Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 234/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 19. apríl 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 234/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23030004

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 1. mars 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Gana (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. febrúar 2023, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru kæranda má ráða að hún krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 með síðari breytingum, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 7. febrúar 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins í átta daga. Samkvæmt ferðaáætlun kæranda hafi hún ætlað að ferðast til Íslands 4. apríl 2023 og til baka 11. apríl 2023. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. febrúar 2023. Hinn 1. mars 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kæranda kemur fram að hún sé hjúkrunarfræðingur og sé í háskólanámi í London. Hún sé ríkisborgari Gana og sé með dvalarleyfi í Bretlandi en bæði löndin séu á lista yfir örugg ríki. Hún vinni í um tuttugu tíma á viku og sé með námsstyrk frá stjórnvöldum í Gana. Kærandi hafi ferðast mikið um heiminn og uppfylli allar kröfur 20. gr. laga um útlendinga. Hún hafi greint frá því að ætla að heimsækja landið sem ferðamaður og sýnt fram á fjárhagslega getu til þess. Hún haldi því fram að starfsmaður máls hennar hafi ekki skoðað gögnin nógu vel. Hún ætli sér ekki að dvelja lengur á Íslandi enda hefði það slæm áhrif á nám hennar í Bretlandi og námsstyrkinn. Hún hafi lagt fram flugmiða báðar leiðir, staðfestingu á gistingu og greint frá þeim stöðum sem hún hygðist heimsækja hér á landi.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Gana þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúi ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reiti 10 og 11 vegna synjunar á umsókn kæranda, þ.e. að upplýsingar sem veittar hafi verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar og að rökstudd ástæða sé til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun séu áreiðanlegar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins virðist kærandi ekki hafa óskað eftir slíkum rökstuðningi hjá Útlendingastofnun.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Fyrirtækið Visa Facilitation Services Global (VFS) tekur á móti umsóknum um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Bretlandi fyrir hönd sendiráðs Íslands þar í landi. Umsóknir eru í framhaldinu afhentar sendiráði Íslands sem fer yfir þær í samræmi við 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð umsóknar hennar hjá sendiráðinu er rakin. Þar kemur fram að kærandi hafi ætlað að fljúga frá London til Íslands í gegnum Amsterdam. Ekki hafi þó tekist að staðfesta flug kæranda því flugbókun hennar hafi verið afbókuð. Kærandi hafi ekki getað greint frá því af hverju umsókn hennar um vegabréfsáritun til Þýskalands hafi verið synjað og af hverju hún ætlaði að fljúga í gegnum Amsterdam til Íslands í stað þess að fljúga beint frá London. Í símaviðtali hafi svör hennar ekki verið áreiðanleg. Með vísan til framangreinds var það mat fulltrúa sendiráðsins að umsókn kæranda skyldi synjað.

Að mati kærunefndar eru framlögð gögn og þær málsástæður sem kærandi byggir á ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hennar um vegabréfsáritun. Við mat á því hefur kærunefnd m.a. litið til þess að í símaviðtali hafi kærandi verið ótrúverðug er hún hafi verið spurð um ástæðu ferðar sinnar til Íslands og ferðaáætlun. Hún hafi greint frá því að kanadískur vinur hennar sem eigi íslenskan vin hafi sagt honum frá Íslandi. Hún hafi því ákveðið að ferðast ein til landsins og vilji skoða fossa. Í gögnum málsins kemur fram að kærandi hygðist fljúga frá London til Íslands í gegnum Amsterdam í stað þess að taka beint flug sem bæði sé fljótlegra og ódýrara. Kærandi hafi engar skýringar getað gefið á þeirri ákvörðun sinni og þá hafi ekki verið hægt að staðfesta flugbókun kæranda þar sem búið hafi verið að afbóka flugið. Að mati kærunefndar er ferðaáætlun kæranda hér á landi ekki trúverðug en samkvæmt áætluninni hafi kærandi m.a. ætlað að ferðast um suðurlandið í þrjá daga en hún hafi einungis bókað hótelgistingu í Reykjavík. Þá hafi kæranda verið synjað um vegabréfsáritun til Þýskalands árið 2022 en hafi ekki munað af hverju það var og þá hafi henni einnig verið synjað um vegabréfsáritun til Spánar árið 2018.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar á Íslandi, sbr. ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum