Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 12/2015 úrskurður 20. febrúar 2015

Mál nr. 12/2015                     Millinafn:       Úlfdal

 


Hinn 20. febrúar 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 12/2015 en erindið barst nefndinni 4. febrúar:

Millinafnið Úlfdal er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Úlfdal uppfyllir þannig ákvæði  6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Úlfdal er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum