Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 218/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 13. apríl 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 218/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23020050

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […]

 

Málsatvik

Hinn 9. febrúar 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 11. nóvember 2022, um að umsókn […], fd. […], ríkisborgara Venesúela, um alþjóðlega vernd hér á landi, yrði ekki tekin til efnismeðferðar og að hann yrði endursendur til Argentínu. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila hinn 10. febrúar 2023 og 17. febrúar 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um endurupptöku og frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar ásamt greinargerð. Þá barst viðbótargreinargerð 27. febrúar 2023. Hinn 23. mars 2023 var beiðni kæranda um endurupptöku synjað.

Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hann fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Aðili fer þess á leit við kærunefnd að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar verði frestað á meðan hann fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Aðili telur að ekki hafi verið litið til hættunnar sem honum stafi af endursendingu til Argentínu vegna ógilds vegabréfs, refsidóms sem hann hafi hlotið í heimaríki og nú vegna niðurfellds dvalarleyfis. Aðli muni byggja á að íslensk stjórnvöld hafi ekki uppfyllt rannsóknarskyldu samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og að ákvörðun í málinu brjóti gegn ákvæðum laga um útlendinga um bann við endursendingu (non-refoulement).

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hans að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hann skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hans til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hann höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hann sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hans fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem honum eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hans um efnismeðferð. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða að aðila sé ekki tryggð raunhæf leið til að ná fram rétti sínum þar í landi, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins, þ.m.t. þeim gögnum sem fylgdu beiðni aðila um frestun réttaráhrifa, bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Líkt og fram kemur í úrskurði kærunefndar frá 9. febrúar 2023 er aðili venesúelskur ríkisborgari sem hefur dvalið í Argentínu undanfarin ár og er með ótímabundið dvalarleyfi þar í landi. Í úrskurðinum komst kærunefnd m.a. að þeirri niðurstöðu að aðstæður aðila í viðtökuríki féllu undir skilyrði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og var því niðurstaða kærunefndar að umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar. Kærunefnd telur að líta verði til þess að hér er um að ræða mál sem er meðal fyrstu mála sinnar tegundar sem óskað er eftir frestun réttaráhrifa, en óumdeilt er að aðili hefur ekki hlotið alþjóðlega vernd í viðtökuríki og hefur ekki hlotið ríkisborgararétt þar í landi. Því lítur kærunefnd til þess að í máli aðila hafa komið fram álitaefni sem rétt sé, í þágu sjónarmiða um réttaröryggi, að fá skorið úr um fyrir dómstólum. Kærunefnd telur að hagsmunir aðila að fá niðurstöðu dómstóla um mál sitt og hagsmunir hans af því að dvelja áfram hér á landi meðan beðið er eftir niðurstöðu dómstóla vegi þungt gagnvart hagsmunum tengdum skilvirkni framkvæmdar laga um útlendinga.

Með vísan til framangreinds telur kærunefnd að ástæða sé til, eins og hér stendur sérstaklega á, að fresta réttaráhrifum á úrskurði kærunefndar í máli aðila, dags. 9. febrúar 2023, meðan aðili rekur mál sitt fyrir dómstólum, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga, með þeim skilyrðum sem koma fram í ákvæðinu og áréttuð eru í úrskurðarorði.

Aðila er leiðbeint um að uppfylli hann ekki nefnd skilyrði kann úrskurður kærunefndar í máli aðila, dags. 9. febrúar 2023, að verða framkvæmdarhæfur.

 

 

 

ÚRSKURÐARORÐ:

 

Réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamáli í máli aðila, dags. 9. febrúar 2023, er frestað á meðan aðili rekur mál sitt fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun í máli sínu á stjórnsýslustigi. Frestun réttaráhrifa úrskurðarins er bundin því skilyrði að aðili beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar þessarar og óski eftir flýtimeðferð. Sé beiðni um flýtimeðferð synjað skal þá höfðað mál innan sjö daga frá þeirri synjun.

The legal effects of the decision of the appeals board in the case of the applicant, dated 9 February 2023, are suspended during the time that the applicants’ legal proceedings for the annulment of the final administrative decisions in the applicants‘ cases are under way. The suspension of legal effects is subject to the condition that the applicant brings the case to court within five days of the date of the notification of this decision and request accelerated procedures. If the request for accelerated procedure is denied the applicant shall initiate legal proceedings before a court within seven days of that denial.

 

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum