Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A9lags%C3%BEj%C3%B3nusta%20og%20h%C3%BAsn%C3%A6%C3%B0ism%C3%A1l

Nr. 118/2018 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 118/2018

Fimmtudaginn 28. júní 2018

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 28. mars 2018, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála, synjun Reykjavíkurborgar, dags. 7. mars 2018, á umsókn hennar um styrk að fjárhæð 340.000 kr. á grundvelli a-liðar 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 22. nóvember 2017, sótti kærandi um styrk hjá Reykjavíkurborg á grundvelli a-liðar 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg að fjárhæð 340.000 kr. til greiðslu húsaleiguskuldar við Félagsbústaði hf. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 13. desember 2017, með þeim rökum að umsóknin samræmdist ekki reglum Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð. Kærandi áfrýjaði niðurstöðunni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi þann 7. mars 2018 og staðfesti synjunina.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 28. mars 2018. Með bréfi, dags. 3. apríl 2018, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 17. apríl 2018, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 24. apríl 2018. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi sótt um styrk til að greiða eftirstöðvar húsaleiguskuldar hjá Félagsbústöðum sem hún hafi greitt samviskusamlega af í um 18 ár. Í nóvember 2016 hafi hún misst heilsuna og verið á endurhæfingarlífeyri að mestu frá þeim tíma og verði líklega um nokkra hríð enn. Tekjur kæranda séu því mjög lágar og hún eigi erfitt með að ná endum saman. Kærandi óskar eftir að tekið sé tillit til aðstæðna hennar og að hún fái aðstoð við að ná endum saman þannig að hún geti haldið húsnæði sínu og eigi meiri möguleika á að ná heilsu og komast aftur út á vinnumarkaðinn.

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda. Tekið er fram að í a-lið 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg komi fram að heimilt sé að veita sérstaka aðstoð í málum þar sem verið sé að veita markvissan stuðning. Aðstoðin miði að því að viðhalda árangri sem hafi náðst með stuðningsvinnu. Skilyrði sé að umsækjandi eigi í miklum félagslegum erfiðleikum.

Byggt er á því af hálfu Reykjavíkurborgar að ákvæði 27. gr. reglnanna sé heimildarákvæði sem beri að nota í undantekningartilfellum. Við mat á því hvort skilyrði a-liðar 27. gr. reglnanna sé uppfyllt sé litið til þeirrar vinnu sem verið hafi í málum umsækjanda undanfarin ár og sé tilgangur aðstoðarinnar að viðhalda þeim árangri sem hafi náðst. Þá sé það skilyrði að viðkomandi hafi átt í miklum félagslegum erfiðleikum. Það hafi verið mat velferðarráðs Reykjavíkurborgar að aðstæður kæranda féllu ekki að a-lið 27. gr. reglnanna, þ.e. með því að veita fjárhagsaðstoð til þess að greiða niður núverandi skuld við Félagsbústaði hf. væri hvorki verið að veita markvissan stuðning né viðhalda árangri sem hafi náðst með stuðningsvinnu. Kærandi hafi greitt niður núverandi skuld við Félagsbústaði hf. með góðum árangri og því sé ekki tilefni til að veita undanþágu frá a-lið 27. gr. reglnanna.

Með hliðsjón af framansögðu hafi það verið mat velferðarráðs að ekki væri unnt að veita sérstaka aðstoð vegna stuðningsvinnu og/eða annarra sérstakra aðstæðna og því hafi synjun um styrk verið staðfest.

IV. Niðurstaða

Í máli þessu er ágreiningur um hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um styrk að fjárhæð 340.000 kr. á grundvelli a-liðar 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um sérstaka aðstoð vegna stuðningsvinnu og/eða annarra sérstakra aðstæðna. Samkvæmt a-lið 27. gr. er heimilt að veita sérstaka aðstoð í málum þar sem verið er að veita markvissan stuðning. Aðstoðin miðar að því að viðhalda árangri sem náðst hefur með stuðningsvinnu. Skilyrði er að umsækjandi eigi í miklum félagslegum erfiðleikum.

Umsókn kæranda var synjað á grundvelli þess að aðstæður hennar hafi ekki fallið að skilyrðum a-liðar 1. mgr. 27. gr. framangreindra reglna. Við meðferð kærumáls þessa hefur komið fram af hálfu Reykjavíkurborgar að ekki sé unnt að líta svo á að með því að veita fjárhagsaðstoð til þess að greiða niður skuld við Félagsbústaði hf. væri verið að veita markvissan stuðning eða viðhalda árangri sem hafi náðst með stuðningsvinnu. 

Samkvæmt gögnum málsins þiggur kærandi ekki fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg en er í starfsendurhæfingu hjá VIRK, stundar sjúkraþjálfun og er hjá sálfræðingi. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur ljóst að kærandi eigi í fjárhags- og félagslegum erfiðleikum. Að mati úrskurðarnefndarinnar benda gögn málsins þó ekki til þess að málefni kæranda hafi talist vera í markvissu ferli, í skilningi 27. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð, þegar hún sótti um styrk til greiðslu húsaleiguskuldar. Að því virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði a-liðar 1. mgr. 27. gr. reglnanna. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 7. mars 2018, um synjun á umsókn A, um styrk að fjárhæð 340.000 kr. á grundvelli a-liðar 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 Kári Gunndórsson

 

 

 

                                                                    

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum