Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 197/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 30. mars 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 197/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23030073

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […]

 

Málsatvik

Hinn 26. mars 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. nóvember 2022, um að synja […], fd. […], ríkisborgara Kúbu (hér eftir nefndur aðili), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Sama dag tók þáverandi talsmaður aðila á móti úrskurði kærunefndar í gegnum Signet transfer.

Hinn 20. mars 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 27. mars 2023 barst kærunefnd greinargerð aðila.

Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hún fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Aðili byggir beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að aðili hyggist þingfesta mál á hendur íslenska ríkinu og krefjast ógildingar á úrskurði kærunefndar útlendingamála. Aðili byggir á því að verði ekki fallist á frestun réttaráhrifa í máli hennar muni það valda aðila óafturkræfum skaða. Í því samhengi vísar aðili til 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Aðili byggi á því að verði henni brottvísað áður en meðferð dómstóla í máli hennar líkur þá muni aðili ekki eiga raunhæft úrræði til að bera ákvörðun stjórnvalda undir dómstóla. Aðili byggi á því að framkvæmd úrskurðarins muni valda henni óafturkræfum skaða enda bíði hennar í Kúbu lífshættulegar ofsóknir. Þá byggir aðili beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að alls óvíst sé að hún muni eiga kost á að því að vera í netsambandi við lögmann sinn sem sé eina raunhæfa leiðin fyrir hana að eiga í samskiptum við hann.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála, sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta verði til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu að hún telji að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hún skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hennar til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar.

Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hún höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hafi aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hún sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hennar fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem henni eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017, frá 23. maí 2018, og E-6830/2020, frá 15. desember 2020. Hvað varðar málsástæðu aðila um að í heimaríki muni vera erfitt fyrir hana að vera í sambandi við lögmann sinn á Íslandi vekur kærunefnd athygli á að aðgangur er að interneti í Kúbu. Þá getur aðili jafnframt átt í samskiptum við lögmann sinn í gegnum síma.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hennar. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í heimaríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Í samræmi við framangreint er það jafnframt mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum staða snúi hún aftur til heimaríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli aðila.


 

Úrskurðarorð:

Kröfu aðila er hafnað.

The appellants request is denied.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Tómas Hrafn Sveinsson, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum