Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A9lags%C3%BEj%C3%B3nusta%20og%20h%C3%BAsn%C3%A6%C3%B0ism%C3%A1l

Mál nr. 335/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 335/2022

Þriðjudaginn 11. október 2022

A

gegn

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Ú R S K U R Ð U R 

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 29. júní 2022, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 24. júní 2022, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði húsnæðisbætur á tímabilinu janúar til júní 2021. Með bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 24. júní 2022, var kæranda birt lokauppgjör vegna ársins 2021 þar sem fram kom að hann hefði fengið ofgreiddar húsnæðisbætur, að fjárhæð 98.812 kr.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 29. júní 2022. Með bréfi, dags. 4. júlí 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt gögnum málsins. Sú beiðni var ítrekuð með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. ágúst 2022, og erindi 8. september 2022. Greinargerð barst 13. september 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 14. september 2022. Athugasemdir bárust ekki. Með erindi, dags. 27. september 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir gögnum um tekjur og eignir kæranda og heimilismanna er lágu fyrir við lokauppgjör ársins 2021. Umbeðin gögn bárust 29. september 2022.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa fengið endurkröfu vegna leigusamnings sem hann hafi verið skrifaður fyrir í eitt ár frá miðju ári 2020 og húsnæðisbóta vegna hans. Kærandi voni að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun reikni húsnæðisbætur út frá tekjum og eignastöðu íbúa á gildistíma leigusamningsins og á meðan á greiðslum bóta standi en ekki að þeim tíma loknum.

Kærandi hafi verið skráður ábyrgðaraðili fyrir leigutökunni á húsinu. Rúmlega ár sé liðið frá því að leigufyrirkomulag hafi verið leyst upp og engin samskipti séu á milli fyrrum samleigjenda. Fjórir einstaklingar hafi búið í húsinu á leigutímanum en í lokauppgjörinu hafi einungis verið skráðir þrír heimilismenn sem skipt hafi á milli sín 550.000 kr. leigugjaldi. Tiltekinn einstaklingur hafi verið skráður sem leigjandi kjallara íbúðarinnar. Þetta fyrirkomulag hafi verið að ósk húseiganda. Leigugjald á efri íbúðinni hafi verið um 380.000 kr. og leigugjaldið á kjallaraíbúðinni hafi verið afgangurinn af 550.000 kr., heildarleigugjaldinu.

Fyrirkomulagið hafi valdið vandræðum hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og hugsanlega sé það að endurtaka sig. Kærandi bendi á að fjórði leigjandinn í kjallaraíbúðinni gæti verið að draga sig út úr hópnum til að sækja greiðslu.

Verði ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ekki hnikað vilji kærandi að skuldinni verði deilt á leigjendurna fjóra því að hann eigi ekki að sitja einn uppi með skuldina.

III.  Sjónarmið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Í greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að kærandi hafi skilað inn umsókn um húsnæðisbætur þann 6. júní 2020 vegna leigu á húsnæðinu B. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt þann 22. júlí 2020. Samhliða samþykktarbréfinu hafi kæranda verið send tekju- og eignaáætlun þar sem fram komu þær forsendur sem útreikningur húsnæðisbóta hafi verið byggður á. Skráðir heimilismenn á umsókn hafi verið þrír.

Við lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2020 hafi komið í ljós að kærandi hafi fengið vangreiddar húsnæðisbætur sem hafi numið 117.561 kr. Inneign hafi verið greidd út til kæranda þann 1. júlí 2021 með millifærslu á reikning í hans eigu.

Bréf vegna endurreiknings húsnæðisbóta hafi verið send kæranda alls þrisvar sinnum árið 2021, dags. 25. janúar, 21. apríl og 21. júní. Skráðir heimilismenn hafi verið þrír 25. janúar og 21. apríl en þann 21. júní hafi heimilismenn verið tveir. Endurreikningsbréfin geymi uppfærða tekjuáætlun sem sé byggð á nýjustu fyrirliggjandi upplýsingum frá Skattinum og taki mið af heildartekjum, þar með talið fjármagnstekjum, heildareignum, ásamt orlofs- og desemberuppbótum. Kæranda hafi verið veitt færi á því í öllum ofangreindum bréfum að koma að athugasemdum ef hann teldi þær upplýsingar sem notaðar væru við útreikning húsnæðisbóta ekki endurspegla tekjur og eignir ársins 2021. Engar athugasemdir hafi borist frá kæranda í kjölfar áætlana.

Í máli þessu sé deilt um lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2021. Samkvæmt niðurstöðu lokauppgjörs hafi kærandi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur árið 2021 vegna eignastöðu.

Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur megi endurskoða rétt til húsnæðisbóta hvenær sem er og endurreikna fjárhæð þeirra þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem hafi orðið á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna.

Í 2. mgr. 25. gr. laga um húsnæðisbætur komi skýrt fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. laga um húsnæðisbætur liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga. Í 3. mgr. 25. gr. laga um húsnæðisbætur komi einnig skýrt fram að leiði endurreikningur til breytinga á fjárhæð húsnæðisbóta skuli leiðrétta húsnæðisbætur, sbr. 26. gr., en þar komi fram að hafi umsækjandi fengið hærri húsnæðisbætur en honum bar á umræddu tímabili beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd.

Í endurreikningsbréfum sé athygli vakin á því að það sé á ábyrgð umsækjanda að upplýsa stofnunina um allar þær breytingar sem verði á aðstæðum sem kunni að hafa áhrif á rétt til húsnæðisbóta, sbr. 3. mgr. 14. gr. laga um húsnæðisbætur nr. 75/2016. Í endurreikningsbréfum sé einnig vakin athygli á því að ef í ljós komi að umsækjandi hafi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd.

Í athugasemdum við 26. gr. frumvarps til laga um húsnæðisbætur komi fram að hafi umsækjandi fengið hærri húsnæðisbætur en honum hafi borið sé gert ráð fyrir að viðkomandi endurgreiði þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun krefjist þess að hin kærða ákvörðun stofnunarinnar í málinu verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 24. júní 2022, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta vegna ársins 2021, að fjárhæð 98.816 kr.

Í 8. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur kemur fram að húsnæðisbætur séu mánaðarlegar greiðslur sem greiðist til umsækjanda, sbr. þó 4. mgr. 21. gr., og skuli ákvarðaðar og reiknaðar út miðað við grunnfjárhæðir sem miðist við fjölda heimilismanna, sbr. 3. tölul. 3. gr., að teknu tilliti til tekna, sbr. 17. gr., eigna, sbr. 18. gr., og greiðsluþátttöku í húsnæðiskostnaði, sbr. 19. gr. Samkvæmt 14. gr. laga nr. 75/2016 er umsækjanda skylt að veita framkvæmdaraðila allar þær upplýsingar og gögn þeim til staðfestingar sem óskað er eftir og nauðsynlegar eru til að staðreyna rétt hans til húsnæðisbóta. Enn fremur er skylt að upplýsa um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans eða heimilismanna eða öðrum þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á rétt viðkomandi til húsnæðisbóta samkvæmt lögunum á þeim tíma sem hann fær greiddar húsnæðisbætur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um meðal annars breytingu á eignastöðu á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 18. gr. laga nr. 75/2016 segir að grunnfjárhæðir samkvæmt 2. mgr. 16. gr., eftir atvikum að teknu tilliti til lækkunar vegna tekna samkvæmt 17. gr., lækki sem nemi hlutfalli af samanlögðum eignum allra heimilismanna, 18 ára og eldri, sem fari umfram 6.500.000 kr., nú 8.000.000 kr., sbr. 15. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur, uns þær falli alveg niður við 60% hærri fjárhæð. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. laganna skal miða við eignir í lok þess almanaksárs þegar greiðslur húsnæðisbóta stóðu yfir. Þó skuli fasteign eða búseturéttur samkvæmt lögum um húsnæðissamvinnufélög, sem geti orðið andlag réttar til vaxtabóta, ekki teljast til eigna samkvæmt 1. mgr. hafi fasteignin eða búseturétturinn ekki verið í eigu umsækjanda eða annarra heimilismanna meðan á greiðslum húsnæðisbóta hafi staðið á almanaksárinu. Þá kemur fram í 3. mgr. 18. gr. að með eignum í lögunum sé átt við allar eignir samkvæmt 72. gr. laga um tekjuskatt að frádregnum skuldum samkvæmt 1. mgr. 75. gr. sömu laga, sbr. þó 2. málsl. 2. mgr. Í 2. mgr. 72. gr. laga um tekjuskatt segir að framtalsskyldar eignir séu allar fasteignir, lausafé og hvers konar önnur verðmæt eignarréttindi, með þeim takmörkunum sem um ræði í 74. gr., og skipti ekki máli hvort eignirnar gefi af sér arð eða ekki.

Í 25. gr. laganna er kveðið á um endurreikning á húsnæðisbótum. Þar segir í 1. mgr. að rétt til húsnæðisbóta megi endurskoða hvenær sem er og endurreikna fjárhæð húsnæðisbóta þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna. Í 2. mgr. kemur fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga. Í 3. mgr. kemur fram að leiði endurreikningur samkvæmt 1. og 2. mgr. til breytinga á fjárhæð húsnæðisbóta skuli leiðrétta húsnæðisbæturnar samkvæmt 26. gr. laganna. Þar segir í 1. mgr. að hafi umsækjandi fengið hærri húsnæðisbætur en honum bar á umræddu tímabili beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var.

Kærandi þáði húsnæðisbætur á tímabilinu janúar til júní 2021. Samkvæmt tekjuáætlunum, sem lagðar voru til grundvallar við útreikning húsnæðisbóta á árinu 2021, voru heildareignir heimilismanna áætlaðar 0 kr. í fyrsta endurreikningi ársins, dags. 25. janúar 2021, en í seinni tveimur endurreikningum ársins, dags. 21. apríl og 21. júní, voru heildareignir áætlaðar 5.298.471 kr. Við lokauppgjör ársins 2021 reyndust heildareignir heimilismanna vera 10.778.668 kr. sem var hærri fjárhæð en gert var ráð fyrir í tekjuáætlun sem leiddi til ofgreiðslu að fjárhæð 98.816 kr. Kæranda ber í samræmi við ákvæði 26. gr. laga nr. 75/2016 að endurgreiða þá fjárhæð þar sem hann einn var umsækjandi húsnæðisbótanna í skilningi laganna og þáði því greiðslurnar frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta til handa kæranda staðfest.

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 24. júní 2022, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta til handa A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

_________________________________

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum