Hoppa yfir valmynd
Endurupptökunefnd

Mál nr. 6/2013

Hinn 12. desember 2013 var á fundi endurupptökunefndar tekið fyrir mál nr. 6/2013:

Beiðni um endurupptöku

úrskurðar Héraðsdóms Reykjaness,

beiðni rannsóknarnefndar sjóslysa um sjópróf að nýju

vegna slyss um borð í b/v Víði EA-910 14/2 1992

 

og kveðinn upp svohljóðandi

ÚRSKURÐUR:

 

I.                        Beiðni um endurupptöku

Með beiðni, sem barst innanríkisráðuneyti með tölvupósti þann 22. mars 2013, sem komið var á framfæri við endurupptökunefnd 4. júní 2013, fór Kristján S. Guðmundsson þess á leit að úrskurður Héraðsdóms Reykjaness frá 4. janúar 1993 vegna beiðni rannsóknarnefndar sjóslysa um sjópróf að nýju vegna slyss um borð í b/v Víði EA-910 14/2 1992 yrði endurupptekinn í héraði.

Með vísan til 34. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla, sbr. 2. gr. laga nr. 15/2013, fjallar endurupptökunefnd um endurupptökubeiðni þessa. Nefndina skipa Ragna Árnadóttir, Björn L. Bergsson og Þórdís Ingadóttir.

II.                     Málsatvik

Í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness frá 4. janúar 1993 var kröfu rannsóknarnefndar sjóslysa um nýtt sjópróf vegna slyss um borð í b/v Víði EA 910 14. febrúar 1992 vísað frá dómi. Endurupptökubeiðandi sótti þing í málinu fyrir hönd rannsóknarnefndar sjóslysa.  

III.                   Niðurstaða

Af hálfu endurupptökunefndar er leyst úr máli þessu á grundvelli XXVI. kafla laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Samkvæmt 1. mgr. 167. gr. laganna getur endurupptökunefnd orðið við beiðni um að héraðsdómur, sem hefur ekki verið áfrýjað, og áfrýjunarfrestur er liðinn, verði endurupptekinn til nýrrar meðferðar í héraði ef skilyrðum ákvæðisins er fullnægt.

Til að endurupptökunefnd sé fært að fjalla um beiðni um endurupptöku þarf endurupptökubeiðandi að hafa átt aðild að því dómsmáli sem endurupptökubeiðni beinist að.  Endurupptökubeiðandi sótti þing fyrir rannsóknarnefnd sjóslysa sem starfsmaður nefndarinnar við meðferð þess dómsmáls sem endurupptökubeiðni beinist að. Endurupptökubeiðandi átti aftur á móti ekki persónulega aðild að því máli. Þegar af þessari ástæðu ber að vísa beiðninni frá endurupptökunefnd.

Úrskurðarorð

Beiðni Kristjáns S. Guðmundssonar um endurupptöku úrskurðar  Héraðsdóms Reykjaness frá 4. janúar 1993 um beiðni rannsóknarnefndar sjóslysa um sjópróf að nýju vegna slyss um borð í b/v Víði EA-910 14/2 1992 er vísað frá endurupptökunefnd.

Ragna Árnadóttir formaður

Björn L. Bergsson

Þórdís Ingadóttir

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum