Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 388/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 20. ágúst 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 388/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21060065

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 29. júní 2021 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Palestínu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. júní 2021, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka mál hans til meðferðar á ný með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar málsmeðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 21. september 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 27. september 2020, kom í ljóst að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að honum hefði verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi þann 14. maí 2019. Með umsókn framvísaði kærandi grísku dvalarleyfisskírteini með gildistíma frá 19. maí 2019 til 18. maí 2022. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 12. nóvember 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 3. febrúar 2021 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Þann 29. apríl 2021 var ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun öðru sinni þann 18. maí 2021. Með ákvörðun, dags. 8. júní 2021, synjaði Útlendingastofnun öðru sinni að taka mál kæranda til efnismeðferðar. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 15. júní 2021. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar þann 29. júní 2021. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 8. júlí 2021, ásamt fylgigagni. Þá bárust frekari gögn þann 19. ágúst 2021.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda vísar hann til greinargerðar hans til Útlendingastofnunar, dags. 26. nóvember 2020, greinargerðar til kærunefndar útlendingamála, dags. 9. mars 2021 og annarra gagna málsins hvað málsatvik og málsástæður varðar. Í greinargerð kæranda til kærunefndar, dags. 9. mars 2021, vísar hann til greinargerðar hans til Útlendingastofnunar en þar kemur m.a. fram að kærandi hafi glímt við andleg veikindi vegna atburða sem hann hafi upplifað í heimaríki og endurupplifi enn í dag. Kærandi hafi greint frá því að hafa verið handtekinn, fangelsaður og pyndaður af Hamas og hann þjáist af líkamlegum áverkum enn í dag. Kærandi hafi farið í uppskurð á fæti í Belgíu en hafi ekki batnað í kjölfar þess. Kærandi hafi greint frá því að þjást af þunglyndi, svefnleysi og almennri andlegri vanheilsu. Þá hafi kærandi lagt fram læknisfræðileg gögn frá Íslandi þar sem fram komi að hann sé með blóðtappa í fæti. Kærandi hafi hrakist frá Grikklandi vegna þess að þar í landi hafi hann verið heimilislaus, atvinnulaus og ekki haft aðgang að heilbrigðiskerfinu, í kjölfar þess að hafa fengið þar alþjóðlega vernd. Þá hafi kærandi ekki haft tækifæri til frekari menntunar. Kærandi hafi lifað á lánum frá fjölskyldu sinni þar sem hann hafi misst framfærslu sína eftir að hafa fengið dvalarleyfi í Grikklandi. Kærandi hafi ítrekað orðið fyrir fordómum, áreiti og ofbeldi í Grikklandi bæði af hálfu lögreglu og almennings.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka mál hans til meðferðar á ný. Byggir kærandi kröfu sína á því að slíkir annmarkar hafi verið á málsmeðferð hans hjá Útlendingastofnun að rétt sé að ógilda ákvörðunina. Kærandi vísar til þess að hann hafi hvorki sótt um skattnúmer né kennitölu í Grikklandi, hann hafi ekki fengið heilbrigðisþjónustu þar í landi, auk þess sem hann hafi reynt að verða sér úti um atvinnu án árangurs. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi átt að ganga úr skugga um að það hvort hann væri með kennitölu og skattnúmer í Grikklandi áður en ákvörðunin var tekin. Kærandi telur því að rannsókn málsins sé áfátt og brjóti gegn 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU20110005, frá 10. desember 2020, og er ósammála mati kærunefndar hvað varðar möguleika handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi til að sækja um skattnúmer. Kærandi vísar til þess að þær aðgangshindranir sem séu til staðar séu svo illyfirstíganlegar í framkvæmd að þær feli í raun í sér ómöguleika á slíkri umsókn. Kærandi vísar til þess að honum standi ekki til boða sú læknisþjónusta sem hann þurfi á að halda í Grikklandi líkt og Útlendingastofnun heldur fram í hinni kærðu ákvörðun, enda liggi það ekki ljóst fyrir hvort kærandi sé með skattnúmer eða kennitölu í Grikklandi. Þá telur kærandi að Útlendingastofnun hafi átt að eiga frumkvæði að því að óska eftir sérstöku mati sérfræðings á líkamlegu heilsufari hans og afstöðu hans varðandi afleiðingar þess að hann fái ekki viðeigandi heilbrigðisþjónustu enda sé Útlendingastofnun betur til þess fallin að kalla eftir slíku mati heldur en kærandi. Þar sem Útlendingastofnun lét hjá líða að afla frekara mats telur kærandi að rannsókn málsins hafi verið áfátt og ekki í samræmi við 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi telur með hliðsjón af framangreindum athugasemdum séu verulegir annmarkar á málsmeðferð hans hjá Útlendingastofnun sem kunni að hafa haft áhrif á niðurstöðuna í máli hans og því beri að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins gerir kærandi þá kröfu til vara að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar. Byggir kærandi á því að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli kæranda sem mæli með því að mál hans hljóti efnismeðferð hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, en þar sé m.a. nefnt í dæmaskyni að geti umsækjandi vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki skuli taka umsóknina til efnismeðferðar. Kærandi vísar til þess að í málinu liggi fyrir fjöldinn allur af heilsufarsgögnum en í þeim komi m.a. fram að hann hafi fengið blóðtappa þegar hann var í Belgíu og í kjölfarið fengið blóðþynnandi lyf í nokkra daga. Þá hafi kærandi fengið blóðtappa hér á landi og í kjölfarið settur í 6 mánaða blóðþynnandi meðferð og eftirfylgni hjá heimilislækni. Þá beri heilsufarsgögn kæranda með sér að andleg heilsa hans sé afar bágborin og að full ástæða sé til að afla frekari upplýsinga um andlega heilsu hans. Ljóst sé að hann sé í mikilli þörf fyrir geðheilbrigðisþjónustu. Sé litið til framburðar kæranda, heilsufarsgagna og þeirra lyfja sem hann taki að staðaldri megi draga þá ályktun að hann glími við mikil og alvarleg veikindi og þörf hans fyrir sérhæfða heilbrigðisþjónustu, s.s. þunglyndismeðferð, sálfræðiviðtöl og eftirfylgni vegna blóðtappans í fæti sé mikil. Kærandi vísar til þess að af framburði hans verði ekki ráðið með vissu hvort hann hafi verið með kennitölu og skattnúmer í Grikklandi. Þá beri að líta til þess að hann hafi verið heimilislaus, atvinnulaus og hafi ekki haft aðgang að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi og því megi leiða líkum að því að hann hafi hvorki haft skattnúmer né kennitölu þar í landi. Kærandi telur að litlar líkur séu á því að hann muni hafa greiðan aðgang að þeirri heilbrigðisþjónustu sem hann þurfi á að halda í Grikklandi en mikil óvissa ríki í þeim efnum og alla óvissu beri að túlka honum í hag. Þá liggi ekki fyrir sérfræðilegt mat á því hvaða afleiðingar það muni hafa fái kærandi ekki viðeigandi heilbrigðisþjónustu en af fyrirliggjandi heilsufarsgögnum megi leiða líkum að því að kvíði og andleg vanlíðan kæranda muni ágerast enn frekar. Með vísan til framangreinds telur kærandi að aðstæður hans tengdar heilsufari séu þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og því beri að fallast á kröfu hans að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt réttarstaða flóttamanns í Grikklandi þann 14. maí 2019 og hefur hann gilt dvalarleyfi þar í landi til 18. maí 2022. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2020 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 30. mars 2021);
  • Amnesty International Report 2020/21 – Greece (Amnesty International, 7. apríl 2021);

  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2021);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 22. mars 2021);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 19. ágúst 2021);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 19. ágúst 2021);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 19. ágúst 2021) og
  • World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2021 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið þurfi að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa almannatrygginganúmer, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt framangreindri skýrslu er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Samkvæmt rannsókn frá árinu 2018 hafi meirihluti þeirra flóttamanna sem þá hafi verið starfandi verið í óskráðu starfi. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fari einungis fram á grísku en umsækjendur geti leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þurfi að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjái um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verði ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er [...] ára karlmaður. Hann kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun hafa verið pyndaður í heimaríki. Í bráðamóttökuskrá, dags. 14. október 2020, kemur fram að kærandi hafi fundið fyrir verk í kálfa og þyngslum fyrir brjósti. Kærandi hafi verið sendur í ómun á fæti sem hafi leitt í ljós blóðtappa og honum ávísað lyfi vegna þess, sem honum hafi verið ráðlagt að taka inn í 6 mánuði. Mælt hafi verið með eftirliti á heilsugæslu. Í samskiptaseðlum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 30. október til 18. nóvember 2020, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að hafa lærbrotnað á vinstra læri árið 2014. Kærandi hafi þá greint frá því að hafa verið sendur í þræðingu í Belgíu vegna blóðtappa. Þá hafi kærandi greint frá miklum kvíða sem hann finni mest fyrir á nóttunni auk þess sem hann sofi einungis í 3 til 4 klukkustundir og fái martraðir. Í samskiptaseðlum frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 27. október til 27. nóvember 2020, kemur fram að kærandi hafi leitað þangað vegna tannpínu og höfuðverks. Kærandi hafi fengið verkjastillandi og bólgueyðandi lyf. Skoðun hafi leitt í ljós mikla vöðvabólgu. Í bráðamóttökuskrá, dags. 29. nóvember 2020, kemur fram að kærandi hafi leitað á bráðamóttöku vegna verkjar í fótlegg og svima. Skoðun á bráðamóttöku hafi leitt í ljós að vinstri fótleggur sé áberandi sverari og rauðari. Kæranda hafi verið ávísað bólgueyðandi og verkjastillandi lyfi auk áburðar við æðabólgu. Jafnframt hafi kæranda verið ráðlagt að taka inn verkjalyf. Í samskiptaseðlum frá heilsugæslunni Efra Breiðholti, dags. 15. janúar 2021, kemur fram að kærandi hafi óskað eftir lyfjum til að aðstoða við svefn. Kæranda hafi verið ávísað svefnlyfi. Í samskiptaseðli frá heilsugæslunni Efra Breiðholti, dags. 11. febrúar til 3. mars 2021, kemur fram að kæranda hafi verið ávísað kvíða og þunglyndislyfi. Þá hafi kærandi greint frá andþyngslum og nefstíflu. Kæranda hafi verið ávísað nefúðalyfi. Í bráðamóttökuskrá frá Landspítala, dags. 23. febrúar 2021, kemur fram að kærandi hafi leitað þangað vegna máttminnkunar í vinstri helming líkama og andþyngsla. Taugaskoðun hafi verið eðlileg en kærandi hafi verið sendur í tölvusneiðmynd á höfði og hálsi. Í myndgreiningarsvari, dags. 23. febrúar 2021, kemur fram að ekki hafi greinst blæðing eða önnur fyrirferð. Þá hafi hvorki greinst veggkalkanir né þrengsli í meginslagæðum. Vægar slímhúðarþykknanir hafi þó fundist í hægri kinnholu. Í samskiptaseðlum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 22. desember 2020, 6. apríl, 8. júní og 10. ágúst 2021, kemur fram að kærandi hafi hitt sálfræðing í fjögur skipti. Í samskiptaseðli frá heilsugæslunni Efra Breiðholti, dags. 23. mars 2021, kemur fram að kærandi finni enn fyrir einkennum frá vinstri kálfa en hann sé með roða, eymsli og óþægindi. Kærandi hafi fengið tíma hjá Göngudeild æðaskurðdeildar á Landspítalanum Fossvogi til frekara mats. Í komunótu frá Göngudeild æðaskurðdeildar, dags. 21. apríl 2021, kemur fram að ómun á vinstri fæti hafi leitt í ljós að kærandi sé með partial thrombosu sem sé líklegast krónísk. Í svari heimilislæknis á heilsugæslunni Efra Breiðholti við tölvubréfi talsmanns kæranda, dags. 12. júní 2021, kemur fram að kærandi finni fyrir miklum kvíða sérstaklega á nóttunni. Kærandi eigi erfitt með svefn og fái martraðir. Þá hafi kærandi fundið fyrir óþægindum fyrir brjósti. Skoðun og rannsóknir hafi útilokað kransæðasjúkdóm og lungnasjúkdóma en einkennin megi rekja til mikils kvíða, innilokunarkenndar og oföndunar. Kærandi taki inn sefandi lyf til að bæta svefn auk þess sem hann taki inn lyf til að slá á kvíða og depurð. Þá taki kærandi inn blóðþynnandi lyf vegna blóðtappa í fæti. Kærandi eigi tíma í ómun á bláæðum í október til að meta hver áframhaldandi meðferð verður.

Í samskiptaseðli hjúkrunar frá heilsugæslunni Efra Breiðholti, dags. 8. júlí 2021, kemur fram að kærandi hafi óskað eftir endurnýjun á svefnlyfi. Samkvæmt fyrri lyfseðli og ráðlögðum skammtastærðum hafi kærandi enn átt að eiga 51 dag eftir af lyfinu. Farið hafi verið yfir skammtastærðir með kæranda. Í komunótu frá heilsugæslunni Efra Breiðholti, dags. 21. júlí 2021, kemur fram að kærandi hafi ekki notað stuðningssokk sem honum hafi verið ráðlagt þar sem hann fái óþægindi fyrir brjóstið og eigi erfitt með að anda þegar hann sé búinn að nota hann í þrjá daga. Kæranda hafi verið bent á að þau einkenni gætu verið kvíðatengd. Þá hafi kærandi kvartað um verk í mjóbaki og niður í fót. Skoðun hafi leitt í ljós að hreyfingar um mjóbak væru í lagi. Kæranda hafi verið ráðlagt að standa ekki bara í annan fótinn og honum kenndar teygjur. Þá hafi kærandi fengið endurnýjun á svefn- og kvíðalyfjum auk blóðþynnandi lyfs. Í komunótu frá heilsugæslunni Efra Breiðholti, dags. 10. ágúst 2021, kemur fram að kærandi hafi leitað þangað vegna fyrri vandamála með vinstri fótlegg en skoðun hafi leitt í ljós meira umfang og mar á vinstri ökkla. Kæranda hafi verið ávísað nýrri tegund af blóðþynnandi lyfi og honum ráðlagt að koma í endurmat með nýrri ómun og skoðun hjá heimilislækni. Þá þurfi að framkvæma skoðun og taka sögu með túlki auk þess að skima þurfi fyrir krabbameini. Þá hafi heimilislækni verið ráðlagt að hafa samband við blóðmeinafræðing varðandi frekari ráðleggingar vegna blóðþynningar í framhaldinu. Í samskiptaseðli frá heilsugæslunni Efra Breiðholti, dags. 13. ágúst 2021, kemur fram að bókaður hafi verið fyrir kæranda nýr tími á heilsugæslunni. Framkvæma þurfi skoðun m.t.t. krabbameinsleitar auk þess sem bóka þurfi að blóðprufu og ómun. Í framhaldinu þurfi svo að hafa samband við blóðmeinalækni.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst, og m.a. sú aðstoð rakin sem hann hefur fengið hér á landi. Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans vegna slæmra aðstæðna í Grikklandi. Kærandi hafi ekki haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu, félagsaðstoð eða atvinnu í Grikklandi. Af framlögðum heilsufarsgögnum má sjá að kærandi hefur glímt við blóðtappa í fæti og hafi þurft að taka inn blóðþynnandi lyf vegna þess. Jafnframt hafi kærandi verið í eftirfylgni hjá heimilislækni vegna þessa. Þá bera niðurstöður rannsókna sem kærandi hefur undirgengist hér á landi með sér að líklega sé um að ræða blóðtappa af krónískum toga.

Í fyrri úrskurði kærunefndar í máli kæranda nr. KNU21020059, frá 29. apríl 2021, var það mat kærunefndar að í ljósi þess að líkamlegt heilsufar kæranda væri þess eðlis að þörf kynni að vera á frekari meðferð og þeirra aðgangshindrana sem geti verið til staðar í Grikklandi hafi verið sérstakt tilefni til að afla upplýsinga um hvort kærandi hefði kennitölu og skattnúmer í Grikklandi. Var það mat kærunefndar að upplýsingar um fyrrgreint hafi þurft að liggja fyrir áður en ákvörðun yrði tekin í máli kæranda og taldi kærunefnd rannsókn Útlendingastofnunar áfátt að því leyti. Var lagt fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun öðru sinni var kærandi boðaður í viðtal hjá stofnuninni þann 18. maí 2021. Aðspurður kvaðst kærandi hvorki hafa sótt um skattnúmer né almannatrygginganúmer í Grikklandi. Verður framburður kæranda lagður til grundvallar í málinu hvað þetta varðar. Þá rakti Útlendingastofnun þau heilsufarsgögn sem lágu fyrir í málinu en þar er m.a. vikið að því að kærandi hafi verið greindur með eftirköst blóðtappa í fæti og þurfi á blóðþynningarlyfjum að halda. Þá hafi niðurstöður myndgreiningarsvars leitt í ljós að blóðtappinn sé líklegast krónískur.

Að mati kærunefndar hefur framangreind málsmeðferð Útlendingastofnunar ekki leitt fram frekari upplýsingar um stöðu kæranda hvað varðar líkamlegt heilsufar hans eða hvort hann sé í þörf fyrir frekari læknisfræðilega meðferð og hvort að sú meðferð standi honum til boða í Grikklandi. Kærunefnd telur með vísan til þeirra aðgangshindrana sem geta verið til staðar að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og fjallað hefur verið um og þess álags sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á heilbrigðiskerfið í Grikklandi, og í ljósi þess að upplýsingar um skattnúmer og almannatrygginganúmer kæranda lágu ekki fyrir, að fara hefði átt fram frekari rannsókn á heilsufari kæranda. Til að mynda hefði verið tilefni til að afla skýrari upplýsinga frá sérfróðum aðila hver þörf hans er fyrir frekari heilbrigðisþjónustu og um afleiðingar þess fyrir kæranda fái hann ekki þá þjónustu eða meðferð eða afleiðingar á töfum á veitingu slíkrar þjónustu.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Eins og að framan greinir telur kærunefnd að annmarkar hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar í máli kæranda. Kærunefnd telur jafnframt í ljósi aðstæðna að ekki sé unnt að bæta úr þeim annmörkum á kærustigi og því rétt að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

 

 

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

 

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                     Þorbjörg I. Jónsdóttir

                                                                                             

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum