Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 65/2018 Úrskurður 14. ágúst 2018

Mál nr. 65/2018                    Eiginnafn:     Avelin/Avelín (kvk.)

 

 

 

 

Hinn 14. ágúst 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 65/2018 en erindið barst nefndinni 13. ágúst.

Hér er um að ræða nafn sem er germanskt að uppruna, Avelina, en hefur borist þaðan í mörg önnur tungumál. Í ensku tíðkast ýmsar myndir nafnsins, m.a. Aveline. Viðurkenndur er tvenns konar framburður á því nafni í ensku. Í öðru tilvikinu væri rithátturinn Avelin eðlileg aðlögun að íslenskum ritreglum, en í hinu rithátturinn Avelín.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Eiginnafnið Avelin/Avelín (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Avelinar/Avelínar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Avelin (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Beiðni um eiginnafnið Avelín (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum