Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A9lags%C3%BEj%C3%B3nusta%20og%20h%C3%BAsn%C3%A6%C3%B0ism%C3%A1l

Mál nr. 204/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 204/2020

Fimmtudaginn 9. júlí 2020

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 27. apríl 2020, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 30. mars 2020, um synjun á umsókn hennar um félagslegt leiguhúsnæði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn 11. febrúar 2020 sótti kærandi um félagslegt leiguhúsnæði hjá Reykjavíkurborg. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 2. mars 2020, með þeim rökum að hún uppfyllti ekki skilyrði e-liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði. Kærandi áfrýjaði synjuninni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi 30. mars 2020 og staðfesti synjunina.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 27. apríl 2020. Með bréfi, dags. 30. apríl 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst úrskurðarnefndinni 13. maí 2020 og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. maí 2020. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi sé öryrki vegna líkamlegra og andlegra veikinda. Veikindasaga kæranda hafi byrjað þegar hún lenti í bílslysi 18 ára gömul. Kærandi hafi síðan þá verið greind með ýmsa sjúkdóma og gigt sem hafi áhrif á líf hennar. Að auki sé hún greind með geðhvörf og ofsakvíða og þurfi því að hlúa vel að andlegri heilsu sinni. Kærandi sé flesta daga mjög verkjuð, kvíðin og eigi erfitt með gang. Kærandi leigi á almennum leigumarkaði og hafi búið í núverandi íbúð í fjögur ár. Íbúðin sé í gömlu húsi þar sem stigar séu brattir og sleipir en kærandi hafi dottið tvisvar niður þá. Kærandi greiði 185.000 kr. í húsaleigu. Íbúðin sé mjög óhentug fyrir hana, en hún sé á annarri hæð og þurfi hún að ganga 17 þrep upp í íbúðina. Kærandi sé með gigt í hásinum og eigi því mjög erfitt með gang. Þá reynist kæranda erfitt að fara í þvottahúsið í kjallaranum og bera þvott og matvörur á milli hæða. Gerð húsnæðisins hafi mikil áhrif á lífsgæði kæranda og virkni. Þar að auki sé kominn tími á ýmislegt viðhald sem leigusali hafi ekki sinnt, rafmagn sé í ólagi og leki á milli hæða.

Húsnæðismálin valdi kæranda miklum kvíða. Hún þrái að komast í hentugt húsnæði og ódýrari leigu. Kærandi sé í endurhæfingu á vegum heilsugæslunnar í von um að bæta lífsgæði sín og heilsu. Stór hluti af því sé að komast í húsnæði sem henti þörfum hennar. Kærandi voni að umsókn hennar um undanþágu frá reglum verði samþykkt.

III.  Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda. Vísað er til þess að í 2. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði komi fram að almennt félagslegt leiguhúsnæði sé ætlað þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar og annarra félagslegra erfiðleika. Í 4. gr. reglnanna komi fram að umsóknir skuli metnar samkvæmt ákveðnum matsviðmiðum, sbr. fylgiskjal nr. 1 með reglunum. Við lok mats séu reiknuð stig fyrir hvern þátt fyrir sig. Til þess að umsókn verði samþykkt á biðlista skuli umsækjandi vera metinn til að lágmarki 9 stiga þegar um sé að ræða einstakling/hjón/sambúðarfólk, sbr. e-lið 4. gr. reglnanna.

Umsókn kæranda hafi verið metin á grundvelli framangreinds matsviðmiðs og niðurstaðan verið sú að hún hafi verið metin til 8 stiga. Sumir þættir séu ekki háðir mati, eins og staða umsækjanda og tekjur, en aðrir þættir séu háðir mati svo sem húsnæðisstaða og félagslegur vandi umsækjanda. Varðandi síðarnefndu þættina í máli kæranda þá hafi aðstæður hennar verið metnar í báðum tilfellum til eins margra stiga og unnt sé. Þau atriði sem ekki eigi við í máli kæranda séu staða maka, börn á heimili umsækjanda og sérstakar aðstæður barna.

Kærandi hafi fengið 2 stig vegna stöðu sinnar. Hún sé metin til 75% örroku og séu það hámarksstig fyrir þennan lið. Hvað varði stig vegna tekna þá hafi ekki verið veittar undanþágur frá þeim viðmiðum sem þar séu sett. Tekjur kæranda nemi 4.107.332 kr. fyrir árið 2019. Samkvæmt matsviðmiðum fái umsækjandi 1 stig ef árstekjur hans séu á bilinu 3.474.251 til 5.345.000 kr.

Þættir er varði félagslegar aðstæður kæranda séu háðir mati. Stig fyrir húsnæðisstöðu umsækjenda séu metin út frá umfangi húsnæðisvanda og séu gefin 0, 1, 2 eða 3 stig. Kærandi hafi verið metin til 1 stigs og falli undir matsviðmiðið; verulega íþyngjandi húsnæðiskostnaður. Húsnæðiskostnaður að frádregnum húsnæðisbótum og sérstökum húsnæðsstuðningi er hærri en 30% af heildartekjum heimilis. Stig vegna félagslegs vanda kæranda séu metin út frá umfangi vanda og séu gefin 0, 1, 2, 4, eða 6 stig. Félagslegur vandi kæranda hafi verið metinn til 4 stiga og falli undir matsviðmiðið; umsækjandi glímir við fjölþættan vanda sem hefur afgerandi áhrif á húsnæðisstöðu og/eða færni til að leigja á almennum markaði, þrátt fyrir stuðning félagsþjónustu eða annarra viðurkenndra aðila. Í þeim tilfellum þegar umsækjendur séu metnir til 6 stiga séu málefni barna umsækjanda til meðferðar hjá Barnavernd Reykjavíkur eða upp hafi komið skyndileg alvarleg veikindi sem hafi afgerandi áhrif á húsnæðisstöðu, þar með talið getu viðkomandi til að finna húsnæði samkvæmt mati ráðgjafa. Það eigi ekki við um stöðu kæranda og því ekki heldur unnt að veita fleiri stig hvað þá þætti varði.

Áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi því talið að staðfesta bæri niðurstöðu þjónustumiðstöðvar um 8 stig samkvæmt matsviðmiðum Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði og þar með synja umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði.

Reykjavíkurborg bendir á að með notkun matsblaðs sé leitast við að gæta jafnræðis meðal umsækjenda og veita þeim stig á grundvelli atriða sem séu nánar tilgreind á matsblaðinu og stigagjöf taki mið af aðstæðum viðkomandi. Það hafi því verið mat áfrýjunarnefndar velferðarráðs að ekki væri ástæða til að breyta fyrirliggjandi stigagjöf þjónustumiðstöðvar með vísan til aðstæðna kæranda og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Því hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfest synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar á grundvelli stigagjafar, sbr. e-lið 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði. Að mati Reykjavíkurborgar hafi hin kærða ákvörðun hvorki brotið gegn framangreindum reglum né lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er synjun Reykjavíkurborgar á umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði. Umsókninni var synjað á þeirri forsendu að skilyrði e-liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði væri ekki uppfyllt.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Þá skuli sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við húsnæðismál, sbr. 1. mgr. 2. gr. Í XII. kafla laganna er kveðið á um húsnæðismál. Þar segir í 1. mgr. 45. gr. að sveitarstjórnir skuli, eftir því sem kostur er og þörf er á, tryggja framboð af leiguhúsnæði, félagslegu kaupleiguhúsnæði og/eða félagslegum eignaríbúðum handa þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna. Samkvæmt 46. gr. laganna skulu félagsmálanefndir sjá til þess að veita þeim fjölskyldum og einstaklingum, sem ekki eru færir um það sjálfir, úrlausn í húsnæðismálum til að leysa úr bráðum vanda á meðan unnið er að varanlegri lausn.

Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti. Þá segir meðal annars í 64. gr. laganna að úrskurðarnefnd velferðarmála fjalli um hvort samþykkt þjónusta sé í samræmi við reglur viðkomandi sveitarstjórnar.

Í reglum Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði, sem tóku gildi 1. júní 2019, er kveðið á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita, sbr. XII. kafla laga nr. 40/1991. Í 2. mgr. 2. gr. reglnanna kemur fram að almennt félagslegt leiguhúsnæði sé ætlað þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna, þungrar framfærslubyrðar og lágra launa. Í 4. gr. reglnanna er að finna skilyrði fyrir því að umsókn verði samþykkt á biðlista og þarf umsækjandi að uppfylla öll skilyrði sem fram koma í a–e-liðum 1. mgr. ákvæðisins.

Samkvæmt e-lið 4. gr. skulu umsóknir metnar samkvæmt ákveðnum matsviðmiðum, sbr. fylgiskjal nr. 1 með reglunum. Við lok mats eru reiknuð stig fyrir hvern þátt fyrir sig. Til þess að umsókn verði samþykkt á biðlista skal umsækjandi vera metinn að lágmarki til níu stiga þegar um er að ræða einstakling/hjón/sambúðarfólk líkt og á við í tilviki kæranda. Sumir þættir matsviðmiðsins eru ekki háðir mati, eins og staða umsækjanda og tekjur. Kærandi fékk þrjú stig samanlagt fyrir þá þætti. Aðrir þættir eru háðir mati, svo sem húsnæðisstaða og félagslegur vandi umsækjanda. Húsnæðisstaða kæranda var metin til eins stigs og félagslegur vandi kæranda metinn til fjögurra stiga sem úrskurðarnefndin gerir ekki athugasemd við, enda verður að telja ljóst að aðrir liðir matsviðmiðisins eigi ekki við um aðstæður hennar. Þeir þættir sem ekki voru taldir eiga við í máli kæranda er staða maka, börn á heimili umsækjanda og sérstakar aðstæður barna og gerir úrskurðarnefndin ekki athugasemd við það. Samkvæmt framangreindu var umsókn kæranda metin til átta stiga og uppfyllti hún því ekki skilyrði e-liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði. Að því virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að staðfesta beri synjun Reykjavíkurborgar á umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 30. mars 2020, um að synja umsókn A um félagslegt leiguhúsnæði er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum