Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Almannatryggingar

Mál nr. 265/2020

.

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 265/2020

Miðvikudaginn 21. október 2020

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

 

 

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Anna Rut Kristjánsdóttir lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 29. maí 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 22. maí 2020 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2019.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Við endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2019 reiknaðist Tryggingastofnun ríkisins að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 202.895 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Með bréfi, dags. 22. maí 2020, fór stofnunin fram á endurgreiðslu ofgreiddra bóta.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 29. maí 2019. Með bréfi, dags. 28. ágúst 2020, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 14. september 2020, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 16. september 2020. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Af kæru má ráða að kærandi óski endurskoðunar á framangreindri ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins.

Í kæru kemur fram kærandi hafi verið í veikindaleyfi á árinu 2019 og hafi fengið greiðslur frá B þangað til í júlí það ár. Eftir það hafi hann ekki átt rétt á neinum greiðslum nema endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun. Kærandi hafi byrjað að vinna aftur í lok ágúst og hafi upplýst Tryggingastofnun um það.

Tryggingastofnun segi að samkvæmt upplýsingum í skattframtali þurfi kærandi að endurgreiða 202.000 kr. Einu greiðslurnar sem kærandi hafi fengið hafi verið barnabætur sem séu skattfrjálsar. Kærandi skilji ekki hvers vegna hann þurfi að endurgreiða stofnuninni, hann hafi þurft á þessum greiðslum halda, hann hafi verið tekjulaus og Tryggingastofnun hafi verið hans eina leið til að fá tekjur.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2019.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sér vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009, um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Samkvæmt 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 170/2009, sbr. breytingareglugerð nr. 1118/2013, sé Tryggingastofnun ríkisins heimilt þegar einstaklingur leggur inn nýja umsókn um bætur að miða útreikning bóta eingöngu við þær tekjur sem áætlað sé að aflað verði eftir að bótaréttur stofnast. Unnt sé að beita heimild þessari bæði um nýja umsókn um örorkubætur/endurhæfingarlífeyri og um nýja umsókn um ellilífeyri hjá sama einstaklingi, enda sé ekki um samfellt bótatímabil að ræða. Heimildinni verði þó eingöngu beitt einu sinni um útreikning ellilífeyris. Þegar um endurhæfingar- eða örorkulífeyrisþega sé að ræða teljist umsókn vera ný ef liðin séu meira en tvö ár frá því að síðasta örorkumat hafi runnið út eða viðkomandi einstaklingur hafi verið í virkri endurhæfingu og/eða fengið greiðslur frá Tryggingastofnun.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2019 hafi kærandi verið með endurhæfingarlífeyri einungis í septembermánuði. Í samræmi við ákvæði 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 598/2009 hafi allar tekjur kæranda í þeim mánuði áhrif á réttindi kæranda. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 202.895 kr. ofgreiðslu að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar af skattframtali 2020 vegna tekjuársins 2019, hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Þann 21. ágúst 2019 hafi tekjuáætlun verið útbúin af Tryggingastofnun fyrir kæranda þar sem ekki hafi verið gert ráð fyrir neinum tekjum, einungis 82 kr. í vexti og verðbætur að meðaltali á mánuði. Kæranda hafi verið greitt samkvæmt henni fyrir septembermánuð 2019.

Við bótauppgjör ársins 2019 hafi komið í ljós að í september 2019 hafi kærandi verið með 438.591 kr. í launatekjur, 2.756 kr. í aðrar tekjur og 57 kr. í vexti og verðbætur. Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2019 hafi verið sú að kærandi hafi ekki átt rétt á neinum greiðslum árið 2019.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2019 hafi verið sú að kærandi hafi fengið greitt á árinu 240.401 kr. en hafi ekki átt að fá neitt greitt. Það hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 202.895 kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Vakin sé athygli á því að kærandi hafi sótt um niðurfellingu á ofgreiðslukröfu og samráðsnefnd Tryggingastofnunar um meðferð ofgreiðslna og vangreiðslna hafi tekið málið fyrir og samþykkt að fella niður 33% af eftirstöðvum krafna, eða 66.955 kr., vegna erfiðra fjárhagslegra aðstæðna.

Kærð ákvörðun sé í samræmi við þau lög og reglur sem gilda um uppgjör og endurreikning tekjutengdra bóta. Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2019.

Kærandi fékk greiddan endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun í september 2019. Í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 99/2007 félagslega aðstoð segir að um endurhæfingarlífeyri gildi ákvæði a-liðar 1. mgr., 4. mgr. og 5. mgr. 18. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Um aðrar tengdar bætur fari eftir sömu reglum og gilda um örorkulífeyri.

Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunni að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt með tilteknum undantekningum. Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Ef í ljós kemur við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Í 5. mgr. 16. gr. kemur fram að til grundvallar bótaútreikningi hvers mánaðar skuli leggja 1/12 af áætluðum tekjum bótagreiðsluársins og að bótagreiðsluár sé almanaksár, en sé um nýja umsókn að ræða skuli bótaréttur reiknaðar út frá þeim tekjum umsækjanda sem aflað er frá þeim tíma sem bótaréttur stofnaðist. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 598/2009 skal við endurreikning bóta til þeirra sem fengu greiðslur hluta úr bótagreiðsluári byggja á upplýsingum úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda þegar um er að ræða tekjur sem eru staðgreiðsluskyldar samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda. Eingöngu ber að líta til tekna þeirra mánaða sem bótaréttur var fyrir hendi í.

Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greiddan endurhæfingarlífeyri í september 2019 miðað við tekjuáætlun sem send var kæranda með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 21. ágúst 2020, þar sem gert var ráð fyrir að hann fengi einungis 984 kr. í vexti og verðbætur. Samkvæmt upplýsingum úr staðgreiðsluskrá kæranda, vegna tekjuársins 2019, reyndust launatekjur hans í september vera 438.591 kr. og iðgjald í lífeyrissjóð til frádráttar reyndist vera 17.544 kr., aðrar tekjur 2.756 kr., auk 57 kr. í fjármagnstekjur. Það var niðurstaða endurreiknings Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins 2019 að kærandi hafi ekki átt rétt á neinum greiðslum í september 2019. Samtals reyndist ofgreiðsla ársins vera 202.895 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kærandi hefur verið krafinn um endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar.

Ástæða þess að endurkrafa myndaðist á hendur kæranda er að tekjur kæranda voru hærri í september 2019 en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlun. Um var að ræða launatekjur. Launatekjur eru tekjustofn sem hefur áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt. Samkvæmt a-lið 2. gr. reglugerðar nr. 1205/2018 um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2019, var efra frítekjumark 4.806.308 kr. á ári vegna endurhæfingarlífeyris, þ.e. 400.526 kr. á mánuði. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum voru launatekjur kæranda í septembermánuði á árinu 2019 hærri en framangreint tekjumark segir til um og því átti hann ekki rétt á greiðslu endurhæfingarlífeyris í þeim mánuði. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Kærandi byggir á því í kæru að hann hafi byrjað að vinna í lok ágúst 2019 og hafi upplýst Tryggingastofnun um það. Samkvæmt gögnum málsins upplýsti kærandi Tryggingastofnun 12. september það ár um að hann væri byrjaður að vinna en þá hafði hann þegar fengið greiddan endurhæfingarlífeyri fyrir septembermánuð. Upplýsingarnar bárust því of seint.

Tryggingastofnun ríkisins upplýsti úrskurðarnefnd velferðarmála um að í kjölfar beiðni kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfunnar, dags. 29. júní 2020, hafi verið samþykkt að fella niður 33% af kröfunni vegna erfiðra fjárhagslegra aðstæðna og að eftirstöðvum hafi verið dreift á 36 mánuði. Sú ákvörðun hefur ekki verið kærð til úrskurðarnefndarinnar.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2019.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2019, er staðfest.

 

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

 

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum