Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 54/2019 úrskurður 7. ágúst 2019

Mál nr. 54/2019                     Aðlögun kenninafns: Mikaelsson

                                            

 

Hinn 7. ágúst 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 54/2019.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 24. júní 2019, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XXX um að eiginnafn föður, Mihai, verði lagað að íslensku máli og að föðurkenning verði Mikaelsson.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Mikaelsson.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum