Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 538/2022-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 538/2022

Fimmtudagurinn 12. janúar 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 14. nóvember 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. ágúst 2022, um að hafna umsókn hennar um atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. ágúst 2022, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar um atvinnuleysisbætur væri hafnað þar sem vinna á ávinnslutímabili næði ekki lágmarksbótarétti. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 14. nóvember 2022. Með bréfi, dags. 16. nóvember 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 20. desember 2022, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því myndi hin kærða ákvörðun verða afturkölluð. Með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag, var óskað eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar. Svar barst frá kæranda 2. janúar 2023.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. ágúst 2022, um að hafna umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar velferðarmála var vísað til þess að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því myndi hin kærða ákvörðun verða afturkölluð. Í svari kæranda vegna beiðni úrskurðarnefndarinnar um afstöðu hennar til greinargerðar Vinnumálastofnunar kemur fram að hún samþykki þá ákvörðun stofnunarinnar en krefjist þess að Vinnumálastofnun greiði einnig dráttarvexti og lögmannskostnað. Vinnumálastofnun hafi án fyrirvara og án ástæðu tekið atvinnuleysisbætur af kæranda. Hún hafi verið tekjulaus í marga mánuði og þurft að eyða miklum peningum í lögfræðiaðstoð.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar skal úrskurðarnefndin kveða upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna.

Þar sem Vinnumálastofnun hefur ákveðið að afturkalla hina kærðu ákvörðun og kærandi hefur samþykkt þá ákvörðun verður ekki séð að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og stofnunarinnar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála. Hvað varðar beiðni kæranda um greiðslu dráttarvaxta og lögmannskostnaðar bendir úrskurðarnefndin á að beina skal því erindi til Vinnumálastofnunar.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum