Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 292/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 292/2020

Fimmtudaginn 10. september 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 12. júní 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar um 36% bótarétt.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 28. mars 2020. Með ákvörðun, dags. 5. júní 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 26%. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun var um misritun að ræða en bótaréttur kæranda var metinn 36%.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. júní 2020. Með bréfi, dags. 15. júní 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 6. júlí 2020, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. júlí 2020, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að bótaréttur hennar hafi verið metinn 26%. Kærandi skilji ekki hvernig það sé hægt að finna út það hlutfall þar sem hún hafi ávallt unnið 100% vinnu og stundum rúmlega það. Eftir 10 vikna bið, atvinnulaus með heimili og börn, hafi sú ákvörðun verið mikið áfall. Kærandi óski eftir leiðréttingu á máli sínu og að bótaréttur verði metinn 100%.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Kærandi hafi starfað hjá eigin fyrirtæki áður en hún hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga. Í 15. gr. laganna sé kveðið á um hvaða tímabil teljist til ávinnslutímabils atvinnuleitanda þegar ákvarða skuli rétt hans til atvinnuleysisbóta samkvæmt lögunum. Í 2. mgr. 15. gr. segi: „Launamaður, sem starfað hefur skemur en tólf mánuði en lengur en þrjá mánuði á síðustu tólf mánuðum á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar, telst tryggður hlutfallslega í samræmi við lengd starfstíma að öðrum skilyrðum laganna uppfylltum, sbr. einnig 4. mgr.“ Í 2. mgr. 16. gr. laganna segi að þegar um sé að ræða launamann sem starfi hjá eigin félagi, svo sem einkahlutafélagi eða samlagsfélagi, skuli miða við reglur Ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald við mat á bótarétti einstaklinga. Með ákvæðinu sé kveðið skýrt á um að þegar um sé að ræða umsækjendur um atvinnuleysisbætur sem hafi starfað hjá eigin félagi á ávinnslutímabilinu skuli miða við reglur Ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald í viðkomandi starfsgrein.

Útreikningur bótaréttar þeirra sem starfi hjá eigin fyrirtækjum eða sem sjálfstætt starfandi einstaklingar fari eftir 19. gr. laga nr. 54/2006. Vinnumálastofnun beri að reikna bótarétt kæranda út frá þeim launum sem hún hafi reiknað sér vegna vinnu sinnar. Ef endurgjald nái ekki lágmarksviðmiðum Ríkisskattstjóra ákvarðist bótaréttur af hlutfalli endurgjalds sem greitt hafi verið af og viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra. Kærandi geti því einungis átt hlutfallslegan rétt til bóta ef reiknað endurgjald sé lægra en viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra í viðkomandi starfsgrein. Starf kæranda falli undir tekjuflokk B9 samkvæmt reglum um reiknað endurgjald, samkvæmt 3. málsl. 1. mgr. 58. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Flokkurinn eigi við um störf einstaklings sem sé að hefja starfsemi og starfi einn eða með einum starfsmanni. Viðmiðunartekjur Ríkisskattstjóra fyrir tekjuflokk B9 vegna ársins 2019 hafi verið 446.000 kr. á mánuði. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda hafi laun hennar vegna starfa hjá eigin félagi numið 160.000 kr. á mánuði.

Mán/ár

Viðmiðunarfjárhæð

Laun

Hlutfall

des-2019

446.000.-

160.000.-

35,9%

nóv-2019

446.000.-

160.000.-

35,9%

okt-2019

446.000.-

160.000.-

35,9%

sept-2019

446.000.-

160.000.-

35,9%

ágúst-2019

446.000.-

160.000.-

35,9%

júlí-2019

446.000.-

160.000.-

35,9%

Júní-2019

446.000.-

160.000.-

35,9%

maí-2019

446.000.-

160.000.-

35,9%

apríl-2019

446.000.-

166.250.-

37,3%

mars-2019

446.000.-

160.000.-

35,9%

 

Þar sem laun hafi ekki numið lágmarks viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra beri Vinnumálastofnun að ákvarða tryggingahlutfall kæranda af hlutfalli fjárhæðar reiknaðs endurgjalds sem greitt hafi verið af og viðmiðunarfjárhæðar. Samkvæmt skýru ákvæði 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri að byggja útreikning á bótarétti á þeim mismuni. Hlutfall launa kæranda og viðmiðunarfjárhæðar hafi verið að meðaltali 36% á ávinnslutímabili. 

Með hliðsjón af ofangreindum sjónarmiðum sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að bótaréttur kæranda sé rétt ákvarðaður 36%. 

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um 36% bótarétt kæranda.

Í 1. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um gildissvið laganna, en þar segir að lögin gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Í 2. gr. laganna kemur fram að markmið þeirra sé að tryggja launamönnum eða sjálfstætt starfandi einstaklingum tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir eru að leita sér að nýju starfi eftir að hafa misst fyrra starf sitt. Sjálfstætt starfandi einstaklingur er hver sá sem starfar við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi í því umfangi að honum sjálfum er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt reglum Ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald, skil á staðgreiðslu af reiknuðu endurgjaldi og tryggingagjaldi vegna starfs síns, sbr. b-lið 3. gr. laganna.

Óumdeilt er að kærandi var sjálfstætt starfandi áður en hún sótti um atvinnuleysisbætur. Í IV. kafla laga nr. 54/2006 er fjallað um skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum sjálfstætt starfandi einstaklinga. Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. telst sjálfstætt starfandi einstaklingur, sbr. b-lið 3. gr., að fullu tryggður samkvæmt lögunum eftir að hafa greitt mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi er nemur að lágmarki viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra, sbr. b-lið 3. gr., í viðkomandi starfsgrein og tryggingagjald samfellt á síðustu tólf mánuðum áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar að öðrum skilyrðum uppfylltum, sbr. þó einnig 4. og 6. mgr. Í 2. mgr. 19. gr. segir svo um útreikning bótaréttar:

„Sjálfstætt starfandi einstaklingur, sem greitt hefur mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi er nemur að lágmarki viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra, sbr. b-lið 3. gr., í viðkomandi starfsgrein og tryggingagjald skemur en tólf mánuði en þó lengur en þrjá mánuði á síðustu tólf mánuðum áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar, telst tryggður hlutfallslega í samræmi við fjölda þeirra mánaða sem hann hefur greitt staðgreiðsluskatt að öðrum skilyrðum laganna uppfylltum, sbr. þó einnig 4. og 6. mgr. Hið sama gildir um sjálfstætt starfandi einstakling sem hefur greitt mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi sem er lægra en viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra, sbr. b-lið 3. gr., í viðkomandi starfsgrein og tryggingagjald á síðustu tólf mánuðum áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar en þá ákvarðast tryggingahlutfall hans af hlutfalli fjárhæðar reiknaðs endurgjalds sem greitt hefur verið af og viðmiðunarfjárhæðar, sbr. þó einnig 4. og 6. mgr.“

Samkvæmt framangreindu ber Vinnumálastofnun að reikna bótarétt sjálfstætt starfandi einstaklings út frá þeim launum sem viðkomandi reiknar sér vegna vinnu sinnar. Ef reiknað endurgjald atvinnuleitanda nær ekki lágmarksviðmiðum Ríkisskattstjóra ákvarðast bótaréttur af hlutfalli reiknaðs endurgjalds sem greitt hefur verið af og viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra. Umsækjandi um atvinnuleysisbætur getur því einungis átt hlutfallslegan rétt til bóta ef reiknað endurgjald er lægra en viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra í viðkomandi starfsgrein.

Starf kæranda fellur undir tekjuflokk B9 samkvæmt reglum um reiknað endurgjald, settum á grundvelli 3. málsl. 1. mgr. 58. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Flokkurinn á við um störf einstaklings sem er að hefja starfsemi og starfar einn eða með einum starfsmanni. Viðmiðunartekjur Ríkisskattstjóra fyrir tekjuflokk B9 vegna ársins 2019 voru 446.000 kr. á mánuði. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum greiddi kærandi mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi sem nam lægri fjárhæð en sú viðmiðunarfjárhæð. Tryggingahlutfall kæranda ákvarðast því af hlutfalli fjárhæðar reiknaðs endurgjalds sem greitt hefur verið af og viðmiðunarfjárhæðar. Samkvæmt skýru ákvæði 19. gr. laga nr. 54/2006 ber að byggja útreikning á bótarétti á þeim mismuni. Hlutfall reiknaðs endurgjalds kæranda og viðmiðunarfjárhæðarinnar er að meðaltali 36%. Með vísan til þess er ákvörðun Vinnumálastofnunar um 36% bótarétt kæranda staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um 36% bótarétt A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum