Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 224/2021 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 25. maí 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 224/2021

Í stjórnsýslumáli nr. KNU21030051

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

Þann 15. mars 2021 barst kærunefnd útlendingamála kæra […], fd. […], ríkisborgara Albaníu (hér eftir nefndur kærandi), á ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. febrúar 2021, um að synja umsókn hans um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar með íslenskum ríkisborgara, sbr. 70. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun Útlendingastofnunar er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Samkvæmt gögnum málsins var þáverandi umboðsmanni kæranda tilkynnt um ákvörðun Útlendingastofnunar þann 25. febrúar 2021. Þann 15. mars 2021 barst kærunefnd tilkynning um kæru á ákvörðun Útlendingastofnunar. Er samkvæmt framansögðu ljóst að kærufresturinn, sem var til 12. mars 2021, var liðinn þegar kæran barst.

Þar sem kæran barst að liðnum kærufresti var umboðsmanni kæranda, með tölvupósti kærunefndar dags. 8. apríl 2021, veitt tækifæri til að gera grein fyrir ástæðum þess að kæran barst ekki fyrr, sbr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Engar athugasemdir bárust frá umboðsmanni kæranda.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga, er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér geti t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða hefur veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar er m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Ákvörðun Útlendingastofnunar var send til þáverandi umboðsmanns kæranda með ábyrgðarpósti og var afhending bókuð þann 25. febrúar 2021. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var, í samræmi við 2. tl. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga, gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert kærandi skyldi beina kæru. Líkt og áður hefur komið fram barst kærunefnd ekki kæra frá kæranda fyrr en þann 15. mars 2021 en 15 daga kærufrestur rann út þann 12. mars 2021.

Umboðsmaður kæranda hefur við meðferð málsins hjá kærunefnd ekki fært fram skýringar á því hvers vegna kæran barst of seint. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að ekki verði talið að taka beri kæruna til meðferðar á grundvelli 1. tl. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Þá hefur kærunefnd farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar, sbr. 2. tl. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni.

 

 

 

Úrskurðarorð

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá kærunefnd útlendingamála.

 

The Immigration Appeals Board dismisses the appellant‘s appeal of the decision of the Directorate of Immigration.

 

 

 

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

 

                                                                                                           Gunnar Páll Baldvinsson                                                                                             Sandra Hlíf Ocares

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum