Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 27/2018 Úrskurður 26. júní 2018

Mál nr. 37/2018                    Eiginnafn:     Alexsandra (kvk.)

 

 

 

Hinn 26. júní 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 37/2018 en erindið barst nefndinni 4. júní.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í máli þessu reynir á skilyrðið um almennar ritreglur íslensks máls. Líkt og segir í fyrri úrskurðum mannanafnanefndar um nafnið Alexsandra, frá 25. mars 2010 og 1. mars 2012, er rithátturinn Alexsandra ekki í samræmi við venjulegan íslenskan framburð nafnsins Alexandra eða íslenska hefð í ritun þess og telst því ekki vera í samræmi við almennar ritreglur, sbr. 5. gr. laga nr. 45/1996. Af þeim sökum er einungis hægt að fallast á nafnið ef umbeðinn ritháttur þess telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Í greinargerð með frumvarpi að núgildandi lögum um mannanöfn er mælt með því að við túlkun á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn sé stuðst við vinnulagsreglur sem mannanafnanefnd hafði áður sett sér. Þessar reglur hafa verið endurskoðaðar reglulega, síðast þann 19. janúar 2015, og eru sem hér segir:

1.      Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

a.       Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.      Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.       Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.      Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;

e.       Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.      Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.      Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Samkvæmt gögnum Þjóðskrár er bera tvær stúlkur nafnið Alexsandra í þjóðskrá sem uppfylla skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna, sú eldri fædd árið 2003.

Eiginnafnið Alexsandra uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Alexsandra (kvk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum