Kærandi hafi greint frá seyðing fyrir brjósti og að stefnt sé að þræðingu. Kærandi hafi kvartað yfir höfuðverk og verið gefið verkjastillandi. Samkvæmt dagáli, dags. 29. maí 2022, hafi járnbirgðir kæranda mælst lágar. Kærandi hafi verið sendur í hjartaómun og stefnt að magaspeglun og þræðingu. Samkvæmt umsögn um rannsókn, dags. 30. maí 2022, hafi kærandi farið í hjartaómun sem litið hafi eðlilega út. Kærandi sé með væga […] og að það eigi ekki að þræða. Samkvæmt umsögn um rannsókn, dags. 31. maí 2022, hafi kærandi farið í magaspeglun vegna járnskortsblóðleysis. Magaspeglun hafi ekki sýnt blæðingarstað og kæranda hafi verið ráðlagt að fara í ristilspeglun. Samkvæmt læknabréfi hinn sama dag kemur fram að kærandi hafi útskrifast við góða líðan. Send hafi verið beiðni í ristilspeglun og tilvísun á bráðadeild lyflækninga til eftirfylgdar. Samkvæmt gögnum málsins leitaði kærandi á hjartadeild Landspítalans, dags. 14. júní 2022, vegna brjóstverks. Í göngudeildarskrá þann sama dag kemur fram að kærandi hafi verið með meltingarblæðingu og grunur sé um […]. Kærandi hafi lýst kvíðaeinkennum og einkennum anginu (hjartaöng) við göngu. Kærandi hafi ekki virst vera blæðandi og frekari meltingarrannsóknir séu fyrirhugaðar. Kærandi hafi fengið lyf og tíma í eftirlit eftir tvo mánuði. Ef einkenni séu enn til staðar verði hjartaþræðingarbeiðni íhuguð.

Samkvæmt gögnum málsins leitaði kærandi á bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 20. apríl 2022, vegna ofsakvíða og ofbeldis- og sjálfsvígshugsana. Kærandi hafi greint frá því að vera hræddur um að skaða sjálfan sig og aðra. Þá fái hann tíðari ofsakvíðaköst nú en áður. Hann hafi verið greindur með áfallastreituröskun, lent í áföllum og sætt pyndingum. Kærandi hafi virkað kvíðinn í viðtali og mögulega verkjaður. Yfirbragð hans hafi verið léttara eftir viðtal. Þá hafi kærandi ekki verið metinn hugsanatruflaður. Ekki hafi komið fram ranghugmyndir og kærandi neiti ofskynjunum. Kærandi sé ekki metinn í bráðri sjálfsvígshættu eða hættu á að beita ofbeldi. Kærandi neiti innlögn en þiggi lyf og eftirfylgd. Ekki sé ástæða til nauðungarvistunar en sótt hafi verið um bráðaeftirfylgd til að meta líðan, sjálfsvígs- og ofbeldishugsanir. Samkvæmt göngudeildarnótu, dags. 25. apríl 2022, mætti kærandi í eftirfylgd á bráðaþjónustu geðsviðs. Kærandi hafi tjáð verki í líkamanum og talið lyfin ekki virka. Þá hafi kærandi greint frá því að ofbeldishugsanir hans hafi versnað. Kærandi hafi verið að hugsa um að taka eigið líf, hann sé reiður og vilji vera í friði. Kærandi hafi ekki verið metin hugsanatruflaður. Þá hafi ekki komið fram ranghugmyndir og hann neiti ofskynjunum. Kærandi hafi ekki verið metinn í bráðri sjálfsvígshættu. Honum hafi verið gefin lyf og ráðlagt að fá tíma hjá sálfræðingi.

Í gögnum málsins er jafnframt að finna fjölda heilsufarsgagna vegna fyrri umsókna kæranda um alþjóðlega vernd og voru þau höfð til hliðsjónar við úrslausn málsins. Vísast til fyrri úrskurða kærunefndar útlendingamála vegna umsókna kæranda hvað þau varða.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun 16. febrúar 2022, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 22. apríl, um framlagningu frekari gagna í málinu. Viðbótargögn bárust 1. og 22. júní 2022. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, svo sem áskilið er í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður á Ítalíu verður ráðið að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu, þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu og ríkisborgarar Ítalíu þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hann geti vænst þess að staða hans, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans þar sem hann hafi haft takmarkað aðgengi að atvinnu, félags- og heilbrigðisþjónustu á Ítalíu. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður á Ítalíu kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu. Þótt skýrslur um aðstæður á Ítalíu bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar í landi séu að einhverju leyti lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu sem hann á að lögum rétt á og þarf á að halda.

Kærandi hefur jafnframt greint frá því að hann óttist tiltekna aðila á Ítalíu sem hafi tengsl við stjórnvöld í heimaríki hans. Af framangreindum gögnum verður ráðið að löggæslan sé virk þar í landi og kærandi geti leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra yfirvalda óttist hann um öryggi sitt eða telji sér ógnað. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Með vísan til framangreinds, þ.m.t. þeirra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, telur nefndin ljóst að verulega hafi dregið úr þeirri óvissu sem til staðar var í upphafi Covid-19 faraldursins og að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar á Ítalíu hafi skerst á síðustu mánuðum þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá er bólusetning langt á veg komin í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu. Auk þess var kærandi greindur með Covid-19 hér á landi 1. febrúar 2022.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 16. febrúar 2022 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína 11. janúar 2022.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.

Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Sú staðreynd að dvalarleyfi kæranda sé útrunnið hefur að mati kærunefndar ekki áhrif á þessa niðurstöðu enda nýtur kærandi áfram alþjóðlegrar verndar á Ítalíu þrátt fyrir að þurfa að endurnýja dvalarleyfi sitt sbr. framangreindar landaupplýsingar.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar og reglur stjórnsýsluréttar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu og mat stofnunarinnar á stöðu kæranda.

Með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga gerir kærandi athugasemd við að skort hafi heildstætt og einstaklingsbundið mat á stöðu kæranda í hinni kærðu ákvörðun. Kærandi vísar m.a. til þess að stjórnvöldum beri skylda til að bera kennsl á og skrá einkenni og ummerki pyndinga sem kærunefnd hafi virt að vettugi og látið duga að kalla eftir þeim takmörkuðu gögnum sem kærandi hafi sjálfur getað lagt fram. Þá mótmælir kærandi þeirri staðhæfingu Útlendingastofnunar að frekari heilsufarsgögn komi ekki til með að hafa áhrif á niðurstöðu málsins. Samkvæmt gögnum málsins fór kærandi í viðtal hjá Útlendingastofnun, dags. 16. febrúar 2022, ásamt talsmanni sínum og greindi þar frá heilsufari sínu. Af endurriti viðtalsins má ráða að fulltrúi Útlendingastofnunar hafi spurt kæranda nánar út í heilsufar hans og þá sérstaklega að hvaða leyti það hafi breyst frá fyrri umsóknum hans. Kæranda var jafnframt leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá fór kærandi í heilbrigðisskoðun hjá Göngudeild sóttvarna, dags. 24. febrúar 2022, þar sem lagt var mat á líkamlegt og andlegt heilsufar hans. Auk þess liggja fyrir ítarleg heilsufarsgögn í máli kæranda allt aftur til ársins 2018, þegar kærandi sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi. Kærandi hefur jafnframt fengið tækifæri til og lagt fram frekari heilsufarsgögn við meðferð málsins hjá kærunefnd og er það mat kærunefndar að mál kæranda hafi verið nægjanlega upplýst er varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þegar litið er til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga setur fram er ljóst að þau gögn sem liggja fyrir í málinu benda ekki til þess að frekari gagnaöflun geti haft áhrif á niðurstöðu málsins. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda sem áhrif gætu haft á mat á því hvort rétt sé að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

Kærandi hefur jafnframt gert kröfu um, með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, að kærunefnd kanni hvort írönsk stjórnvöld hafi lýst eftir honum með aðstoð alþjóðalögreglunnar. Með ákvörðun Útlendingastofnunar er kveðið á um endursendingu kæranda til Ítalíu þar sem hann er með virka alþjóðlega vernd, en ekki til heimaríkis. Líkt og komið hefur fram getur kærandi leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra yfirvalda óttist hann um öryggi sitt þar í landi. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Af þeirri ástæðu telur kærunefnd ekki ástæðu til að afla upplýsinga frá alþjóðalögreglunni um hvort hann sé eftirlýstur í heimaríki.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands 10. janúar 2022 og sótti um alþjóðlega vernd 11. janúar 2022. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda  hafi kærandi verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                             Sandra Hlíf Ocares    


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum