Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 148/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 15. mars 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 148/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23020005

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Hinn 25. maí 2022 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 1. apríl 2022, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 30. maí 2022.

Hinn 6. júní 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Með úrskurði kærunefndar nr. 252/2022, dags. 30. júní 2022, var þeirri beiðni kæranda hafnað. Hinn 1. febrúar 2023 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Kærunefnd bárust upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda frá Útlendingastofnun 21. febrúar 2023 og stoðdeild ríkislögreglustjóra 27. febrúar 2023. Þá bárust kærunefnd andmæli kæranda 9. mars 2023.

Af beiðni kæranda um endurupptöku má ráða að hún byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Beiðni kæranda um endurupptöku málsins byggir á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi, en tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á hans ábyrgð. Með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skuli umsókn kæranda því tekin til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar nr. 580/2017, dags. 24. október 2017, máli sínu til stuðnings.

III.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður samkvæmt 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum sé þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar séu í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar umsækjandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þótt 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja umsækjanda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 1. febrúar 2022 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti 1. febrúar 2023. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Hinn 20. febrúar 2023 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild. Sneri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort þær tafir væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Svör bárust frá Útlendingastofnun 21. febrúar 2023 og stoðdeild 27. febrúar 2023.

Í svari Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki tafið mál sitt við meðferð þess hjá Útlendingastofnun. Í svari stoðdeildar kemur fram að 19. ágúst 2022 hafi lögregla farið í búsetuúrræði kæranda, herbergisfélagi hans hafi komið til dyra og tjáð lögreglu að kærandi hafi farið til Reykjavíkur fyrr um morguninn. Hinn 22. september 2022 hafi lögregla fengið þær upplýsingar hjá vaktmanni í búsetuúrræðinu að kærandi hafi ekki nýtt úrræðið í einhverja mánuði. Þann sama dag hafi lögregla hringt í farsíma kæranda og tjáð honum að hann ætti að fara til Grikklands. Kærandi hafi greint frá því að vilja ekki fara til Grikklands. Þegar lögregla hafi rætt frekar við hann um dvalarstað hans hafi hann greint frá því að tala ekki góða ensku og ætlaði að fá vin sinn til að túlka. Þeir myndu hringja til baka eftir 30 mínútur. Hinn 26. október 2022 hafi lögregla hringt í farsíma kæranda. Kærandi hafi greint frá því að tala litla ensku og kvaðst ekki skilja þegar hann hafi verið beðinn að koma á Bæjarhraun 18 til viðræðna svo hægt væri að túlka fyrir hann á arabísku. Honum hafi þá verið tjáð að hann fengi skilaboð sem hann gæti þýtt yfir á arabísku. Textaskilaboð hafi verið send í farsíma kæranda og hann samþykkt að hitta lögreglu 26. október 2022. Hinn 26. október 2022 hafi lögreglan hitt kæranda í Bæjarhrauni 18. Með kæranda hafi mætt tveir starfsmenn Hamarsins ungmennahúss þar sem kærandi hafi varið tíma sínum undanfarið. Annar starfsmaðurinn hafi talað arabísku og ensku og túlkað samtal lögreglu og kæranda. Kæranda hafi verið tjáð að til stæði að flytja hann til Grikklands eftir eina til þrjár vikur. Kærandi hafi greint frá því að vilja ekki fara til Grikklands. Kvaðst kærandi dvelja í [...] og hér og þar hjá vinum og kunningjum. Hinn 28. október 2022 hafi kærandi verið settur á framkvæmdarlista vegna ferðar til Grikklands 3. nóvember 2022. Hinn 31. október 2022 hafi kærandi mætt í nafnakall á Hótel Hraun. Lögreglumenn hafi verið að ráðfæra sig um næstu skref þegar kærandi hafi gengið út. Lögreglan hafi kallað á eftir honum, hann hafi þá hlaupið norður Reykjavíkurveg og vestur Hjallabrautina. Lögreglumenn hafi misst sjónar af honum og óskað eftir aðstoð við að hafa uppi á honum. Leit hafi ekki skilað árangri.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 6. mars 2023, var kæranda send þau gögn sem bárust frá stoðdeild og honum veittur frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Í tölvubréfi frá lögmanni kæranda, dags. 9. mars 2023, kemur fram að kærandi mótmæli því að hafa með einhverjum hætti tafið mál sitt. Engin gögn liggi fyrir um það að stoðdeild hafi verið búin að undirbúa flutning, t.d. með því að bóka flugmiða eða útbúa ferðaskilríki. Þá liggi ekki fyrir hvort kæranda hafi verið birt tilkynningareyðublað í tengslum við fyrirhugaðan flutning og þá hafi ekki verið rætt við hann með aðstoð túlks um skyldur hans gagnvart stjórnvöldum og afleiðingum þess að verða ekki við þeim. Þannig sé ekki hægt að leggja til grundvallar að kærandi hafi reynt að komast undan stjórnvöldum með einhverjum hætti.

Líkt og að framan greinir er í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mælt fyrir um lögbundinn tólf mánaða frest fyrir stjórnvöld til að ljúka afgreiðslu umsóknar um alþjóðlega vernd. Líkt og að framan greinir lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 1. febrúar 2022. Þegar stoðdeild ríkislögreglustjóra hitti kæranda 26. október 2022 var því fullnægjandi tími til þess að framkvæma flutning á kæranda til viðtökuríkis áður en 12 mánaða fresturinn sem áskilinn er í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga rann út. Í lögskýringargögnum með ákvæðinu er ekki að finna leiðbeiningar um það hvenær um tafir sé að ræða á málsmeðferð sem með réttu geti talist vera á ábyrgð umsækjanda. Samkvæmt orðanna hljóðan verður að ætla að málefnalegt sé að telja að undir það heyri a.m.k. þegar umsækjendur reyni að tefja málsmeðferð, svo sem með því að láta sig hverfa. Af gögnum málsins er ljóst að kærandi hafi látið sig hverfa en hann hafi hlaupið undan lögreglu þegar til hafi staðið að flytja hann til Grikklands. Leit hafi ekki borið árangur. Með vísan til framangreinds telur kærunefnd að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af því leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga fyrir því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar eru ekki uppfyllt.

Vegna athugasemda kæranda um að stoðdeild hafi borið að leggja fyrir hann tiltekið eyðublað vísar kærunefnd til þess að slík framkvæmd hafi myndast þegar um að hafi verið ræða flutning einstaklinga frá landinu í Covid-19 faraldrinum. Móttökuríki hafi þá sett þau skilyrði að viðkomandi einstaklingar færu í Covid-19 sýnatöku fyrir brottför eða framvísuðu bólusetningarvottorði. Stoðdeild hafi þá lagt fyrir umsækjendur tiltekið eyðublað þar sem fram hafi komið hvað það fæli í sér að neita að mæta í Covid-19 sýnatöku eða framvísa bólusetningarvottorði. Ljóst er að slíkt á ekki við í því máli sem hér er til meðferðar.

Í ljósi framangreinds er því ekki fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Endurupptöku á máli hans er þar með hafnað.


 

Úrskurðarorð:

 

Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

The appellant‘s request to re-examine the cases is denied.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Gunnar Páll Baldvinsson                                                      Sandra Hlíf Ocares

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum