Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 194/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 5. apríl 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 194/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23030013

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Hinn 15. ágúst 2022 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 23. maí 2022, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 18. ágúst 2022.

Hinn 24. ágúst 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Með úrskurði kærunefndar nr. 351/2022, dags. 2. september 2022, var þeirri beiðni kæranda hafnað. Hinn 3. mars 2023 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Kærunefnd bárust upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda frá Útlendingastofnun 8. mars 2023 og frá stoðdeild ríkislögreglustjóra 9. mars 2023.

Af beiðni kæranda um endurupptöku má ráða að hún byggi á 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Beiðni kæranda um endurupptöku málsins byggir á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi, en tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á hans ábyrgð. Með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skuli umsókn kæranda því tekin til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar nr. 580/2017, dags. 24. október 2017, máli sínu til stuðnings.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður samkvæmt 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum sé þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar séu í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar umsækjandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þótt 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja umsækjanda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 2. mars 2022 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti 2. mars 2023. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Hinn 8. mars 2023 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild. Sneri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort þær tafir væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Svör bárust frá Útlendingastofnun þann sama dag og frá stoðdeild 9. mars 2023.

Í svari Útlendingastofnunar kemur fram að ekki sé litið svo á að kærandi hafi tafið mál sitt hjá stofnuninni. Hins vegar hafi kærandi komið sér hjá flutningi í nóvember sl. og af þeim sökum sé litið svo á að hann hafi tafið mál sitt, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt upplýsingum hafi kærandi farið huldu höfði síðan. Í svari stoðdeildar kemur fram að 14. september 2022 hafi lögregla farið að dvalarstað kæranda. Kærandi hafi talað litla ensku en honum hafi verið tjáð með aðstoð þýðingarforrits að hann yrði fluttur til Grikklands eftir um það bil tvær vikur. Kærandi hafi tjáð lögreglumönnum að hann skildi að hann ætti að fara en kvaðst ekki vilja fara til Grikklands. Kærandi hafi hringt í talsmann sinn á meðan lögreglan var á dvalarstað hans og talsmanni hans tjáð tilefni afskipta lögreglu. Til hafi staðið að flytja kæranda til Grikklands 4. október 2022. Hinn 3. október 2022 hafi lögreglumenn farið að dvalarstað kæranda en hann ekki verið á staðnum. Herbergisfélagar hans hafi greint frá því að hann væri farinn út og vaktmaður í úrræðinu kvaðst ekki hafa séð kæranda þann daginn. Þá kemur fram að lögreglan hafi að nýju farið að dvalarstað kæranda þann sama dag. Herbergisfélagar hans hafi þá greint frá því að þeir hafi ekki séð kæranda í þrjá daga eða viku. Kærandi hafi hvergi verið sjáanlegur. Hringt hafi verið í símanúmer kæranda en símtalið farið beint í talhólf. Lögregla hafi lesið skilaboð inn á talhólf kæranda um að hún vildi ræða við hann. Ekki hafi tekist að finna eða ná í kæranda og því hafi verið hætt við fyrirhugaðan flutning 4. október 2022 og flugmiðar afbókaðir. Í framhaldinu hafi ekkert heyrst í kæranda en hann hafi verið settur á framkvæmdarlista vegna ferðar til Grikklands 3. nóvember 2022. Hinn 31. október 2022 hafi lögreglan farið að dvalarstað kæranda en hann hafi hvergi verið að finna. Lögreglan hafi haft samband við varðstöðina á Keflavíkurflugvelli sem hafi greint frá því að kærandi hafi verið skráður í flug til Amsterdam 4. október 2022 en við nánari athugun kom í ljós að hann hafi ekki farið með því flugi. Lögreglan óskaði þá einnig eftir því að símafyrirtæki veitti upplýsingar um notkun og staðsetningu síma kæranda. Samkvæmt upplýsingum frá símafyrirtækinu hafi engin notkun verið á símanúmeri kæranda á tímabilinu 17. október 2022 til 31. október 2022.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 20. mars 2023, var kæranda send þau gögn sem bárust frá Útlendingastofnun og stoðdeild og honum veittur frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Í tölvubréfi frá lögmanni kæranda, dags. 23. mars 2023, kemur fram að hann hyggist ekki leggja fram andmæli.

Líkt og að framan greinir er í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mælt fyrir um lögbundinn tólf mánaða frest fyrir stjórnvöld til að ljúka afgreiðslu umsóknar um alþjóðlega vernd. Líkt og að framan greinir lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 2. mars 2022. Þegar stoðdeild ríkislögreglustjóra hitti kæranda 14. september 2022 var því fullnægjandi tími til þess að framkvæma flutning á kæranda til viðtökuríkis áður en 12 mánaða fresturinn sem áskilinn er í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga rann út. Í lögskýringargögnum með ákvæðinu er ekki að finna leiðbeiningar um það hvenær um tafir sé að ræða á málsmeðferð sem með réttu geti talist vera á ábyrgð umsækjanda. Samkvæmt orðanna hljóðan verður að ætla að málefnalegt sé að telja að undir það heyri a.m.k. þegar umsækjendur reyni að tefja málsmeðferð, svo sem með því að láta sig hverfa. Af gögnum málsins er ljóst að kærandi hafi látið sig hverfa eftir að starfsmenn stoðdeildar hafi greint honum frá því að til stæði að flytja hann til Grikklands. Stoðdeild hafi reynt að hafa uppi á kæranda í búsetuúrræði hans og í síma án árangurs. Með vísan til framangreinds telur kærunefnd að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af því leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga fyrir því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar eru ekki uppfyllt.

Í ljósi framangreinds er því ekki fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Endurupptöku á máli hans er þar með hafnað.

 

Úrskurðarorð:

 

Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

The appellant‘s request to re-examine the cases is denied.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Gunnar Páll Baldvinsson                                                       Bjarnveig Eiríksdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum