Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 490/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 7. október 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 490/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21080046

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.          Málsatvik

Þann 4. febrúar 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. nóvember 2020, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir nefndur kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu.

Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 8. febrúar 2021 og 15. febrúar 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Þann 25. febrúar 2021 var beiðni kæranda hafnað. Þann 29. ágúst 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd þann 30. ágúst 2021 frá Útlendingastofnun og þann 31. ágúst 2021 frá stoðdeild ríkislögreglustjóra. Þá bárust andmæli frá kæranda þann 9. september 2021.

Af greinargerð kæranda má ætla að beiðni hans um endurupptöku málsins byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.            Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að beiðni hans um endurupptöku byggi á því að meira en 12 mánuðir séu liðnir síðan hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og að tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á hans ábyrgð. Með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skuli umsókn hans því tekin til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli nr. KNU17090040 frá 24. október 2017 máli sínu til stuðnings.

III.          Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum sé þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar séu í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þótt 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Líkt og áður hefur komið fram sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi þann 29. ágúst 2020 og hefur hann ekki enn yfirgefið landið. Því eru liðnir rúmlega 12 mánuðir frá því að umsókn kæranda barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og því kemur til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þann 30. ágúst 2021 óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra um hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort þær væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Svar frá Útlendingastofnun barst þann 30. ágúst 2021 og var það mat stofnunarinnar að kærandi hafi ekki tafið mál sitt meðan það hafi verið til meðferðar hjá stofnuninni. Kærunefnd barst svar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra þann 31. ágúst 2021 þar sem m.a. kemur fram að stoðdeild hafi borist verkbeiðni í máli kæranda þann 4. mars 2021. Dagana 15. og 30 mars 2021 hafi verið haft samband við kæranda og kærandi greint frá því að vilja ekki fara til Grikklands. Þann 9. apríl 2021 hafi kærandi ekki svarað símtali frá stoðdeild. Þann 21. apríl 2021 hafi kærandi verið boðaður í viðtal þann 23. apríl 2021 en kærandi hafi ekki mætt. Stoðdeild hafi reynt að hafa samband við kæranda dagana 27. apríl og 9. júní 2021 en hann ekki svarað. Stoðdeild hafi náð sambandi við kæranda þann 11. júní 2021 og hann boðaður í viðtal þann 14. júní 2021. Kærandi hafi greint frá því að hann vildi ekki fara til Grikklands. Þann 30. júní 2021 hafi verið rætt við kæranda og aðspurður kvaðst hann ekki vera bólusettur. Þá hafi hann greint frá því að vilja ekki fara í Covid-19 sýnatöku og ekki vilja fara til Grikklands. Þá kvaðst kærandi ekki dvelja lengur í úrræði sínu heldur hjá vinum sínum. Þá kemur fram í svari stoðdeildar að þar sem afstaða kæranda hafi legið fyrir hafi ekki verið haft meira samband við hann.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 7. september 2021, var kærandi upplýstur um afstöðu Útlendingastofnunar og stoðdeildar og gefinn frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Andmæli kæranda bárust kærunefnd þann 9. september 2021. Í svari kæranda vísar hann m.a. til upplýsinga frá stoðdeild um að ekki hafi náðst í hann tímabundið og hann ekki mætt á einn fund en að mati kæranda sé augljóst að stoðdeild hafi verið að kanna afstöðu hans til fyrirhugaðs flutnings með almennum hætti. Þá geti tímabundið sambandsleysi átt sér margar eðlilegar skýringar. Allt að einu hafi kærandi ekki verið að skjótast undan eða tefja mál sitt með neinum hætti enda hafi hann mætt á fund þann 11. júní 2021 og síðan hafi aftur náðst samband við kæranda þann 30. júní 2021. Þá vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli nr. KNU21070020 frá 26. ágúst 2021 máli sínu til stuðnings.

Af svari stoðdeildar má ráða að þau samskipti sem áttu sér stað milli kæranda og stoðdeildar hafi einungis snúið að því að kanna afstöðu kæranda til fyrirhugaðs flutnings til Grikklands. Kærunefnd tekur fram að flutningur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fengið hafa neikvæða niðurstöðu hér á landi í máli sínu er íþyngjandi ákvörðun og því eðlilegt að umsækjendur séu mótfallnir slíkum flutningi. Þá má sjá af samskiptum stoðdeildar við kæranda að síðasta tilraun til að hafa samband við kæranda og ræða við hann um flutning hafi verið þann 30. júní 2021 en líkt og að framan greinir leið 12 mánaða fresturinn í máli kæranda þann 29. ágúst 2021. Af svörum bæði Útlendingastofnunar og stoðdeildar verður ekki annað séð en að kærandi hafi fyrst yfirgefið búsetuúrræði sitt þann 30. júní 2021 og stjórnvöldum því kunnugt um dvalarstað kæranda á þeim tíma sem um ræðir. Af svari stoðdeildar má ráða að ekki hafi verið gerðar frekari tilraunir af hálfu stoðdeildar að undirbúa flutning á kæranda og framkvæmdin því ómarkviss af hálfu stoðdeildar. Kærunefnd telur að líta verði svo á að yfirlýsing kæranda um að hann vilji ekki snúa aftur til Grikklands eða undirgangast Covid-19 sýnatöku til þess að gera íslenskum stjórnvöldum kleift að flytja hann þangað, geti ekki ein og sér talist vera töf á afgreiðslu málsins.

Með hliðsjón af framangreindu er því ekki grundvöllur fyrir kærunefnd til að ákvarða að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er uppfyllt og ber að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Í ljósi framangreinds er því fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.


 

Úrskurðarorð:

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                     Sandra Hlíf Ocares

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum