Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 67/2018 Úrskurður 20. september 2018

 

Mál nr. 67/2018                    Eiginnafn:     Zíta (kvk.)

 

 

Hinn 20. september 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 67/2018 en erindið barst nefndinni 14. ágúst.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Zíta telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn z telst ekki til íslenska stafrófsins. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsingar mennta- og menningarmálaráðuneytis nr. 695/2016 um íslenskar ritreglur. Af þessum sökum er einungis hægt að fallast á eiginnafnið Zíta ef það telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 15. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

a.      Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.      Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.      Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.      Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;

e.      Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá bera þrjár konur, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna um hefð, nafnið Zíta og er sú elsta þeirra fædd árið 1935. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Samkvæmt upplýsingum mannanafnanefndar mun íslensk kona, sem fædd var árið 1895, hafa notað nafnið Zíta á opinberum vettvangi á 3. og 4. áratug 20. aldar.

Eins og fyrr segir eru ofangreindar vinnulagsreglur mannanafnanefndar ætlaðar til viðmiðunar við mat hennar á því hvort nafn geti talist hafa unnið sér hefð í íslensku. Af reglunum má ráða að nafn getur talist hafa unnið sér hefð þótt það hafi einungis tíðkast í tiltölulega skamman tíma ef nægilega margir bera það, sbr. skilyrði 1a og 1b. Ef tiltölulega fáir bera tiltekið nafn er gerð krafa um að það eigi sér lengri sögu, sbr. skilyrði 1d.

Þótt skilyrðum vinnulagsreglna um hefð sé strangt til tekið ekki uppfyllt í þessu máli telur nefndin þó að eiginnafnið Zíta hafi öðlast hefð í ljósi þess að það hefur verið notað samfleytt á Íslandi síðan á 3. áratug 20. aldar að minnsta kosti.

 

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Zíta(kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum