Hoppa yfir valmynd
K%EF%BF%BD%EF%BF%BDrunefnd%20%EF%BF%BD%EF%BF%BDtlendingam%EF%BF%BD%EF%BF%BDla

Nr. 7/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 3. janúar 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 7/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU22120041

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […]

 

 

Málsatvik

Hinn 1. desember 2022 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. október 2022, um að umsókn einstaklings er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Palestínu, um alþjóðlega vernd hér á landi, yrði ekki tekin til efnismeðferðar og að hann yrði endursendur til Grikklands. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 5. desember 2022 og 11. desember 2022 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar ásamt greinargerð og fylgiskjölum.

Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hann fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Aðili byggir beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að hann glími við heilsubrest er varði geðheilsu hans. Aðili hafi leitað sér aðstoðar á Göngudeild sóttvarna sem hafi vísað honum áfram til meðferðar og hann eigi tíma hjá sálfræðingi 3. janúar 2023. Mikilvægt sé að beðið verði með að vísa aðila frá landi þar til hann hafi fengið viðtöl við sálfræðing. Aðli hafi stundað sjálfskaðahegðun og eigi erfitt andlega. Verði aðili sendur til Grikklands muni það valda honum óafturkræfum skaða. Aðili muni ekki hafa kost á að fá hjálp við þeim andlegu veikindum sem hann glími við í Grikklandi. Þá muni reynast honum erfitt, vegna andlegs ástands hans, að sækja sér aðstoð þar í landi. Með tilliti til þess sé óskað eftir að frávísun hans verði frestað svo aðili fái þá aðstoð sem hann þurfi og geti nýtt þá meðferð sem búið sé að úthluta honum. Auk þess muni reynast aðila erfitt að hafa samband við talsmann sinn hér á landi í tengslum við fyrirhugað dómsmál hans þar sem ekki sé vitað hver andleg staða hans verði eða hvort hann muni hafa andlega burði til að fylgja máli sínu eftir frá Grikklandi. Aðili fari fram á að kærunefnd leggi heildstætt mat á umsókn hans og fresti réttaráhrifum úrskurðarins. Nauðsynlegt sé fyrir kæranda að fá mat sálfræðings, sem geti orðið grundvöllur fyrir aðila til að sækja um endurupptöku vegna breyttra aðstæðna.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hans að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hann skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hans til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hann höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hann sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Ennfremur benda gögn málsins ekki til annars en að aðili geti nýtt rétt sinn til komu og tímabundinnar dvalar hér á landi á grundvelli 20. gr. laga um útlendinga til að vera við réttarhöld sín og gefa skýrslu fyrir dómi. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hans fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem honum eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017 og E-6830/2020.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Kærandi byggir beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að hann eigi bókaðan tíma hjá sálfræðingi 3. janúar 2022. Þá leggur kærandi fram uppfærð heilsufarsgögn þar sem m.a. kemur fram í samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 3. nóvember 2022, að kærandi sé leiður og líði illa. Kærandi hafi fengið neitun og sé svartsýnn á framtíðina. Þá hafi kærandi upplifað erfiðleika sem hann óski eftir aðstoð við. Kærunefnd telur að þó kærandi eigi bókaðan tíma hjá sálfræðingi hér á landi á næstunni, sé ekki um að ræða verulega breyttar aðstæður frá því endanleg ákvörðun var tekinn sem leiði til þess að fresta beri réttaráhrifum samkvæmt 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Þá bendir kærunefnd á, líkt og fram kom í úrskurði kærunefndar í máli kæranda nr. 501/2022, dags. 1. desember 2022, að kæranda standi til boða nauðsynleg heilbrigðisþjónusta, þ. á m. geðheilbrigðisþjónusta í Grikklandi.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hans um efnismeðferð. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða að aðila sé ekki tryggð raunhæf leið til að ná fram rétti sínum þar í landi, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í samræmi við framangreint er það jafnframt mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hann aftur til viðtökuríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hans.

Kærunefnd leggur áherslu á að mál þetta snýst um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar í því skyni að bera mál undir dómstóla, en ekki hvort skilyrði frestunar framkvæmdar með vísan til lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga séu fyrir hendi, m.a. í ljósi Covid-19 faraldursins. Aðila er leiðbeint um að berist honum boð um flutning til viðtökuríkis er honum heimilt að vekja athygli kærunefndar á því en kærunefnd getur þá ákveðið að fresta framkvæmd úrskurðar, sbr. framangreint ákvæði, séu skilyrði til þess uppfyllt.

Athygli aðila er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra ástæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

ÚRSKURÐARORÐ

 

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

 

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

 

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum