Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A6%C3%B0ingar-%20og%20foreldraorlof

Mál nr. 44/2011

Fimmtudaginn 22. nóvember 2012

 

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Jóna Björk Helgadóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 21. desember 2011 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra frá B ehf., f.h. A, dags. 19. desember 2011. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) um að endurkrefja kæranda um ofgreiðslu frá Fæðingarorlofssjóði fyrir mánuðina nóvember og desember 2010 og janúar–apríl 2011 þar sem hún fékk of háar greiðslur frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hún þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði með barni fæddu Y. júní 2010.

Með bréfi, dags. 28. desember 2011, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 10. janúar 2012.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 12. janúar 2012, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda. Þá óskaði nefndin frekari upplýsinga frá kæranda með bréfi, dags. 6. júní 2012, en svör bárust ekki frá kæranda þrátt fyrir ítrekanir.

I. Sjónarmið kæranda.

Kærandi mótmælir endurgreiðslukröfu þeirri sem fram kemur í greiðsluáskorun frá Fæðingarorlofssjóði, dags. 13. október 2011. Kærandi kveður þau mistök hafa orðið að rangt starfshlutfall í prósentum hjá vinnuveitanda síðustu sex mánuði fyrir fæðingu barns hafi verið fært inn á tilkynningu um fæðingarorlof, eða 100% í stað 50% eins og rétt sé.

Kærandi kveðst vera förðunarfræðingur að mennt og sé meðeigandi í sameignarfélaginu C sf., , sem reki förðunarskóla og snyrtivöruverslun. Hjá félaginu starfi tvær stúlkur í hlutastarfi, kærandi í 50% starfi á móti aðstoðarstúlku í sama starfshlutfalli í verslun, svo og starfsmaður sem verktaki í hálfu starfi við förðunarskólann. Kærandi hafi reiknað sér laun samkvæmt viðmiðunarreglum ríkisskattstjóra skv. 3. málsl. 1. mgr. 58. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, í flokki C undirflokki C(5) þar sem mánaðarlaun fyrir starfsmann í fullu starfi séu áætluð X kr. Þar sem kærandi sé í um það bil hálfu starfi hafi hún reiknað sér X kr. laun á mánuði. Heimilisaðstæður komi í veg fyrir að hún geti sinnt fullu starfi.

II. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að sjóðurinn hafi með bréfi til kæranda, dags. 20. september 2011, vakið athygli hennar á því að stofnunin hafi verið með mál hennar til meðferðar vegna hugsanlegrar ofgreiðslu fyrir framangreint tímabil. Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK hafi hún fengið laun frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hún þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðlum, tímaskýrslum, útskýringum vinnuveitanda og útskýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Engin gögn hafi borist frá kæranda. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 13. október 2011, ásamt sundurliðun ofgreiðslu þar sem hún hafi verið krafin um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar fyrir framangreint tímabil ásamt 15% álagi. Litið hafi verið svo á samkvæmt skrám RSK og fyrirhugaðri töku fæðingarorlofs með barni fæddu Y. júní 2010 að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði skv. 9. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og f-lið 8. gr. laga nr. 74/2008, nú 10. mgr. 13. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 136/2011, sbr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl.

Með kæru kæranda hafi borist bréf frá B ehf. fyrir hönd kæranda sem ekki verði séð að hafi nein áhrif á ákvörðun málsins.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. er fæðingarorlof leyfi frá launuðum störfum sem stofnast til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 8. gr. er fjallað um rétt foreldra á vinnumarkaði til fæðingarorlofs og í 10. gr. er fjallað um tilhögun fæðingarorlofs.

Í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008 og a-lið 16. gr. laga nr. 120/2009, sem hafi verið í gildi við fæðingardag barns kæranda, sé kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram sé og að miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn hafi komið inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Þegar um sé að ræða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna á viðmiðunartímabili skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur miðuðust við og skal aldrei taka mið af hærri fjárhæð en nemi þeim viðmiðunartekjum enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli þessara greiðslna og viðmiðunartekna bættan samhliða greiðslunum. Í 2. mgr. 13. gr. ffl. segir enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Samkvæmt fortakslausu ákvæði 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, nú 10. mgr. 13. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 136/2011, skulu greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skulu greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris. Í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, segir orðrétt:

Talið er mikilvægt að lögin kveði skýrar á um tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði en þeim er ætlað að bæta fyrir 80% af tekjumissi foreldra er þeir leggja niður störf í fæðingarorlofi. Fái foreldri tekjutapið bætt frá vinnuveitanda er eðlilegt að það komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó er gert ráð fyrir að foreldri geti fengið bætur annars staðar frá fyrir þann tekjumissi er Fæðingarorlofssjóði er ekki ætlað að bæta. Kæmi sá hluti því ekki til frádráttar. Er því lagt til að kveðið verði skýrt á um að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram 20% af meðaltali heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þegar foreldri hefur hærri tekjur en hámarkstekjurnar sem lagt er til að verði miðað við skv. 3. mgr. þá er gert ráð fyrir að hærri greiðslur en sem nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr sjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til tiltekinna breytinga sem geta orðið á tekjum foreldra á þeim tíma sem líður frá því að viðmiðunartímabili lýkur og fram til upphafs fæðingarorlofs foreldris og geta talist vera í samræmi við það sem almennt tíðkast á íslenskum vinnumarkaði. Með þessum hætti er verið að undirstrika tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem er aðallega ætlað að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki. Er með þessu enn fremur lögð rík áhersla á að foreldrar leggi sannanlega niður launuð störf á þeim tíma er þeir nýta sér rétt sinn samkvæmt lögunum.

Í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, segir orðrétt:

Lögin um fæðingar- og foreldraorlof gera ráð fyrir að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til ákveðinna breytinga á launakjörum foreldra skv. 9. mgr. 13. gr. laganna. Þykir mikilvægt að tekið sé fram að eingöngu sé verið að miða við greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi. Ástæðan er einkum sú að foreldrar kunna að eiga rétt á eingreiðslum frá vinnuveitendum á ákveðnum tíma árs sem koma til framkvæmda meðan foreldri er í fæðingarorlofi en er ætlað fyrir lengra tímabil en nemur fæðingarorlofstíma foreldris. Dæmi um slíkar greiðslur eru bónusgreiðslur sem koma til framkvæmda við árslok en miðast við frammistöðu starfsmanns eða velgengni fyrirtækis á hluteigandi ári.

Í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, komi fram hvaða laun skuli telja með við útreikning á meðaltali heildarlauna. Samkvæmt ákvæðinu skuli telja til launa hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeninga, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 113/1990 um tryggingagjald sé stofn til tryggingagjalds allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, sem skattskyld eru skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Í 7. og 8. gr. laga um tryggingagjald sé frekari upptalning á því hvað teljist til gjaldstofns tryggingagjalds skv. 6. gr. laganna og í 9. gr. sé upptalning á því hvaða greiðslur séu undanþegnar tryggingagjaldi. Við mat á því hvaða greiðslur vinnuveitenda megi fara með og hvaða greiðslur megi ekki fara með greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði sé því nauðsynlegt að hafa til hliðsjónar hvaða greiðslur það séu sem sjóðurinn telji með þegar fundið sé út meðaltal heildarlauna foreldris. Í 3. tölul. 7. gr. laga um tryggingagjald komi þannig fram að til gjaldstofns skv. 6. gr. sé ökutækjastyrkur.

Í 15. gr. a ffl., sbr. 6. gr. laga 90/2004, sé fjallað um leiðréttingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 2. mgr. komi fram að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því hafi borið samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni hafi foreldri fært rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Ekki hafi borist nein rök frá kæranda sem gefi tilefni til að fella niður 15% álagið.

Með ódagsettri umsókn kæranda hafi hún sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í þrjá mánuði vegna barns hennar sem fæddist Y. júní 2010. Ein tilkynning hafi borist frá kæranda um tilhögun fæðingarorlofs og hún hafi verið afgreidd í fæðingarorlof í samræmi við hana, sbr. greiðsluáætlun til kæranda, dags. 26. nóvember 2010.

Á viðmiðunartímabili kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. hafi viðmiðunarlaun hennar verið X kr. á mánuði en frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu barns hafi þau verið komin í X kr. sem miðað hafi verið við. Þannig hafi verið tekið mið af hækkuðum launum kæranda henni til hagsbóta við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu skv. 9. mgr. 13. gr. ffl.

Á öllu tímabilinu frá nóvember 2010 til apríl 2011, þegar kærandi þáði á sama tíma greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í samræmi við fyrirhugaða töku fæðingarorlofs, hafi kærandi haldið óskertum launum frá vinnuveitanda sínum, þ.e. X kr. á mánuði. Það séu sömu laun og kærandi hafi verið með á mánuði frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu barns. Þar sem engin lækkun hafi orðið á launum kæranda meðan á töku fæðingarorlofs stóð hafi hún ekki getað átt rétt á greiðslum úr sjóðnum á sama tíma. Rétt sé að vekja athygli á að eftir að fæðingarorlofi í apríl lauk og a.m.k. til september 2011 hafi laun kæranda áfram verið X kr. á mánuði.

Eins og að framan hafi verið rakið sé fæðingarorlof skv. 1. mgr. 7. gr. ffl. leyfi frá launuðum störfum sem stofnist til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur.

Í 9. mgr. 13. gr., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, kom fram eins og áður segir sú fortakslausa regla að greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en sem nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna skv. 2. mgr. skuli koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í athugasemdum við 9. mgr. 13. gr. ffl. sé svo enn frekar hnykkt á því en þar komi fram að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu umfram 20% af meðaltali heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði og að tilgangur greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sé aðallega ætlað að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki.

Framangreindu ákvæði hafi lítillega verið breytt á árinu 2008, sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008. Við hafi bæst setningin: „Eingöngu skulu greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.“ Í athugasemdum við þá breytingu komi þó áfram fram sú fortakslausa regla að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Virðist breytingin því fyrst og fremst hafa átt að taka til eingreiðslna og annarra slíkra greiðslna frá vinnuveitendum sem foreldri geti átt rétt á á ákveðnum tíma árs og komi til framkvæmda meðan foreldri sé í fæðingarorlofi en sé ætlað fyrir lengra tímabil en nemi fæðingarorlofi foreldris, sbr. framangreindar athugasemdir með ákvæðinu og tilvitnað dæmi.

Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda X kr. útborgað að viðbættu 15% álagi, X kr. Alls sé því gerð krafa um að kærandi endurgreiði Fæðingarorlofssjóði X kr., sbr. greiðsluáskorun til hennar ásamt sundurliðun á ofgreiðslu, dags. 13. október 2011.

III. Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns hinn Y. júní 2010.

Af hálfu kæranda virðist byggt á því að því að kærandi hafi einungis verið í 50% starfi fyrir töku fæðingarorlofs og að hún hafi mátt halda þeirri vinnu áfram þar sem hún hafi einungis verið í 50% fæðingarorlofi.

Samkvæmt ákvæði 2. mgr. 13. gr. ffl. skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs miða við meðaltal heildarlauna foreldra á tilteknu viðmiðunartímabili sem er tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingardag barns. Í tilviki kæranda nær umrætt tímabil frá desember 2008 til nóvember 2009. Á þessu tímabili voru meðaltals heildartekjur kæranda X kr. og skyldu greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði taka mið af þeirri fjárhæð samkvæmt ákvæðinu, þannig að greiðsla miðað við 100% fæðingarorlof yrði X kr. Samkvæmt greiðsluáætlun, dags. 26. nóvember 2010, var kærandi afgreidd með 36‒44% fæðingarorlof og skyldi því fá samsvarandi hlutfall þeirrar fjárhæðar í mánaðarlegar greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði. Af tilvitnuðu ákvæði 2. mgr. 13. gr. ffl. leiðir að þegar reiknaðar eru út greiðslur til foreldris úr Fæðingarorlofssjóði er ekki litið til starfshlutfalls foreldris heldur er einungis litið til meðaltals heildarlauna á umræddu tímabili skv. 1. málsl. 2. mgr. 13. gr. ffl. og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði reiknaðar út frá því. Í ljósi framangreinds hefur það í raun engin áhrif á niðurstöðu útreikninga hvort kærandi hafi tilgreint starfshlutfall sitt sem 100% eða sem 50% síðustu mánuði fyrir töku fæðingarorlofs þar sem meðaltal heildarlauna hennar á viðmiðunartímabilinu býr til þann grunn sem hlutfallslegar greiðslur úr sjóðnum fara eftir.

Þá leiðir það af 9. mgr. (nú 10. mgr.) 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, að greiðslur frá vinnuveitanda kæranda, sem voru hærri en nam mismun greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. mgr. 13. gr. ffl., skyldu koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði og endurgreiðast sjóðnum. Þannig er sú greiðsla sem kæranda var heimilt að fá frá vinnuveitanda sínum samhliða greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði miðuð við meðaltals heildartekjur kæranda annars vegar og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hins vegar. Meðaltals heildarlaun sem miðað er við skulu sem fyrr segir taka til tímabilsins frá desember 2008 til nóvember 2009.

Samkvæmt lokamálslið 9. mgr. (nú 10. mgr.) 13. gr. ffl. er heimilað að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja má til breytinga á störfum foreldris þegar metið er hvort foreldri hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði. Ákvæðið veitir þannig heimild til að miða við hærri laun foreldra en samkvæmt viðmiðunartímabili 2. eða 5. mgr. 13. gr. ffl. þegar reiknað er út hvort foreldri hafi þegið hærri greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði en því bar. Þetta er foreldrum til hagsbóta þar sem endurkrafan lækkar við það sem því nemur. Ljóst er að Fæðingarorlofssjóður hefur nýtt sér framangreinda heimild við útreikning endurkröfu sinnar á hendur kæranda. Sjóðurinn hefur miðað við tímabilið frá því að viðmiðunartímabilinu lauk og fram til upphafs fæðingarorlofs kæranda, þ.e. tímabilið frá nóvember 2009 til Y. júní 2010, en þá hafði meðaltal heildarlauna kæranda hækkað úr X kr. í X kr. Er það kæranda til hagsbóta.

Í 2. mgr. 15. gr. a, sbr. 6. gr. laga nr. 90/2004 og 5. gr. laga nr. 155/2006, segir að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Þá segir jafnframt að fella skuli niður álagið færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Kærandi hefur ekki fært nein rök fyrir niðurfellingu umrædds álags.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja A um greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði að viðbættu 15% álagi er staðfest.


Jóna Björk Helgadóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum