Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 43/2023-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 43/2023

Fimmtudaginn 9. mars 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 19. janúar 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. janúar 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 17. janúar 2022 og var umsóknin samþykkt 7. mars 2022. Þann 29. desember 2022 var ferilskrá kæranda send fyrirtækinu B ehf. vegna starfs hjá fyrirtækinu. Þann 9. janúar 2023 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfi hjá fyrirtækinu þar sem hann væri að leita sér að starfi á sviði vefhönnunar. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 13. janúar 2023, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á starfi hjá B ehf. Skýringar bárust frá kæranda og í kjölfarið var honum tilkynnt ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. janúar 2023, um að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 19. janúar 2023. Með bréfi, dags. 23. janúar 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 31. janúar 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. febrúar 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann kæri ákvörðun Vinnumálastofnunar í kjölfar viðurlaga sem hann hafi verið beittur vegna þess að hafa hafnað starfi hjá B ehf. þann 9. janúar 2023. Kærandi hafi haft ástæður fyrir því að hafna starfinu sem að hans mati hefði átt að taka tillit til við ákvörðunina.

Kærandi hafi starfað við þjónustustörf í 12 ár og hann sé orðinn þreyttur á slíkum störfum. Árið 2022 hafi hann tekið þá ákvörðun að skipta um starfsferil til að starfa í vefhönnun og hafi af því tilefni varið miklum tíma og fjármunum í menntun sína. Kærandi sé búinn að eyða yfir 600.000 kr. í skólagjöld síðastliðið eina og hálfa árið. Því líti hann á endurkomu í þjónustustörf sem skref til baka.

Ferilskrá kæranda og skrá yfir æskileg störf á „Mínum síðum“ hans á vef Vinnumálastofnunar staðfesti breytingu á starfsferil. Kærandi hafi verið virkur í atvinnuleit á sviði vefhönnunar frá því í byrjun sumars 2022 og hafi hann þegar ráðið sig í starfsnám á því sviði fyrir sumarið 2023. Kærandi sé fullviss um að honum takist að finna fullt starf á nýju starfssviði.

Kærandi sé skuldbundinn því að finna starf í tengslum við vefhönnun. Til þess að gera það þurfi hann þó að vera fjárhagslega sjálfstæður. 

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 17. janúar 2022. Með erindi, dags. 7. mars 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 9. janúar 2023 hafi Vinnumálastofnun borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað starfi hjá B ehf. Um hafi verið að ræða starf barþjóns á veitingastað en kæranda hafi verið miðlað í umrætt starf af Vinnumálastofnun. Samkvæmt upplýsingum frá B ehf. hafi kærandi hafnað starfinu því að hann væri að leita að starfi á sviði vefhönnunar.

Með erindi, dags. 13. janúar 2023, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til höfnunar á starfi hjá B ehf. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að hafi atvinnuleitandi hafnað atvinnutilboði eða atvinnuviðtali án gildra ástæðna, gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga. Sama dag hafi Vinnumálastofnun borist skýringar kæranda. Kærandi hafi greint frá því að ástæða þess að hann hafi hafnað umræddu starfi væri sú að hann væri að leita eftir starfi á sviði vefhönnunar. Hann hefði nýlega lokið menntun á því sviði og stæði þar í virkri atvinnuleit. Kærandi teldi ástæðu fyrir höfnun hans á umræddu starfstilboði gilda og eðlilega í ljósi þeirrar nýju stefnu innan síns menntasviðs til lengri tíma sem myndi færa honum frekari stöðugleika.

Með erindi, dags. 17. janúar 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að skýringar hans vegna höfnunar á starfi hjá B ehf. hefðu ekki verið metnar gildar. Af þeirri ástæður væri réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virki atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað starfi hjá fyrirtækinu B ehf. og hafi hann þegar veitt skýringar á ástæðum höfnunar á umræddu starfi. Því komi til álita hvort skýringar hans séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. meta hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg. Í 4. mgr. sömu greinar segi orðrétt:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitenda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfu um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Skýringar kæranda lúti einkum að því að starfið hafi ekki hentað menntun hans sem vefhönnuðar og að hann vilji tileinka sér starfsferil á því sviði. Rík skylda hvíli á atvinnurekendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbættur í stað þess að gegna launuðu starfi. Þá þurfi atvinnuleitendur jafnframt að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu, sbr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í ljósi þess telji Vinnumálastofnun að atvinnuleitendur geti ekki hafnað störfum á þeim forsendum að menntun þeirra og áhugasvið liggi í annarri atvinnugrein.

Með vísan til alls framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda séu ekki þess eðils að þær réttlæti höfnun á atvinnutilboði, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Samkvæmt gögnum málsins var ferilskrá kæranda send fyrirtækinu B ehf. þann 29. desember 2022. Fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun þann 9. janúar 2023 að kærandi hefði hafnað starfinu þar sem að hann væri að leita sér að starfi á sviði vefhönnunar. Kærandi hefur vísað til þess að ástæða höfnunarinnar sé sú að hann sé að leita sér að starfi á sviði vefhönnunar og sé í virkri atvinnuleit á því sviði.

Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir, sbr. c. lið 1. mgr. ákvæðisins. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að þær skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. janúar 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum