Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 69/2012, úrskurður 20. nóvember 2012

Mál nr. 69/2012                    Eiginnafn:     Svanhild     /     Millinafn:      Svanhild

 

Hinn 20. nóvember 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 69/2012

en erindið barst nefndinni 8. nóvember:

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Í máli þessu reynir á skilyrði (2). Eiginnafnið Svanhild (nefnifall) er án þeirrar endingar sem hefðbundið væri í íslensku máli að gefa sambærilegum nöfnum, sbr. Svanhildur, Þórhildur, Ásthildur, Dómhildur, Ragnhildur, Hrafnhildur ogÚlfhildur. Í athugasemdum við 5. gr. í frumvarpi sem varð að lögum nr. 45/1996 segir að íslenskt málkerfi sé samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Í athugasemdunum kemur fram að umræddu skilyrði sé einkum ætlað að koma í veg fyrir að rótgrónum nöfnum sé breytt til horfs sem stríðir gegn hefð þeirra. Nöfn eins og Guðmund og Þorstein (í nefnifalli) eru því óheimil, og sama myndi eiga við um nöfn á borð við Svanhild og Ragnhild (í nefnifalli).

Nafnið Svanhild uppfyllir ákvæði 6. gr. laganna, um millinöfn. Millinafnið Svanhild er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Því er mögulegt að samþykkja millinafnið Svanhild.


Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Svanhild er hafnað.

Beiðni um millinafnið Svanhild er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.



Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum