Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 69/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 69/2020

Fimmtudaginn 7. maí 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 7. febrúar 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. febrúar 2020, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 6. desember 2019. Meðfylgjandi umsókn kæranda var vinnuveitandavottorð þar sem fram kemur að kærandi hafi sjálfur sagt upp starfi sínu hjá B. Í skýringum kæranda á uppsögn kemur fram að hann hafi flutt í annað sveitarfélag. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. janúar 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt og bótaréttur væri metinn 100%. Með vísan til starfsloka hans hjá B. væri réttur til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi sendi Vinnumálastofnun frekari skýringar þar sem fram kemur að hann hafi ekki fundið húsnæði á viðráðanlegu verði nær vinnustað eftir að hafa misst húsnæði sitt hjá foreldrum vegna ágreinings. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. febrúar 2020, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun í máli hans væri staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 7. febrúar 2020. Með bréfi, dags. 4. mars 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 1. apríl 2020, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. apríl 2020, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að ákvörðun hafi verið tekin um að veita honum ekki atvinnuleysisbætur, þrátt fyrir rökstuðning um búferlaflutninga. Kærandi hafi verið búsettur hjá foreldri en vegna ágreinings hafi hann ekki getað búið þar lengur. Kærandi hafi ekki fundið húsnæði á viðráðanlegu verði á höfuðborgarsvæðinu miðað við mánaðarlega greiðslubyrði. Því hafi kærandi tekið ákvörðun um að flytja út á land þar sem hann hafi fundið íbúð á viðráðanlegu verði.

III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Í greinargerð með frumvarpi því, sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar, sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf sé ekki í boði. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerðinni sé vísað til þess að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður, sem liggi að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum, séu gildar þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan væri matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Orðalagið „gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik verið talin falla þar undir. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir á því hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Vinnumálastofnun vísar til þess að tilgangur laga nr. 54/2006 sé að tryggja þeim, sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Ljóst sé að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu. Ágreiningur málsins lúti að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögninni teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis. Í skýringarbréfi kæranda til Vinnumálastofnunar komi fram að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu vegna þess að hann hafi flutt þar sem húsnæði á viðráðanlegu verði hafi ekki verið í boði á höfuðborgarsvæðinu. Hann hafi í kjölfarið sagt starfi sínu lausu vegna flutninga. Vinnumálastofnun tekur fram að búferlaflutningar hafi einir og sér ekki talist gild ástæða fyrir uppsögn á starfi í skilningi laga nr. 54/2006, enda hafi kærandi sjálfur tekið ákvörðun um að flytja búferlum. Slíkar ástæður hafi helst verið taldar gildar í þeim tilfellum sem maki hins tryggða hafi hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Þar að auki, í ljósi d- og e-liða 14. gr. laga nr. 54/2006, hafi lengd frá vinnustað kæranda ekki verið nægjanleg ástæða fyrir uppsögn í skilningi 1. mgr. 54. gr. Ekki verði fallist á að aðrar ástæður er kærandi hafi fært fram í máli sínu geti talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Það sé því afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma á grundvelli 54. gr. laga nr. 54/2006. Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að greiðslur atvinnuleysisbóta skuli fyrst hefjast þegar kærandi hafi verið skráður hjá Vinnumálastofnun án bóta í tvo mánuði.

IV. Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kærandi sagði upp starfi sínu hjá B. en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögninni hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir á því hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi sagt upp starfi sínu vegna flutnings út á land þar sem hann hafi ekki fundið íbúð á viðráðanlegu verði á höfuðborgarsvæðinu. Hann hafi verið búsettur hjá foreldri en vegna ágreinings hafi hann ekki getað búið þar lengur. Samkvæmt framangreindum skýringum ákvað kærandi að flytja út á land sem varð þess valdandi að hann sagði upp starfi sínu. Líkt og fram hefur komið eru gerðar ríkar kröfur um ástæður uppsagnar og hafa búferlaflutningar fjarri vinnustað ekki verið talin gild ástæða. Það er því mat úrskurðarnefndar velferðarmála að tilgreindar ástæður kæranda fyrir starfslokum hans séu ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Að því virtu bar kæranda að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til greiðslu atvinnuleysisbóta í tvo mánuði staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. febrúar 2020, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum