Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 10/2017 Úrskurður 9. febrúar 2017

Mál nr. 10/2017                     Millinafn:       Kelddal

 


 

Hinn 9. febrúar 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 10/2017 en erindið barst nefndinni 27. janúar:

Millinafnið Kelddal er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Kelddal uppfyllir þannig ákvæði  6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Kelddal er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum