Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 32/2016 Úrskurður 6. maí 2016

Mál nr. 32/2016                     Eiginnafn:      Swanhildur

 


 

Hinn 6. maí 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 32/2016 en erindið barst nefndinni 15. apríl:

 

Til að hægt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá þarf öllum skilyrðum 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera fullnægt. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Nafnið skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977, um íslenska stafsetningu.

 

Í eiginnafninu Swanhildur (kvk.) reynir á skilyrði (3). Ritháttur nafnsins er ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem ekki er ritað w í íslenskri réttritun. Á þennan rithátt nafnsins er því aðeins heimilt að fallast ef hann telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

 

Til stuðnings við mat á hefð samkvæmt 5. og 6. gr. laga um mannanöfn hefur mannanafnanefnd byggt á vinnulagsreglum sem nefndin samþykkti á fundi 19. janúar 2015. Þessar vinnulagsreglur eiga sér stoð í ummælum í greinargerð með frumvarpi sem varð að gildandi lögum um mannanöfn og eldri vinnulagsreglum. Er í reglunum byggt á því að hugtakið hefð í lögum um mannanöfn varði einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli 1703 þegar manntal var tekið fyrsta skipti.

 

Vinnulagsreglurnar eru svohljóðandi:

  1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

    1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

    2. Það er nú borið af 10­–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

    3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

    4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;

    5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

  3. Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

 

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber engin kona nafnið Swanhildur í þjóðskrá og nafnið kemur ekki heldur fyrir í manntölum. Það telst því ekki vera hefð fyrir þessum rithætti. Eiginnafnið Swanhildur uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.

Tekið skal fram að samkvæmt 19. gr. laga nr. 45/1996 skulu nöfn manna rituð á öllum opinberum skrám og öðrum opinberum gögnum eins og þau eru skráð í þjóðskrá á hverjum tíma. Af því má ráða að fólk hefur almennt um það frelsi hvort það sjálft kýs að rita nöfn sín með öðrum hætti í öðrum tilvikum.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Swanhildur(kvk.) er hafnað.

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum