Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 269/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 269/2022

Miðvikudaginn 7. september 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 23. maí 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. janúar 2022, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans og að innheimta ofgreiddar bætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 12. ágúst 2019 og var umsóknin samþykkt 27. september 2019. Kærandi var afskráður af atvinnuleysisskrá 15. nóvember 2021. Við samkeyrslu Vinnumálastofnunar við nemendaskrá kom í ljós að kærandi var skráður í 30 ECTS-eininga nám við Háskóla Íslands á haustönn 2021. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 8. desember 2021, var óskað eftir að kærandi legði fram skólavottorð og skýringar á því hvers vegna hann hefði ekki upplýst stofnunina um nám sitt. Skýringar bárust frá kæranda samdægurs. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. janúar 2022, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar með vísan til 52. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að honum bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. september til 26. október 2021 að fjárhæð 483.715 kr., að meðtöldu álagi. Í kjölfar frekari skýringa kæranda var mál hans tekið til endurumfjöllunar. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. apríl 2022, var kæranda tilkynnt að ákvörðun frá 4. janúar 2022 væri staðfest þar sem hún hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. maí 2022. Með bréfi, dags. 2. júní 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð 23. júní og 13. júlí 2022. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. ágúst 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. ágúst 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa verið á atvinnuleysisbótum og gert námssamning við Vinnumálastofnun þar sem hann gæti farið í háskóla án þess að það bitni á atvinnuleysisbótum. Í samningnum segi að það megi taka 12 ECTS-einingar og kærandi hafi tekið tvo áfanga. Kærandi hafi gert mistök því í gamla daga hafi 10 eininga áfangar verið fimm einingar. Kærandi hafi því skráð sig í tvo slíka áfanga og hafi talið það vera í lagi. Þegar kærandi hafi lokið áföngunum hafi komið í ljós að kærandi hafi eingöngu mátt taka einn áfanga og þá fengið rukkun upp á 500.000 kr. Þegar kærandi hafi séð það hafi hann farið beint í að reyna að fá einn áfangann felldan niður því einn áfangi sé ekki 500.000 kr. virði. Kennararnir hafi ekki getað það því þetta hafi verið komið í kerfið. Kærandi hafi reynt allt sem hann hafi getað, fengið námsbrautarstjórann til að skrifa Vinnumálastofnun bréf til að útskýra hve mikil áhrif það hefði haft á námið ef hann hefði ekki tekið þessa tvo áfanga á sama tíma. Um sé að ræða skylduáfanga sem séu eingöngu kenndir á haustönn.

Kærandi sitji uppi með 500.000 kr. skuld út af einföldum mistökum, það er að hafa tekið átta ECTS-einingar umfram það sem leyfilegt sé. Kærandi hafi eingöngu verið á 81% atvinnuleysisbótum og hafi viljað gera eitthvað í sínum málum og hefja nám, sem sé meistaranám í Háskóla Íslands. Það hafi gengið mjög vel og kærandi sé nú að byrja á lokaverkefni sínu. Það sé mjög erfitt að fara út á vinnumarkaðinn með 500.000 kr. skuld á bakinu út af smá mistökum sem kærandi hafi gert allt til að fá leiðrétt. Í rauninni hefði kærandi mátt taka heilan áfanga og 20% af öðrum. Kærandi hafi tekið heilan áfanga og 100% af öðrum og það kosti hann 500.000 kr. Kærandi hafi verið svo heppinn að fá vinnu með skólanum og því hafi þetta „einungis“ endað í tveimur mánaðargreiðslum. Það svíði að kærandi hafi verið að reyna að koma lífi sínu á réttan kjöl, hafi nýtt sér námsúrræði Vinnumálastofnunar og fundið vinnu sem hann hafi getað unnið með skólanum. Vinnumálastofnun hafi tekið mikinn þátt í því með kæranda og sagt að það væri í lagi fyrir hann að fara í skóla en svo þegar hann hafi fyrir mistök farið rétt yfir einingafjöldann sé honum kippt aftur niður á jörðina.

Kærandi skilji vel að reglur séu reglur en það þurfi alltaf að vera til lausnir til að leiðrétta mistök en það sé ekki í hans tilfelli. Kærandi hafi verið með bakið upp við vegg, enginn hafi látið hann vita að hann væri að gera eitthvað rangt fyrr en það hafi verið of seint að gera nokkuð í því. Kærandi óski eftir að málið verði yfirfarið og tillit tekið til þess að hann hafi ekki verið að reyna að svindla. Hann hafi einungis reynt að gera framtíð sína bjartari.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun með umsókn, dags. 12. ágúst 2019. Með erindi, dags. 27. september 2019, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt. Útreiknaður bótaréttur kæranda hafi verið ákveðinn 86%.

Þann 2. júní 2021 hafi kærandi sent Vinnumálastofnun tölvupóst. Hann hafi óskað eftir upplýsingum um úrræðið „Nám er tækifæri“, en hann hafi sagst vilja skrá sig í meistaranám í hagnýtri fjölmiðlun við Háskóla Íslands á haustönn 2021. Ráðgjafi stofnunarinnar hafi svarað kæranda sama dag og greint honum frá því að nám við hagnýta fjölmiðlun félli ekki undir umrætt úrræði.

Þann 15. nóvember 2021 hafi kærandi verið afskráður af atvinuleysistryggingum þar sem hann hafði hafið störf.

Við reglubundið eftirlit hafi komið í ljós að kærandi væri skráður í 30 ECTS-eininga nám á haustönn 2021 við Háskóla Íslands, samhliða því að þiggja greiðslur atvinnuleysistrygginga. Þá hafi enginn námssamningur legið fyrir á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Með erindi, dags. 8. desember 2021, hafi verið óskað eftir því að kærandi skilaði skólavottorði þar sem umfang náms hans væri tilgreint ásamt skýringum á því hvers vegna hann hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun um nám sitt. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að veita stofnuninni umbeðin gögn. Sama dag hafi skýringar borist frá kæranda. Kærandi hafi sagst einungis vera skráður í 10 ECTS-einingar við háskólann en ekki 30. Vinnumálastofnun hafi þó ekki borist skólavottorð frá kæranda því til stuðnings.

Með erindi, dags. 4. janúar 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hann hefði stundað nám á sama tíma og hann hafi þegið greiðslu atvinnuleysistrygginga hefði hann fengið ofgreiddar atvinnuleysistryggingar á tímabilinu 1. september til 26. október 2021, samtals 420.622 kr., auk álags, sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í umræddu erindi hafi kæranda ranglega verið tilkynnt að heildarskuld hans við stofnunina stæði þá í 509.164 kr. Réttilega hafi skuld kæranda verið 483.715 kr.

Þann 28. janúar 2022 hafi kærandi haft samband við Vinnumálastofnun vegna umræddrar skuldar. Kærandi hafi sagst hafa haldið að hann væri með gildan námssamning við stofnunina og því staðið í þeirri trú að honum væri heimilt að stunda nám sitt. Þá hafi kærandi sagst hafa sent stofnuninni tölvupóst vegna þessa en engin svör fengið. Jafnframt hafi hann fengið það staðfest símleiðis frá stofnuninni að honum væri heimilt að stunda umrætt nám. Erindi kæranda hafi verið svarað þann 31. janúar af ráðgjafa stofnunarinnar. Ráðgjafi stofnunarinnar hafi vísað til tölvupósts sem hafi verið sendur til kæranda þann 25. janúar 2021 þar sem honum hafi verið greint frá því að leyfilegt væri að stunda allt að 12 ECTS-eininga nám en þó yrði ávallt að gera námssamning við Vinnumálastofnun. Ráðgjafi stofnunarinnar hafi jafnframt vísað til þess að kæranda hafi verið greint frá því þann 2. júní 2021 að nám við hagnýta fjölmiðlun félli ekki undir úrræðið „Nám er tækifæri“. Þrátt fyrir framangreindar upplýsingar hafi Vinnumálastofnun aldrei borist ósk um gerð námssamnings né skólavottorð frá kæranda. Ráðgjafi stofnunarinnar hafi greint kæranda frá því að hafi hann einungis verið skráður í 10 ECTS-eininga nám þyrfti hann að afhenda stofnuninni skólavottorð því til stuðnings. Kærandi hafi í kjölfarið sent annað erindi til stofnunarinnar þar sem hann hafi ítrekað að hann hefði í fjölda skipta reynt að óska eftir upplýsingum um heimildir sínar til að stunda nám. Hann hafi skráð sig í 30 eininga nám því hann hefði ekki verið viss um hvaða áfanga hann hefði viljað taka en hann hafi þó ekki lokið 30 einingum. Ráðgjafi stofnunarinnar hafi svarað erindi kæranda og tjáð honum að nýju að stofnuninni þyrfti að berast skólavottorð því til stuðnings.

Þann 13. apríl 2022 hafi Vinnumálastofnun borist tölvupóstur frá deildarstjóra sagnfræði- og heimspekideildar Háskóla Íslands. Þar komi fram að kærandi hafi hafið meistaranám í hagnýtri menningarmiðlun á haustmisseri 2021. Hann hafi lokið 20 ECTS-einingum á því misseri. Deildastjórinn hafi jafnframt greint frá því að á haustmisseri 2021 hafi aðeins verið boðið upp á 10 ECTS-eininga námskeið fyrir nemendur á fyrsta misseri námsins. Þau námskeið sem kærandi hafi lokið hafi bæði verið skyldunámskeið sem hafi aðeins verið kennd á haustmisseri. Það hefði því haft teljandi áhrif á námsframvindu kæranda að mati deildastjórans hefði hann ekki lokið báðum námskeiðunum á því misseri.

Þann 26. apríl 2022 hafi Vinnumálastofnun borist frekari skýringar frá kærandi. Kærandi hafi vísað til framangreinds tölvupósts frá deildarstjóra sagnfræði- og heimspekideildar Háskóla Íslands og sagst hafa lokið 20 ECTS-eininga námi umrætt misseri. Hann hafi þó reiknað einingar sínar samkvæmt eldra einingakerfi og því hefði hann talið að hann hafi aðeins stundað 10 ECTS-eininga nám. Þá hafi kærandi greint frá því að hann hafi skráð sig í umrætt nám til að gera eitthvað uppbyggilegt og til þess að eiga betri möguleika á starfi. Þess í stað sitji hann nú uppi með 500 þúsund króna skuld vegna þess að hann hafi stundað nám sem hafi verið átta ECTS-einingum of mikið. Kærandi hafi óskað eftir því að honum yrði sýndur skilingur og umrædd skuld felld niður.

Mál kæranda hafi verið tekið til endurumfjöllunar í kjölfar framangreindra skýringa. Með erindi, dags. 28. apríl 2022, hafi kæranda verið greint frá því að mál hans hefði verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Það væri þó mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun, dags. 4. janúar 2022, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn í máli hans hefðu borist.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Í c. lið 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna eftirfarandi skilgreiningu á námi:

,,Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Í 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um þá meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum samhliða námi. Í 1. mgr. 52. gr. segi orðrétt:

,,Hver sá sem stundar nám, sbr. c. lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.“

Ljóst sé af ákvæði 1. mgr. 52. gr. að það sé ekki tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar að tryggja námsmönnum framfærslu á meðan þeir stundi nám. Í athugasemdum með 52. gr. í greinargerð með frumvarpi er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé tiltekið að það sé meginregla að námsfólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum, hvort sem um sé að ræða fjarnám, dag- eða kvöldskóla. Í 2. mgr. 52. gr. laganna sé þó að finna heimild til handa atvinnuleitendum til að stunda nám að hámarki 12 ECTS-einingum. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.“

Eins og rakið hafi verið í málsatvikum liggi fyrir að kærandi hafi skráð sig í og stundað 20 ECTS-eininga nám við Háskóla Íslands á [haustmisseri] 2021, á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um þessa tilhögun og enginn námssamningur hafi verið gerður við stofnunina vegna umrædds náms. Þá eigi undanþáguákvæði 3. til 5. mgr. 52. gr. laganna ekki við í tilfelli kæranda.

Með vísan til 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé því ljóst að kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 1. september til 26. október 2021. Í 39. gr. laganna sé fjallað um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Í 2. mgr. 39. gr. segi orðrétt:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. beri að endugreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Kæranda beri með vísan til framangreinds að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann hafi fengið greiddar fyrir tímabilið 1. september til 26. október 2021, samtals 420.622 kr., enda liggi fyrir að hann hafi ekki uppfyllt skilyrði laganna á umræddu tímabili, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Heildarskuld kæranda standi í 483.715 kr. og þar af sé álag að fjárhæð 63.093 kr. Eins og kveðið sé á um í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. skuli fella niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til skuldamyndunar. Kærandi hafi í skýringum sínum til Vinnumálastofnunar greint frá því að hann hafi haldið að hann væri með gildan námssamning við stofnunina og því hafi hann staðið í þeirri trú að honum væri heimilt að stunda nám sitt. Þá kveðist kærandi hafa sent stofnuninni tölvupóst vegna þessa en engin svör fengið. Í þessu samhengi bendi Vinnumálastofnun á að í kerfum stofnunarinnar sé hvergi að sjá að kærandi hafi sérstaklega óskað eftir því að gerður yrði námssamningur við hann vegna þess náms sem hann hafi stundað á haustmisseri 2021. Vinnumálastofnun vísi jafnframt til þess að kærandi hafi stundað nám samhliða greiðslu atvinnuleysistrygginga allt frá upphafi árs 2020. Hann hafi því áður gert námssamning við Vinnumálastofnun og verið greint frá því að ávallt þurfi að gera námssamning og framvísa skólavottorði. Því sé það mat Vinnumálastofnunar að kæranda hafi verið veittar viðeigandi upplýsingar og leiðbeiningar er varði heimildir hans til að stunda nám samhliða greiðslu atvinnuleysistrygginga. Máli sínu til stuðnings vísi Vinnumálastofnun jafnframt til þess að það sé á ábyrgð þess er fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að stofnuninni berist nauðsynlegar upplýsingar er geta haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysistrygginga. Kæranda beri með vísan til framangreinds að greiða umrædda skuld, auk álags, enda hafi kærandi að mati Vinnumálastofnunar ekki fært rök fyrir því að fella eigi niður álag á skuld hans.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar bætur.

Í IX. kafla laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tilvik er leiða til takmörkunar á atvinnuleysistryggingum. Í 52. gr. laganna er fjallað um nám en þar segir:

„Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.

Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.

Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.

Þrátt fyrir 1.–4. mgr. skal hinum tryggða ávallt heimilt að ljúka þeirri önn sem er yfirstandandi við starfslok hans eða þegar hann missir starf sitt að hluta, sbr. 17. gr., án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga.“

Í c-lið 3. gr. laganna er að finna skilgreiningu á námi samkvæmt lögunum en þar segir:

„Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Í athugasemdum við ákvæði 52. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Þá kemur fram að það kunni að vera að nám sé nauðsynlegur hluti af starfshæfingu atvinnuleitanda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, en í slíkum tilvikum geti atvinnuleitandi talist tryggður samhliða námi.

Um vinnumarkaðsúrræðið „Nám er tækifæri“ segir í bráðabirgðaákvæði XVII í lögum nr. 54/2006:

„Þrátt fyrir 52. gr. er Vinnumálastofnun heimilt að gera sérstakan námssamning við atvinnuleitanda sem telst tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Vinnumálastofnun og viðkomandi atvinnuleitandi skulu undirrita samninginn. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að stunda nám sem hann hefur valið sér í samráði við ráðgjafa Vinnumálastofnunar og fellur undir átakið Nám er tækifæri, eftir að færni hans og staða hefur verið metin. Framangreindur samningur hefur ekki áhrif á rétt viðkomandi atvinnuleitanda til atvinnuleysistrygginga á grundvelli laganna.“

Þegar sótt er um atvinnuleysisbætur er umsækjandi spurður hvort hann sé skráður í nám á umsóknardegi. Upplýst er að almennt sé ekki heimilt að vera í námi samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Þó séu undantekningar á þeirri meginreglu. Tekið er fram að það sé því mjög mikilvægt að hafa samband sem fyrst við ráðgjafa Vinnumálastofnunar til að kanna hvort viðkomandi eigi rétt á námssamningi.

Samkvæmt fyrirliggjandi samskiptasögu hafði kærandi samband við Vinnumálastofnun í júní 2021 og óskaði eftir upplýsingum um hvort hann gæti farið í meistaranám í hagnýtri fjölmiðlun við Háskóla Íslands samhliða atvinnuleysisbótum. Kæranda var tjáð að það nám félli ekki undir úrræðið „Nám er tækifæri“. Við samkeyrslu Vinnumálastofnunar við nemendaskrá kom í ljós að kærandi var skráður í 30 ECTS-eininga nám við Háskóla Íslands á haustönn 2021 samhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun. Kærandi hefur vísað til þess að hafa fyrir mistök tekið of margar einingar. Hann hafi reynt að leiðrétta þau mistök en ekki tekist það.

Fyrir liggur að nám kæranda var ekki hluti af vinnumarkaðsaðgerð samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar. Meginregla 1. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 átti því við um kæranda, þ.e. hann stundaði nám í skilningi laganna. Undanþáguheimildir 2., 3. og 4 mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 eiga ekki við í máli kæranda þar sem hann var skráður í nám umfram 20 einingar og nám hans var ekki skipulagt samhliða vinnu. Að því virtu uppfyllti kærandi ekki skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum á þeim tíma sem hann var í náminu og átti því ekki rétt á greiðslum frá Vinnumálastofnun á tímabilinu 1. september til 26. október 2021.

Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum, beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur fyrir tímabil sem skilyrði laganna er ekki uppfyllt. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Þar sem kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um nám sitt á haustönn 2021 er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki sé tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. janúar 2022, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum