Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 17/2017 Úrskurður 17. mars  2017

Mál nr. 17/2017                     Eiginnafn:  Karma

                                               

 


Hinn 17. mars 2017  kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 17/2017 en erindið barst nefndinni 14. mars 2017.

Sótt er um eiginnafnið Karma sem kvenmannsnafn en það er á mannanafnaskrá sem karlmannsnafn. Til þess að fallist sé á eiginnafn og það fært á mannanafnaskrá verður öllum skilyrðum 5. gr. laga um mannanöfn að vera fullnægt.

Í 2. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 er kveðið á um að stúlku skuli gefa kvenmannsnafn og dreng skuli gefa karlmannsnafn. Í þessu ákvæði felst ekki bann við því að nafn sé hvorutveggja karlmannsnafn og kvenmannsnafn. Það á til dæmis við um eiginnöfnin Blær og Auður. Ef nafn telst hins vegar einvörðungu vera annaðhvort karlmannsnafn eða kvenmannsnafn í íslensku máli leiðir hins vegar af 2. mgr. 5. gr. að slíkt nafn má ekki gefa einstaklingi af gagnstæðu kyni. Nafnið Karma var leyft sem karlmannsnafn í máli nr. 39/2016. Nafnið hefur hins vegar ekki öðlast hefð sem karlmannsnafn í íslensku máli og beygist samkvæmt algengri beygingu kvenkynsnafna en sjaldgæfri hjá karlmannsnöfnum. Það er því ekkert sem kemur í veg fyrir það að það verði einnig notað sem kvenkynseiginnafn.

Eiginnafnið Karma (kvk.) tekur íslenska eignarfallsendingu, Körmu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Karma (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum