Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 32/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 32/2020

Fimmtudaginn 7. maí 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 20. janúar 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. janúar 2020, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á bið.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 29. desember 2019. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 20. janúar 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en með vísan til þess að hann ætti ótekinn biðtíma frá fyrri umsókn yrðu bætur ekki greiddar fyrr en sá tími væri liðinn.  

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 20. janúar 2020. Með bréfi, dags. 21. janúar 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 11. febrúar 2020. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. febrúar 2020, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur í mars 2019 en fengið viðurlög þar sem hann hafi borgað fyrir tvo áfanga í fjarnámi, án þess að hafa nokkra hugmynd um hvað það fæli í sér. Hann hafi hins vegar hætt við að fara í námið og eingöngu borgað fyrir áfangana. Kærandi hafi strax skráð sig af atvinnuleysisbótum þar sem hann hafi fengið vinnu. Nú sé hann aftur atvinnulaus en af einhverjum ástæðum sé enn verið að refsa honum fyrir þessa áfanga sem hann hafi aldrei tekið. Kærandi viti að hann hafi skapað þessar aðstæður sjálfur með kæruleysi en honum finnist þetta mjög skrýtin refsing, sérstaklega ári síðar.

III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að málið varði í grunninn þá ákvörðun stofnunarinnar að láta kæranda sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga. Ákvörðun um biðtíma á grundvelli 55. gr. og 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé frá 3. apríl 2019. Kærufrestur vegna þeirrar ákvörðunar sé liðinn, sbr. 5. gr. laga nr. 85/21015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Til umfjöllunar sé því hvort kærandi hafi átt að sæta eftirstöðva biðtíma þegar hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur í desember 2019.

Fyrir liggi að kærandi hafði ekki tekið út biðtíma þegar hann hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta að nýju. Viðurlagaákvörðunin hafi verið tekin á grundvelli 55. gr. laga nr. 54/2006 og þar sem um hafi verið að ræða seinni viðurlagaákvörðun kæranda á sama bótatímabili hafi komið til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna og því hafi honum verið gert að sæta þriggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Í 5. mgr. 61. gr. laganna sé fjallað um hvenær biðtími samkvæmt ákvæðinu geti fallið niður en þar segi að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil hefjist samkvæmt 29. gr., sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Í 31. gr. komi fram að nýtt tímabil hefjist þegar hinn tryggði sæki að nýju um atvinnuleysisbætur eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur hafði hann ekki unnið samfellt í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur og því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils. Að því virtu hafi kærandi þurft að sæta biðtíma áður en greiðslur atvinnuleysisbóta gætu hafist.

IV. Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda á bið.

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 3. apríl 2019 var bótaréttur kæranda felldur niður í þrjá mánuði. Ákvörðun stofnunarinnar var tekin á grundvelli 1. mgr. 55. gr. laga nr. 54/2006, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna. Ákvæði 1. mgr. 55. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur hætt námi, sbr. c-lið 3. gr., án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Staðfesting frá viðkomandi skóla um að námi hafi verið hætt skal fylgja umsókninni.

Í 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Þar segir að sá sem hafi sætt viðurlögum samkvæmt 57.-59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggi fyrir, enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili samkvæmt 29. gr. Í 5. mgr. 61. gr. laganna kemur fram að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefst, sbr. 30. og 31. gr. laganna.  

Í 29. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standa yfir. Í 4. mgr. 29. gr. laganna kemur fram að tímabilið samkvæmt 1. mgr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Þá segir í 31. gr. laga nr. 54/2006 að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.   

Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki, þegar umsókn hans barst Vinnumálastofnun þann 29. desember 2019, starfað í 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafði því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 31. gr. laga nr. 54/2006 og því hélt allur ótekinn biðtími vegna eldri viðurlaga áfram að líða þegar hann skráði sig atvinnulausan að nýju 29. desember 2019. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda á bið staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. janúar 2020, í máli A, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á bið er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum