Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0ir%20um%20sj%C3%A1var%C3%BAtveg%20og%20fiskeldi

Ákvörðun Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur kveðið upp svohljóðandi

 

ÚRSKURÐ

 

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru frá [A], dags. 30. apríl 2021, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 16. apríl 2021, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021 á Skagaströnd.

            Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

 

Kröfur kæranda

Ráða má af kæru að kærandi geri þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta á Skagaströnd, dags. 16. apríl 2021, og úthlutað verði að nýju byggðakvóta í samræmi við bókun sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagastrandar, dags. 13. október 2020, þar sem kærandi telur að sérreglur þær sem Fiskistofa notar til grundvallar úthlutun séu ekki í samræmi við bókun sveitarstjórnarinnar.

 

Málsatvik

Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 16. mars 2021, sem birt var á vefsíðu Fiskistofu: www.fiskistofa.is, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 í nokkrum byggðarlögum, m.a. fyrir Skagaströnd en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. og 5. gr. reglugerðar nr. 728/2020, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021. Umsóknarfrestur var til og með 30. mars 2021. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hafði þá úthlutað 163 þorskígildistonnum af byggðakvóta til byggðalagsins.

            Kærandi sótti um byggðakvóta á Skagaströnd með umsókn, dags. 16. mars 2021, fyrir bátinn [B]. Hinn 16. apríl 2021 tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta á Skagaströnd ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta, m.a. til ofangreinds báts.

            Þá kom þar fram að ákvörðunin væri kæranleg til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu Fiskistofu um ákvörðunina, sbr. 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006.

            Kæra barst ráðuneytinu, dags. 30. apríl 2021.

 

Málsástæður í stjórnsýslukæru og málsmeðferð

Í stjórnsýslukæru er málsatvikum lýst á þann hátt að kærandi telji að sérreglur sem Fiskistofa notar til grundvallar úthlutun á byggðakvóta séu ekki í samræmi við bókun sveitastjórnar Sveitafélagsins Skagastrandar sem samþykkt var á fundi þann 13. október 2020. Segir kærandi að samkvæmt bókun sveitarstjórnar hefði ákvæði c. liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 728/2020 átt að vera eftirfarandi:

 

„a. Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2020. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.“

 

            Ennfremur segir í stjórnsýslukæru að það sé skilningur kæranda á bókun sveitarstjórnar að hún hafi ekki viljað nýta eftirfarandi heimildarákvæði:

 

„Heimilt er að úthluta aflamarki byggðarlaga til fiskiskipa, sem uppfylla skilyrði a- og b-liðar og eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í öðru byggðarlagi en umsókn um byggðakvóta beinist að, ef þeir stunda einnig útgerð með skip sem skráð eru í því byggðarlagi sem þeir hafa heimilisfang í.“

 

Með tölvubréfi, dags. 6. maí 2021, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.

            Í umsögn Fiskistofu, dags. 14. maí 2021, segir m.a. að ákvörðun Fiskistofu, dags. 16. apríl 2021, byggi á því að kærandi hafi uppfyllt skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta skv. reglugerð nr. 728/2020 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021 og auglýsingu nr. 271/2021 um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á árinu 2020/2021. Kæran lúti að því að Fiskistofa hafi ekki tekið tillit til bókunar sveitarstjórnar Skagastrandar við úthlutun. Ákvæði 5. mgr. 10 . gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða geri ráð fyrir að sveitarstjórnir geti gert tillögu að sérstökum skilyrðum fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum byggðalögum, en jafnframt er gert ráð fyrir að ráðherra hafi vald til að fallast á slíkar tillögur eða hafna þeim. Þær tillögur sem ráðherra fellst á er birtar í auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda og skapa grundvöll úthlutunar byggðakvóta ásamt reglugerð nr. 728/2020. Tillögur sveitarstjórnar Skagastrandar, dags. 28. október 2020, hafi verið birtar á vefsíðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Hvað varði ákvæði í 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 728/2020 gerði sveitarstjórnin tillögu að breytingu á c. lið 1. mgr. 1. gr. Sveitastjórnin gerði enga tillögu að breytingu á 2. mgr. 1. gr. Ráðherra setti sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda fyrir Sveitarfélagið Skagaströnd sem viku frá eða voru til viðbótar hinum almennu skilyrðum fyrir úthlutun byggðakvóta, skv. 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, m.a. hvað varðar c. lið 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 728/2020, sbr. auglýsingu nr. 271/2021. Kærandi virðist halda fram að sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta fyrir sveitarfélagið hafi ekki tekið mið af bókun sveitarstjórnarinnar, dags. 13. október 2020, hvað varðar 1. og 2. mgr. 1. gr. Samkvæmt lögmætisreglu stjórnsýsluréttarins verði ákvarðanir og athafnir Fiskistofu að eiga sér stoð í lögum. Meðalhófsregla stjórnsýsluréttarins feli það m.a. í sér að stjórnvald verði að gæta hófs í meðferð valds síns og það vald verði að eiga sér stoð í lögum. Fiskistofa hafi miðað úthlutun byggðakvóta til skipsins [B] við gildandi stjórnvaldsfyrirmæli. Fiskistofa geti ekki án lagastoðar eða heimildar í stjórnvaldsfyrirmælum vikið frá þeim sérstöku skilyrðum sem ráðherra hefur staðfest. Þá verður ekki séð að bókanir sveitarstjórnar séu tækar til lögskýringar á umræddum stjórnvaldsfyrirmælum eða gangi framar þeim. Með hliðsjón af framangreindu telji Fiskistofa að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

            Eftirtalin gögn fylgdu umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins: 1) Ákvörðun Fiskistofu, dags. 16. apríl 2021. 2) Frétt á vefsíðu Fiskistofu, dags. 16. mars 2021.

            Með tölvubréfi, dags. 26. maí 2021, sendi ráðuneytið umsögn Fiskistofu til kæranda og gaf honum kost á að koma fram með frekari athugasemdir. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 Rökstuðningur

I.

Stjórnsýslukæra í máli þessu er byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, en samkvæmt ákvæðinu er heimilt að kæra til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins ákvarðanir Fiskistofu um úthlutun aflaheimilda samkvæmt greininni. Ákvæðið verður að skýra með hliðsjón af ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sem einnig gilda um meðferð þessa máls að því leyti sem ekki eru sérstök ákvæði um það í framangreindum lögum.

            Stjórnsýslukæra barst ráðuneytinu þann 30. apríl 2021 sem er innan kærufrests sem var tvær vikur frá ákvörðun Fiskistofu, og er málið tekið til efnismeðferðar.

 

II.

Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 gilda ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Í 5. mgr. 10. gr. er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.

            Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 728/2020, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2020/2021 sem eru:

 

            a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða,

            b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2020 og

            c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2020. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækja-skrá [Skattsins].

 

Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök viðbótarskilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Sambærilegt ákvæði er í 2. gr. reglugerðar nr. 728/2020. Sett hafa verið sérstök viðbótarskilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á Skagaströnd með auglýsingu nr. 271/2021, um (1.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021.

 

Auglýsingin sem birtist í B-deild Stjórnartíðinda þann 15. mars 2021 öðlaðist þegar gildi eða frá og með 16. mars 2021. Segir um Sveitarfélagið Skagaströnd að ákvæði reglugerðar nr. 728/2020 gildi um úthlutun byggðakvóta Skagastrandar með eftirfarandi breytingum:

 

            a)         Ákvæði c-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með póstfang í sveitarfélaginu 1. júlí 2020.

 

            Ekki verður fjallað sérstaklega um b- og c-lið sérreglna í auglýsingu nr. 271/2021.

 

Þann 18. mars 2021 var gerð breyting á auglýsingunni. Auglýsing nr. 307/2021 um (1.) breytingu á auglýsingu um (1.) staðfestingu reglna sveitartfélaga um úthlutun byggðakvóta, nr. 271/2021 birtist í B-deild Stjórnartíðinda þann 18. mars 2021 og öðlaðist þegar gildi, frá og með 19. mars 2021. Í 1. gr. segir:

 

            a)         Ákvæði c-liðar 1. mgr. 1. gr. breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með póstfang og lögheimili í sveitarfélaginu 1. júlí 2020.

 

            Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa á Skagaströnd fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 fór því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, reglugerð nr. 728/2020 og auglýsingu nr. 271/2021, sbr. auglýsingu nr. 307/2021.

 

III.

Kæruefnið er byggt á því að kærandi telji að sérreglur sem Fiskistofa notar til grundvallar úthlutun á byggðakvóta séu ekki í samræmi við bókun sveitastjórnar Sveitafélagsins Skagastrandar sem samþykkt var á fundi þann 13. október 2020. Ráðuneytið bendir á að þær reglur sem gilda um úthlutun og taldar eru upp hér að framan eru þær reglur sem stjórnvaldið Fiskistofa skal miða við þegar teknar eru ákvarðanir um úthlutunar byggðakvóta. Ekki er gert ráð fyrir að vísað sé sérstaklega til tillagna sveitarstjórna sem hafa ekki lagalegt gildi stjórnvaldsfyrirmæla eins og reglugerð og auglýsing sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda.

            Bar Fiskistofu því við úthlutun að miða við almenn skilyrði í reglugerð nr. 728/2020 auk sérstakra skilyrða sem koma fram í auglýsingum nr. 271/2021 og nr. 307/2021.

 

IV.

Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að staðfesta beri ákvörðun Fiskistofu, dags. 16. apríl 2021, um úthlutun byggðakvóta til bátsins [B]  enda hafi ákvörðunin verið í samræmi við gildandi lög og reglur sem gilda eiga um úthlutunina.

            Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Úrskurður

Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 16. apríl 2021, um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 til bátsins [B].


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum