Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 102/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 102/2021

Fimmtudaginn 26. ágúst 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 23. febrúar 2021, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. janúar 2021, um að synja umsókn hennar um greiðslur í sóttkví á grundvelli laga nr. 24/2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 30. nóvember 2020, sótti kærandi um greiðslur frá Vinnumálastofnun á grundvelli laga nr. 24/2020 um tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda án þess að vera sýktir. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. janúar 2021, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið synjað þar sem skilyrði fyrir greiðslum væru ekki uppfyllt.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 23. febrúar 2021. Með bréfi, dags. 26. febrúar 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 9. mars 2021, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að hin kærða ákvörðun hefði verið tekin skoðunar að nýju með hliðsjón af forsendum kærunnar. Hin kærða ákvörðun hefði í kjölfarið verið afturkölluð og umsókn kæranda samþykkt. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. mars 2021, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð þann 29. apríl 2021. Svar barst ekki. 

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. janúar 2021, um að synja umsókn kæranda um greiðslur á grundvelli laga nr. 24/2020. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að stofnunin hefði tekið mál kæranda til skoðunar að nýju með hliðsjón af forsendum kærunnar. Hin kærða ákvörðun hefði verið afturkölluð og umsókn kæranda samþykkt. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar en svar barst ekki.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum